01.02.1967
Sameinað þing: 20. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1868 í B-deild Alþingistíðinda. (1666)
Þingsetning
forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Hinn 23. janúar 1967 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:
„Forseti Íslands gerir kunnugt:
Ég hef ákveðið, samkv. till. forsrh., að Alþingi, 87. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfundar miðvikudaginn 1. febrúar 1967, kl. 14.00.
Gjört að Bessastöðum, 23. janúar 1967.
Ásgeir Ásgeirsson.
Bjarni Benediktsson.
Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfundar.“
Samkv. þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþ. gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.