02.02.1967
Sameinað þing: 21. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1842 í B-deild Alþingistíðinda. (1612)
Framkvæmd vegáætlunar 1966
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Ég hagaði máli mínu svo áðan, að ég gerði ekki ráð fyrir, að neinar deilur yrðu um það, sem ég þá sagði. Ég benti aðeins á augljósar staðreyndir, verkefni, sem Alþ. kæmist ekki fram hjá, þegar þetta mál verður til meðferðar síðar á þessu þingi, en var ekki með ádeilur, hvorki á hæstv. ráðh. né aðra og gerði þess vegna ekki ráð fyrir því, að umr. yrðu um málið. En ég kemst ekki hjá því, út af því, sem hæstv. ráðh. sagði, að gera hér nokkra aths. við og sé heldur enga ástæðu til annars heldur en það verði gert. Út af því, sem hæstv. ráðh. sagði hér um það, sem ég hafði eftir vegamálastjóra um prósentuna af fénu til þjóðvega og brúagerða, vil ég leyfa mér að lesa orðrétt upp úr bréfi, sem vegamálastjóri sendi samgmn. hv. Ed. hinn 30. marz 1966, eins og ég gat um áðan. Þar segir svo orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Á undanförnum 4 árum hefur verið unnið töluvert að vegaframkvæmdum fyrir lánsfé til langs tíma, og námu slík lán um s.l. áramót 268 millj. kr. Þar af voru 229 millj. kr. vegna Reykjanesbrautar. Hitt eru lán vegna Ólafsvíkurvegar um Enni, Siglufjarðarvegar um Stráka, Ólafsfjarðarvegar um Múla og nokkrir vegir samkv. Vestfjarðaáætlun. Vextir og afborganir þessara lána munu því nema í ár 44.3 millj. kr. eða 54% af því fé, sem á vegáætlun í ár verður varið til nýrra þjóðvega og brúagerða:“
Þetta er að finna í þessu bréfi og eru ekki mín ummæli, heldur vegamálastjóra. Og ég veit ekki betur en þær skýrslur og þau gögn, sem hann hefur lagt fyrir hér á hv. Alþ., hafi mátt taka alvarlega og treysta fullkomlega og ég vona, að svo sé einnig í þessu tilfelli og svo ekki meira um það. Hæstv. ráðh. sagði, að það mætti láta vegasjóðinn bera sig með því að gera nógu lítið og vildi láta liggja að því, að ég hefði verið að deila á framkvæmdirnar. Ég var ekki með neinar ádeilur hér áðan á eitt né neitt og sízt af öllu á framkvæmdirnar. Ég var hins vegar að benda á þær staðreyndir, að við skulduðum meira í hraðbrautum og þjóðbrautum heldur en allri þeirri upphæð nemur, sem við hefðum eytt í stórátak eins og Keflavíkurveginn. Þessi vegur kostar í árslok 1966 276 millj. kr., en við skuldum í hraðbrautum og þjóðbrautum 307 millj. kr. Við höfum því af eigin fé gert þar minna en ekki neitt. Það er þetta, sem ég sýndi fram á, að yrði að horfast í augu við, því að við gætum ekki leyst verkefnið án þess að hafa til þess næga fjármuni.
Hæstv. ráðh. vildi enn einu sinni fara inn á það, að lítið hefði verið gert í vegamálunum áður í tíð Framsfl. Ég hef áður bent hæstv. ráðh. á það, en tel ekki eftir mér að endurtaka það, að vegakerfið í landinu var byggt upp á tímabilinu 1927–1958. Á því tímabili réð enginn flokkur meiru í landsmálum heldur en Framsfl. Enginn flokkur átti vegamálaráðh. lengur en Framsfl. Það er því vegakerfið í landinu, sem Framsfl. hafði forustu um að byggja upp, en núv. vegamálastjórn getur ekki látið viðhalda því. Þetta eru staðreyndir, og ég get endurtekið þær eins oft og hæstv. ráðh. óskar. Þá spyr hæstv. ráðh.: Af hverju á að gera meiri kröfur til vegagerðar í landinu nú heldur en áður? Af hverju á að gera þá kröfu til ríkisstj., að hún taki á verkefnunum, sem eru til viðfangs á þeim tíma, sem hún situr? Það er eðlilegur hlutur, að hver ríkisstj. á að fást við þau verkefni, sem eru til úrlausnar á þeim tíma, sem hún situr, en ekki verkefni, sem voru hjá þeim ríkisstj., sem sátu áður. Það skiptir máli, hvort bílafjöldinn í landinu er 10 þús. eða 40 þús. Það þarf betri vegi og sterkari vegi, þegar bílafjöldinn er orðinn 40 þús. heldur en þegar þeir voru 10 þús. Það þarf líka betri vegi og sterkari vegi, þegar vöruflutningar fara meira og minna inn á landleiðir, eins og nú er orðið. Það þarf líka betri vegi og sterkari vegi, þegar bílarnir stækka ár frá ári, eins og nú á sér stað. Og það er líka ástæða til að gera meiri kröfur til hæstv. ríkisstj. nú heldur en áður, vegna þess að Alþ. hefur afgreitt oftar en einu sinni nýja hækkun á tekjustofnum til vegagerðarinnar í landinu, 100 millj. 1963 og 50–60 millj. 1965. Auk þess er það á allra vitorði, að á árunum fram til 1955 varð ríkissjóður að leggja fram af öðrum tekjustofnum fé til vegagerðarinnar í landinu en þeim, sem kom frá vegagerðinni sjálfri, en nú fær ríkissjóður, það er sannanlegt, stórkostlegar fjárhæðir, vegna þess að það eru vegir í landinu og bílar, sem fara um þá.
