11.04.1967
Neðri deild: 64. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1852 í B-deild Alþingistíðinda. (1621)

Fundarsókn þingmanna

forseti (SB):

Að gefnu tilefni vill forseti minna á 1. mgr. 33. gr. þingskapa, en þar segir:

„Skylt er þm. að sækja alla þingfundi, nema nauðsyn banni. Forföll skal tilkynna forseta svo fljótt sem unnt er og metur hann nauðsynina. Heimilt er forseta að veita þm. brottveruleyfi, þó eigi lengur en tvær nætur að nauðsynjalausu, nema deildin samþykki.“

Vænti ég, að hv. þdm. leggi sér þetta ákvæði á minni, og mæti vel og stundvíslega á fundum hv. þd. það, sem eftir er þingtíma.