02.02.1967
Sameinað þing: 21. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1836 í B-deild Alþingistíðinda. (1609)
Framkvæmd vegáætlunar 1966
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Mér þykir rétt í sambandi við þá skýrslu, sem hæstv. samgmrh. hefur mælt hér fyrir, um framkvæmd vegáætlunarinnar, að vekja athygli á nokkrum atriðum, sem mér finnst, að þessi skýrsla sanni. Og ekki sízt vegna þess, að síðar á þinginu hér í vetur mun Alþ. fjalla um endurskoðun vegáætlunarinnar og nauðsyn ber til þess, að hv. þm. geri sér grein fyrir því verkefni, sem þar er við að fást, eða verður við að fást og þeim verkefnum, sem við er að fást í vegagerðinni í landinu. Það sýnist augljóst af þeirri skýrslu, sem hér liggur fyrir, að vegasjóðurinn ræður ekki við þau verkefni, sem honum voru ætluð. Ástæðan til þess, að svo er, er í fyrsta lagi, að verðhækkun hefur nokkur orðið frá því að vegáætlunin var gerð og vegasjóðnum falið að leysa þau verkefni, sem í áætluninni var til ætlazt. Að vísu fóru tekjur sjóðsins fram úr áætlun á árinu 1966 og mætti það þess vegna þessum lið, en fleira kom þar til, sem hefur meiri áhrif, og það er hin geysilega aukning á umferðinni á vegum landsins. Eins og kemur fram hér í skýrslu vegamálastjórnarinnar, hefur umferðin aukizt mjög á árinu 1966, og á bls. 4 er skýrt frá þessu og sýnt fram á það, að umferðaraukningin í landinu er meiri en bilaaukningin, sem þó er geysilega mikil á árinu 1966. Telur vegamálastjórnin, að umferðaraukningin sé 10–20%. Á árinu 1966 munu hafa bætzt við yfir 5 þúsund nýir bílar, og samkv. þeirri áætlun, sem gerð var um tekjur af leyfisgjöldum bifreiða á fjárlögum fyrir árið 1967, er gert ráð fyrir, að innfluttir bílar verði yfir 6 þús. Nú munu bifreiðir landsmanna, þær sem í umferð eru, vera um 39–40 þús. og sjá því allir, að aukningin á vegunum er geysilega mikil. Þar við bætist, að bílarnir stækka ár frá ári. Vöruflutningabílar, sem þóttu stórir fyrir einum 4–5 árum, eru nú að verða of litlir og sama er að segja um fólksflutningsbílana. Þetta veldur því að umferðin í landinu eða álagið á vegina eykst svo geysilega, eins og fram kemur í þessari skýrslu, og vegasjóðurinn getur ekki valdið því verkefni að taka á móti þessari auknu umferð.
Það kemur einnig fram í skýrslu vegamálastjórnarinnar, að samkv. vegatalningu eru 350 til 400 km vega í landinu farnir vegna umferðarinnar að tilheyra hraðbrautum. Það þýðir, að ef vegalögin væru framkvæmd eins og þau mæla fyrir um, eiga þessir vegir að vera gerðir úr varanlegu efni, með tvöföldum akbrautum. Hér er um að ræða verkefni upp á milljarða og sjá allir, hvernig við erum á vegi staddir til þess að mæta því verkefni, þegar það er haft í huga, að við erum búnir að byggja upp eina hraðbraut, sem er Keflavíkurvegurinn, sem kostar um 270 millj. kr., en vegagerðin skuldar, vegna framkvæmda í hraðbrautum og landsbrautum, um 307 millj. kr. eða hærri fjárhæð en kostnaður við Keflavíkurveginn er. Hér er því augljóst, að sjóðurinn veldur ekki verkefninu. Í vegalögunum stendur, að ríkissjóður eigi að leggja vegasjóði til fé á fjárlögum hverju sinni, og það er alveg augljóst mál, að vegasjóðurinn getur ekki mætt aukinni vegaþörf, nema ríkissjóður leggi honum til tekjur. Samkv. vegalögunum er það hugsað svo, að ríkissjóður jafni metin á milli þarfanna og hinna föstu tekjustofna. Ef ríkissjóður sinnti þessu verkefni, mundi vegasjóður að sjálfsögðu ráða betur við verkefnin en nú er, en fjarri er það því, eftir að ríkissjóður er hættur að leggja vegasjóðnum til nokkurt fé. Afleiðingin af þessu fjármagnsleysi vegasjóðs er sú, að vegasjóðurinn skuldar, eins og ég drap á áðan, stórar fjárhæðir eða vegna hinna stóru verkefna, Keflavíkurvegarins og Siglufjarðarvegarins, yfir 300 millj. kr., og auk þess eru svo smærri skuldir í landsbrautum, sem stofnað hefur verið til áður, og hafa þær heldur lækkað á s.l. ári, en þar er um að ræða endalok í ýmsum þeim vegum, sem þar voru til framkvæmda og hefur alltaf verið til staðar, að slík lán hafi fengizt.