Hæstv. ráðh. sagði, að þetta væru nú mismunandi tölur eftir því, hvort ég væri á skeiði eða öðrum gangi í ræðum mínum. Nú hélt ég, að tölurnar, sem ríkissjóður hefði af umferðinni í landinu, færu ekki eftir því, hvernig mér tækist ræðuflutningur og ég er orðinn meiri áhrifamaður heldur en ég hélt mig vera, ef svo er. Ég hef hins vegar haldið mig við staðreyndir, og þá hef ég sýnt fram á það, að ríkissjóður hafði minni tekjur af umferðinni í landinu 1958 heldur en 1960 og meiri tekjur 1962 heldur en 1960, meiri tekjur 1964 heldur en 1962 og meiri tekjur 1966 heldur en 1964, vegna þess að bílunum hefur fjölgað stórkostlega. Þetta eru einfaldir hlutir. Og þá fer það svo, að ríkissjóður fær þeim mun meiri tekjur, sem bílunum fjölgar og t.d. ef hæstv. ráðh. vildi líta á fjárl., en hætta að hugsa um, hvernig mér tekst ræðuflutningur, getur hann séð það, ráðh., að fjmrh. ætlar sér meiri tekjur af bílainnflutningi 1967 heldur en 1966 og meiri 1966 heldur en 1965, í leyfisgjöldunum einum. En hvað heldur hæstv. ráðh. að sé þá í tolltekjunum, söluskattinum, sem hann hefur af bílunum og varahlutum til þeirra?
Hæstv. ráðh. sagði, við eigum ekki að tala um vegamál upp á grín. Nei, við eigum ekki að tala um vegamál upp á grín. Vegamálin eru að verða mikið alvörumál. Skýrslan, sem ráðh. er að tala fyrir hér, segir, það eru orðnir vissir vegir á landinu, sem ekki er hægt að viðhalda sem malarvegum. Ef hæstv. ráðh. fer hér upp að Álafossi, finnur hann, að það er sjaldnast fær vegur. Umferðin er orðin svo mikil, að það er ekki hægt að halda þeim vegi við, og það þýðir ekki að tala upp á grín. Ef vegaviðhaldið í landinu, þróunin í því verður álíka næstu 2 ár og hefur verið síðustu 2 ár, brestur það. Hvernig halda hv. alþm., að hægt sé að láta nýju stóru bílana, sem eru að koma inn á vegina, fara inn á gömlu brýrnar eins og brýrnar undir Hafnarfjalli og í Seleyrargilinu, sem hrundi til hálfs í sumar? Hvað halda hv. þm., að verði mörg ár þangað til margar brýr sligast niður eins og þessar brýr gerðu í sumar? Það er ekki hægt að tala um vegamál upp á grín, því að þau eru staðreynd. Og það er ekki hægt annað en að tala um verkefnin, eins og þau liggja fyrir nú, en ekki eins og þau lágu fyrir, fyrir 20–30 árum. Þeir, sem þá sátu í ráðherrastólunum, Framsóknarráðh., leystu verkefnin þá og byggðu upp vegakerfið í landinu.
Nú segi ég: Það á að krefjast þess af hæstv. ríkisstj., sem hefur haft miklu meiri tekjur af umferðinni en nokkur önnur ríkisstj. og leyfir sér að taka í almenna eyðslu ríkissjóðs nokkur hundruð millj. kr. af vegamálum í landinu, að það sé séð fyrir verkefnunum eins þau liggja fyrir og ekki tekið á vegamálunum, eins og sé tekið á þeim upp á grín. Þetta eru alvörumál, sem þjóðin kemst ekki hjá að taka á með eðlilegum hætti, þó að hæstv. ráðh. reyni að tala um þau mál upp á grín, það mun enginn skilja það tal hans.