02.02.1967
Sameinað þing: 21. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1846 í B-deild Alþingistíðinda. (1614)

Framkvæmd vegáætlunar 1966

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Ég bar fram fáeinar fsp. til hæstv. ráðh. áðan, þarf nú ekki að endurtaka það að vísu, en þær voru hvers vegna hafði verið frestað framkvæmdum, þar sem fjárveiting var fyrir. Hann sagði, að þetta hefði ekkert verið lagt fyrir ráðh. og ég gæti eiginlega spurt vegamálastjóra að þessu. Við erum að ræða skýrslu, sem ráðh. leggur fyrir Alþ., og við eigum þess vegna að spyrja ráðh., en það er ekki hægt að vísa okkur til einhverra embættismanna úti í bæ. Þetta er skýrsla hans og því er eðlilegt, að við spyrjum hann um eitt eða annað úr þeirri skýrslu. Nú getur vel verið, að það sé svo hvað snertir Súgandafjarðarveg, að það sé af hagkvæmnisástæðum eins og ráðh. var að gizka á, hann vissi það ekki, að þar er frestað 400 þús. kr. framkvæmd. En hvernig stendur á þessu með Svalvogaveg, þar sem helmingurinn af upphæðinni er búinn að liggja, að ég ætla, í 3–4 ár óhreyfður og ekki hreyft við veginum? Hvaða hagkvæmnisástæður eru það? Eða hvað á að liggja lengi með slíkar fjárveitingar, fyrst þær eru veittar? — Hann minntist ekkert á Snæfjallastrandarveginn. Ég held því fram og ég endurtek það, að ég sé ekki betur af skýrslu ráðh. sjálfs en það hafi verið tekið nýbyggingarfé til viðhalds og afleiðingin sú, að ólagður er vegurinn frá Mórillubrú út að Lónseyri, af því að féð hafi verið tekið í viðhald. Og ég hef fyrir mér orð skýrslunnar sjálfrar, þar sem segir: „Varnargarðar við Mórillu voru styrktir og vegur sunnan brúarinnar endurbættur.“ Þetta er hreint viðhald, og í þetta hefur hér um bil öll fjárveitingin farið, en vegurinn ólagður frá brúnni og út að Lónseyri. Ég er ekki að krefjast þess, að hæstv. ráðh. svari þessu núna. Ég veit, að það er óþægilegt fyrir hann að eiga að gera það, aðeins að hann svari því síðar á þinginu, t.d. þegar vegalög koma aftur til umr., þá er ég ánægður. Það er ekki hægt að ætlast til þess, að hann geti svarað þessu öllu fyrirvaralaust, það skal ég fúslega viðurkenna.

Út af þeirri skýrslu, sem ég tel nauðsynlegt, að þm. fái, um hvernig viðhaldsfénu hefur verið skipt milli einstakra byggðarlaga eða aðalvega, svo og fé því, sem varið væri í snjómokstur, er það sama um að segja. Ráðh. tekur þessu vel, hann hefur gert það áður, hann hefur tekið því vel og talið mjög eðlilegt, að þm. fengju slíkt yfirlit. Hann segir það sama enn. Hann segist hafa rætt um það við vegamálastjóra. Vegamálastjóri segir, að það sé ekkert á móti því. En á hverju stendur? Það kemur hver skýrslan á fætur annarri fyrir Alþ. Aldrei bólar á nokkurri grg. yfir þetta. En nú tek ég orð hæstv. ráðh. þannig, að hann ætli að sjá um, að við fáum síðar á þessu þingi yfirlit yfir þetta, hvernig viðhaldsféð hefur skipzt og hvernig fé hefur verið varið á einstaka vegi eða byggðarlög við snjómokstur.