02.02.1967
Sameinað þing: 21. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1840 í B-deild Alþingistíðinda. (1611)
Framkvæmd vegáætlunar 1966
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það eru nú aðeins örfá orð sem tilefni er til þess að segja í sambandi við ræður þessara tveggja hv. þm., sem hér hafa talað.
Fsp. frá hv. síðasta ræðumanni á ég nú erfitt með að svara, vegna þess að það hefur alls ekki verið borið undir mig, hvers vegna þessum framkvæmdum hefur verið frestað. Ég hygg, að það hafi verið gert af hagkvæmnisástæðum, eins og kemur fram, að því er frestað til næsta árs á einstökum vegum, sem þm. nefndi. Þá er það af hagkvæmnisástæðum, þá verður unnið fyrir meiri upphæð á næsta ári, féð nýtist betur. Það er um talsverðan veg að fara með vinnuflokk og vélar, og ég hygg, að þetta sé nú ástæðan, og ég hefði nú haldið, að hv. þm. væri samþykkur þessum vinnubrögðum, sem vegamálastjóri hefur talið vera rétt. Og þetta ætti heldur ekki að tefja fyrir því, að vegurinn eða vegirnir þarna vestra yrðu bættir, ef unnið er á næsta ári fyrir meira fé, það, sem hefði að nokkru leyti mátt vinna á síðasta ári. Það fæst meira verk fyrir peningana með því að haga því þannig, og einstakar framkvæmdir, hinar smærri, eru ekki bornar undir ráðh. Og ég treysti vegamálastjóra alveg til þess, að hafa gert þetta af hagkvæmnisástæðum, og oft er það nú held ég þannig, að hv. þm. hafa samband við vegamálastjóra um annað eins og þetta. Og ég hefði nú haldið, að hv. þm. Sigurvin Einarsson hefði nú haft kjark til þess og elju að fylgjast með þessu fyrir sitt kjördæmi. Að gefa hv. Alþ. skýrslu um skiptingu á viðhaldsfénu í einstaka vegi og landshluta, svo og snjómokstur, það er vitanlega vel hægt, eins og hér hefur verið sagt áður. Ég minntist á þetta við vegamálastjóra, hann hefur tekið því ágætlega og mun alls ekki færast undan að gera það ef það verður lagt fyrir hann, því að þetta liggur vitanlega allt fyrir á skrifstofu vegagerðarinnar. En þetta er vitanlega mjög breytilegt frá ári til árs, viðhaldið á hinum ýmsu vegum. Sumir vegir verða fyrir skakkaföllum á þessu ári, og þá verður að gera við það, snjómoksturinn er misjafnlega mikill, því að snjór fellur misjafnlega niður í hinum ýmsu landshlutum, þannig að það er vitanlega engin föst regla, sem hægt er að fylgja í þessu efni, en í bókhaldi vegagerðarinnar liggur þetta fyrir og ef hv. alþm. telja ástæðu til, þá er vitanlega hægt að leggja skýrslu fram um þetta.
Hv. 3. þm. Vesturl. sagði hér áðan, að vegasjóður hefði nú ekki lengur vald á því verkefni, sem honum var ætlað. Það var að annast vegaviðhald og endurbyggingu vega í landinu. Það hefur þó verið tekið fram, að vegasjóður hefur annað því að fylgja þeirri áætlun um vegagerð og viðhald í landinu, sem gerð hefur verið, þrátt fyrir hina auknu umferð, sem talað hefur verið um. Það hefur ekki verið brugðið út af áætluninni, og þess vegna er rangt að segja, að vegasjóður valdi ekki verkefninu, t.d. vegna verðhækkana. Það hefur ekki þurft að draga úr framkvæmdum vegna verðhækkana, vegna þess að tekjur vegasjóðs hafa aukizt a.m.k. eins og verðhækkunum nemur og viðhaldsféð á árinu 1966 var 125 millj. kr. á móti tæplega 100 millj. 1965. Og nýbyggingarframkvæmdir eru ekki minni en áætlað var. Hitt er svo rangt, sem hv. 3. þm. Vesturl. sagði hér áðan, að 54% af nýbyggingarfénu færu til greiðslu á vöxtum og afborgunum. Þetta er algerlega rangt. Það eru réttar 40 millj., sem fara í greiðslur vaxta og afborgana af lánum, þegar búið er að reikna með tekjum af veggjaldinu á Reykjanesbraut, og þá geta hv. þm. reiknað út, hvort hv. 3. þm. Vesturl. hefur farið hér rétt með.
