21.03.1967
Efri deild: 56. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1869 í B-deild Alþingistíðinda. (1668)

Þinghlé

forseti (SÓÓ):

Þetta verður síðasti fundur þessarar hv. d. fyrir páskahlé. Næsti fundur d. verður að öllu forfallalausu fimmtudaginn 6. apríl n. k. á venjulegum fundartíma og verður boðaður með dagskrá þá. Ég vil geta þess, hv. þdm. til athugunar, að gert er ráð fyrir, að þingfundir verði einnig 7. og 8. apríl, þ. e. föstudag og laugardag.

Ég óska ykkur öllum, hv. þdm., og fjölskyldum ykkar gleðilegrar páskahátíðar. Sömu óskir færi ég skrifstofustjóra og öðru starfsfólki Alþ. og fjölskyldum. Þm. utan af landi óska ég góðrar heimferðar og ónægjulegrar heimkomu. Og hittumst svo heil að þinghléi loknu.