01.02.1967
Sameinað þing: 20. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1857 í B-deild Alþingistíðinda. (1629)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
forseti (BF):
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 31. jan. 1967.
Skúli Guðmundsson, 1. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna veikinda, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, taki sæti á Alþ. í forföllum mínum.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Sigurður Bjarnason,
forseti Nd.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Varamaður hv. 1. þm. Norðurl. v., Jón Kjartansson, hefur áður setið á þingi og kjörbréf hans verið rannsakað. Tekur hann nú sæti á þinginu í forföllum Skúla Guðmundssonar, og býð ég hann velkominn til þingstarfa.