02.02.1967
Sameinað þing: 21. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1839 í B-deild Alþingistíðinda. (1610)
Framkvæmd vegáætlunar 1966
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Þetta mál kemur að sjálfsögðu síðar til umræðu á þessu þingi, og skal ég ekki vera margorður um þessa skýrslu. Ég vildi gjarnan spyrja hæstv. ráðh. hér um ein þrjú atriði, sem snerta vegi á Vestfjörðum. Það er í fyrsta lagi í skýrslunni á bls. 12, vegur nr. 44, Svalvogavegur. Geymslufé 250 þús. kr., framkvæmdum frestað til næsta árs. Hvers vegna var þessum framkvæmdum frestað? Ég held að af þessari upphæð sé nærri helmingurinn eða allverulegur hluti af henni gamalt geymslufé, meira að segja margra ára, mig minnir 85 þús., og svo eru nú á vegáætluninni 135 þús., svo að það verða 230 þús., sem eru geymd, og alltaf er geymt þetta fé. Af hverju er því ekki komið í verk að vinna fyrir þetta fé, þó ekki sé meira? Það er vegarkafli lítt fær og stórhættulegur, framan í skriðum á milli Haukadals og Keldudals, sem ekki er hreyft við, en peningarnir fyrir hendi. Hvernig má þetta vera, hvernig stendur á þessu?
Á sömu síðu í áætluninni stendur: nr. 47, Súgandafjarðarvegur. Fjárveiting 400 þús. kr., framkvæmdum frestað til næsta árs. Ég vil gjarnan spyrja að því sama: Hvernig stendur á því, að það er ekki unnið fyrir féð? Þá stendur á bls. 13, nr. 51, Snæfjallastrandarvegur. Fjárveiting 200 þús. kr., greidd var skuld frá fyrra ári, 17 þús. kr., varnargarðar við Mórillu voru styrktir og vegur sunnan brúarinnar endurbættur. Ég get ekki betur séð en þarna hafi fjárveitingu til nýbygginga verið varið til viðhalds. Það er verið að tala um, að fénu hafi verið varið til að styrkja varnargarð og endurbæta veginn, sunnan brúarinnar. Þetta er ekkert annað en viðhald á veginum. Og mér sýnist ekki heimilt að taka nýbyggingarfé í viðhald. Auk þess er þarna ólagður kafli frá brúnni norður á Lónseyri á Snæfjallaströnd, sem ekki er hreyft við, af því að fénu er varið í viðhald. Þannig lít ég á þetta og sé það nokkurn veginn skýrum stöfum í þessari skýrslu, að þarna hefur nýbyggingarfé verið varið til viðhalds og látið ógert að leggja kafla, sem féð átti að fara í.
Ég hef hreyft því áður við umræður um vegamálin, að þörf væri á því, að þinginu væri gerð grein fyrir, hvernig viðhaldsfénu hefði verið skipt á milli hinna einstöku byggðarlaga eða aðalvega í landinu. Hæstv. ráðh. hefur tekið þessu vel, þegar ég hef minnzt á þetta hér áður, en það bólar ekki á því, að þinginu sé gerð nein grein fyrir því, hvernig viðhaldsfénu hefur verið skipt á milli hinna einstöku aðalvega eða byggðarlaga í landinu. Ég tel mikla þörf á því, að þm. fái yfirlit yfir þetta alveg eins og hvernig nýbyggingarfénu er varið, viðhaldsféð er svipuð upphæð og þó í raun og veru meira, þó að lítið sé, og það skiptir ekki minna máli að fá vitneskju um það, hvernig því er skipt, en nýbyggingarfénu. Sama er að segja um fé, sem varið er til snjómoksturs. Ég held, að það sé ekki nema sanngjarnt mál, að þm. sé gerð grein fyrir því, í hvaða vegi þetta fé til snjómoksturs fór. Nú er það ákaflega hæpið að færa snjómokstur undir viðhald vega, ég sé ekki, að vegirnir batni neitt við það, þó að snjónum sé mokað. En látum það nú vera. Ég vildi fara fram á það við hæstv. ráðh., ef hann sér þess nokkur tök, að hann síðar á þessu þingi gefi þingheimi skýrslu um þetta, svona í stórum dráttum, hvernig viðhaldsfé skiptist og hvernig fé til snjómoksturs skiptist á hin einstöku byggðarlög eða hina einstöku aðalvegi í landinu.