Það kemur fram í þessari skýrslu vegamálastjórnarinnar, hvernig þessum fjárhag er komið og í bréfi, sem vegamálastjóri skrifaði samgmn. hv. Ed. 30. marz 1966, kemur fram að rúml. 54% þeirrar fjárhæðar, sem varið er til þjóðvega- og brúagerðar í landinu, fer í að greiða skuldir og vexti og afborganir af þeim lánum, sem nú hvíla á vegagerðinni. Sjá þá allir, hvernig fer um framkvæmd í þessum málum, ef svo fer sem nú horfir, að yfir 50% af framkvæmdafénu fari í að greiða vexti og afborgun af lánum vegna þeirra framkvæmda, sem við höfum þegar gert, enda var svo komið á s.l. ári, að vegagerðin varð að taka lán hjá Landsvirkjun, 5½ millj., til þess að leggja í viðhald í veg austur í Flóa, og samkv. því samkomulagi, sem gert var þar um, á að endurgreiða þetta fé á næstu þrem árum af því fé, sem varið er til vegaviðhalds í landinu á því tímabili.
Nú er það öllum ljóst, og það kemur greinilega fram í skýrslu vegamálastjórnarinnar, að vegaviðhaldið er víða orðið þannig, að það er algerlega orðið vonlaust að halda fjölförnustu vegunum við sem malarvegum, enda er það hverju orði sannara, að ástand ýmissa þjóðvega hér á landi er að verða þannig ekki síst þeirra, sem mest er farið um, að þeir eru orðnir lítt færir, bæði að sumrinu til og einnig á veturna. Þegar þetta er haft í huga, er það augljóst, sem ég drap á í upphafi máls míns, að vegasjóðurinn veldur ekki verkefninu. Það verður að vera eitt af verkefnum þessa þings, við endurskoðun vegáætlunarinnar, að gera sér grein fyrir því, hvernig á að taka á verkefnum vegasjóðs, hvernig á að leysa úr fjárþörf hans til þess að hann geti tekið á verkefnunum. Við verðum á næstu árum að byggja hraðbrautir, við verjum til þeirra núna 10 millj. kr. og þær skulda 236 millj. kr. og sjá þá allir, hvernig á að leysa verkefnin, sem á að vinna að, þegar 10 millj. kr. á ári eru til þess að mæta greiðslum vaxta og afborgana af þeim lánum, sem búið er að taka. Við getum heldur ekki leyst verkefni þjóðbrautanna og landsbrautanna með 46% af fjárveitingu, sem til þeirra er varið, eins og nú á sér stað. Við getum ekki næstu tvö ár látið vegaviðhaldið vera eins og það er nú með þeirri þróun, sem verður í umferðinni í landinu, auknum bílaflota og stærri bílum og meiri þungavöruflutningum á landleiðunum en áður. Þannig er stefnan, þess vegna verðum við að gera okkur grein fyrir því, að vegasjóður veldur ekki verkefninu. Við megum ekki slíta tengslin á milli hans og ríkissjóðs, og við verðum að búa okkur undir það að ganga þannig frá fjármálum vegasjóðsins, að hann geti leyst aðkallandi verkefni, eins og framtíðin mun krefja hann um.