13.04.1967
Neðri deild: 65. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1849 í B-deild Alþingistíðinda. (1619)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Jón Skaftason:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir að gefa mér tækifæri til þess að beina einni fsp. til hæstv. viðskmrh. En þannig er mál með vexti, að á Alþ. 23. febr. 1966 var samþ. þáltill. frá mér og nokkrum öðrum flokksbræðrum mínum um markaðsrannsóknir og sölustarfsemi í þágu útflutningsatvinnuveganna svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta athuga í samráði við fulltrúa atvinnuveganna á hvern hátt megi efla markaðsrannsóknir og markaðsleit í þágu útflutningsatvinnuvega þjóðarinnar og verði niðurstöður þessarar athugunar lagðar fyrir næsta reglulegt Alþ.“
Ég geri ráð fyrir og veit raunar, að rannsókn þessari af hálfu rn. er fyrir nokkru lokið, og vil því fara þess á leit við hæstv. ráðh., að hann skýri hv. d. frá niðurstöðum hennar.