21.03.1967
Neðri deild: 58. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1870 í B-deild Alþingistíðinda. (1672)
Þinghlé
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta hlýjar óskir í garð okkar þingmanna. Þá vil ég fyrir hönd þdm. þakka forseta gott samstarf og réttláta og röska fundarstjórn. Og það veit ég einnig, að ég mæli fyrir munn okkar allra þdm., að við óskum forseta og fjölskyldu hans gleðilegrar páskahátíðar og honum góðrar heimkomu. Og þess óskum við að lokum, að við megum allir heilir hittast, þegar þingið kemur aftur saman til starfa að loknu páskahléinu.
Ég vil biðja hv. þdm. að taka undir þessar þakkir mínar og óskir til forseta með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]