17.12.1966
Sameinað þing: 19. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1867 í B-deild Alþingistíðinda. (1662)
Þingsetning
Eysteinn Jónsson:
Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir hans í garð okkar alþm. Ég vil þakka honum fyrir árið, sem er að líða. Ég vil óska honum og hans fólki alls góðs á því ári, sem senn hefur göngu sína. Ég óska honum gleðilegra jóla og góðrar heimferðar og vona, að við eigum eftir að sjá hann hér heilan á húfi, þegar við tökum til starfa á ný á næsta ári.
Ég bið þingheim að taka undir þessi orð og þessar óskir í garð hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]