19.04.1967
Sameinað þing: 39. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1874 í B-deild Alþingistíðinda. (1681)
Þinglausnir
Eysteinn Jónsson:
Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð hans í garð þm. og árnaðaróskir. Ég flyt hæstv. forseta beztu þakkir fyrir ágætt samstarf á fundum Sþ. og góða samvinnu við þinghaldið. Ég flyt einnig hæstv. forseta og fjölskyldu hans hinar beztu árnaðaróskir okkar allra, óska honum góðrar heimferðar og gleðilegs sumars. Ég veit, að ég mæli þessi orð fyrir munn allra, hv. alþm., og ég vil biðja þá að staðfesta það með því að risa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]