Hv. þm. talar mikið um skuldir vegasjóðs, skuldir vegna Reykjanesbrautar og skuldir vegna margs konar framkvæmda, en þegar gengið var frá vegáætluninni, var gert ráð fyrir að taka lán til þessara framkvæmda, og vegasjóður gæti vel valdið verkefninu, ef vegaframkvæmdum í dag væri hagað eitthvað í líkingu við það, sem var hér áður, með því að hafa framkvæmdirnar litlar. Til skuldanna hefur verið stofnað, vegna þess að það var lokið við að gera Reykjanesbrautina og það var lokið við að gera veginn fyrir Ólafsvíkurenni. Það er verið að ljúka við að gera Strákaveginn. Það er þegar lokið við Múlaveginn. Það er verið að vinna að Vestfjarðaáætluninni. En samkv. vegáætluninni, sem hv. alþm. samþ., var gert ráð fyrir að vinna þetta fyrir lánsfé. Hvort var nú betra að hafa unnið þetta fyrir lánsfé eða láta það ógert? Þessar framkvæmdir, sem ég taldi hér upp, hafa verið á dagskrá hér í hv. Alþ. í nærri 20 ár. En það var ekki hægt að framkvæma þetta fyrr en núna. Og hv. 3. þm. Vesturl. getur jafnvel spurt sjálfan sig að því, hvers vegna það var gert núna, en ekki áður. Það er vegna þess, að það hefur verið staðið betur að þessum málum í seinni tíð heldur en áður, enda þótt við séum sammála um, að mörg verkefni bíði, sem við teljum eðlilegt að flýta og framkvæma. En það dugar ekki fyrir hv. 3. þm. Vesturl. að tala hér eins og það hafi nú orðið einhver kyrrstaða í framkvæmdum vegamála, eins og það hafi yfirleitt alltaf áður gengið með einhverju sérstöku hraði að leggja vegi og viðhaldið hafi alltaf áður verið í stakasta lagi, það sé fyrst núna, sem Íslendingar kynnast slæmum vegum. Ég held, að hv. þm. ætti að líta til baka og yfir okkar athafna- og framkvæmdasögu og þá verður honum ljóst, að það hefur alltaf verið varið minna til vegaframkvæmdanna heldur en æskilegt hefði verið og heldur en þm. yfirleitt á hverjum tíma hefðu óskað og það er vegna þess, að það fjármagn, sem hefur verið til umráða, hefur alltaf verið takmarkað og þetta er eðlilegt, og þó að hv. 3. þm. Vesturl. segi nú: Ja, ríkissjóður á að leggja fram féð, ríkissjóður á að leggja fé til viðbótar því, sem vegasjóður nú hefur, nokkur hundruð millj. kr. á ári, þá komum við alltaf að þessu sama: Hvar á að taka það fé? Hvað á að spara? Eða á að leggja á nýja skatta? Ég veit, af því að hv. þm. hefur beðið um orðið aftur, að hann mun segja, eins og hann hefur svo oft sagt áður: Vegasjóður á að fá það, sem ríkissjóður fær af umferðinni, leyfisgjöld af bifreiðum og allar tekjur, sem hann getur talið upp, að komi í ríkiskassann af umferðinni. Þessar upphæðir hafa verið misjafnlega háar, þegar hv. 3. þm. Vesturl. hefur verið að tala um þær. Stundum hafa þær verið 300 millj. og þegar hann hefur svona sleppt lausum taumum og farið á skeið, hefur þessi upphæð komizt upp í 800 millj., sem ríkissjóður ætti að borga til vegasjóðs. Og víst væri það æskilegt, að þetta fé væri laust, þetta fé væri fyrir hendi. Það væri mjög æskilegt. En ég held, að það færi nú vel á því, þegar þessi mál eru rædd, að við gerum það með það fyrir augum að koma þessum málum í það eðlilega horf, sem raunsæi leyfir, og þá vitanlega komum við að því, sem við erum sammála um, að þoka þessu áfram eftir því, sem fjárhagurinn leyfir og möguleikar eru fyrir hendi. En við skulum ekki vera að tala, eins og við séum bara með grín, að ríkissjóður eigi allt í einu að láta af hendi nokkur hundruð millj. án þess að gera sér grein fyrir því, hvar hann á að fá það fé aftur, til þess að fjárl. séu hallalaus.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa öllu fleiri orð um þetta að sinni. Eins og ég sagði áðan, gefst víst tækifæri til þess að ræða um þessi mál síðar á þessu þingi, en ég vildi aðeins með nokkrum orðum leiðrétta það, sem kom fram í ræðu hv. 3. þm. Vesturl.