31.10.1966
Neðri deild: 9. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í C-deild Alþingistíðinda. (1720)

25. mál, verðjöfnunargjald af veiðarfærum

Björn Pálsson:

Herra forseti. Frv. það um verðjöfnunargjald af veiðarfærum, sem hér liggur fyrir til 1. umr., felur í sér, að það á að leggja 2% gjald á innflutt veiðarfæri til að styðja innlendan veiðarfæraiðnað. Ég er á móti þeirri stefnu, sem frv. felur í sér, og ég sé út af fyrir sig ekki, að það sé verjanlegt að framkvæma þetta í veiðarfæraiðnaðinum, nema það sé tekið upp í fleiri iðngreinum.

Það er alveg hárrétt, sem kom hér fram hjá síðasta ræðumanni, ef á að fara að skattleggja innflutt veiðarfæri til þess að styðja innlendan veiðarfæraiðnað, er hægt að taka þannig yfirleitt allar iðngreinar í landinu. Hv. síðasti ræðumaður nefndi skipin. Það er hægt að taka allt saman. Það er t.d. kexið. Kexverksmiðjur eiga í erfiðleikum núna, af því að rýmkað var um innflutning á kexi. Væri þá ekki ráð að leggja eitthvert innflutningsgjald á innflutt kex til að hjálpa kexverksmiðjunum, sem fyrir eru? (Gripið fram í.) Það eru háir tollar á því, það er alveg rétt. En það er líka ekki eins nauðsynleg vara og framleiðsluvörur sjávarútvegsins. Það er hægt að taka súkkulaði. Það væri hægt að taka landbúnaðarvörur ýmsar. Og það væri hægt að taka fataiðnaðinn, hann á í mjög miklum erfiðleikum. Það er satt, það eru háir verndartollar á þessu, en þeir vilja ekki duga til. Verðbólgan er að verða þetta mikil. En ég skal taka það fram, að eftir þeim kynnum, sem ég hef af innflutningi hér á landi, þá held ég, að það sé veiðarfærainnflutningurinn, sem hefur verið einna frjálsastur, og við höfum getað þrýst meira niður verði á honum en á flestum öðrum vörum. Ég held, að verzlun með veiðarfæri sé í raun og veru betur rekin en viðskipti með flestar aðrar vörur hér á landi.

Við þurfum ekki að ímynda okkur, eins og sakir standa nú, að þá muni verðlag á veiðarfærum hækka mikið, þó að Hampiðjan starfi ekki. Ég segi þetta ekki af því, að ég sé á móti Hampiðjunni, en af því að samkeppnin milli hinna ýmsu landa er svo gífurlega hörð, að það hefur ekki áhrif. Hitt skal ég viðurkenna og dreg ekki í efa, að Hampiðjan gerði mikið gagn á stríðsárunum, og ég álít, að við eigum að styðja Hampiðjuna.

Ég er hæstv. iðnmrh. ekki sammála um það, að við eigum að vinna að því, að hér rísi upp margar veiðarfæragerðir. Það er allt að stækka ílandinu, og við eigum að gera okkur það alveg ljóst, að iðnaður, sem rekinn er í stórum stíl, hefur betri aðstöðu til að kynna sér tæknilegar breytingar og verður öflugri í samkeppninni heldur en einhverjar smáiðngreinar. Það er ekki þar fyrir, að það getur verið fleiri en ein veiðarfæragerð í landinu með mismunandi tegundir, en það ætti að vera heilbrigðara og ódýrara að hafa þær fáar og stórar heldur en margar og litlar. En aðalatriðið er, að ég er á móti stefnunni, sem hér kemur fram. En auk þess er ég á móti nýjum álögum á þann atvinnurekstur þjóðarinnar, sem svo að segja allar gjaldeyristekjur þjóðarinnar hvíla á og þar með afkoma okkar og við vitum að berst í bökkum, að hægt sé að reka, eins og viss hluti af bátaflotanum.

Í tíð núverandi stjórnar hafa ýmsar álögur verið lagðar á sjávarútveginn, og ég álít, að það hefði verið eðlilegra og nær að reyna að létta þeim af heldur en bæta öðrum nýjum við. Það var lagður á svokallaður launaskattur til þess að hjálpa fólki að byggja hús hér í bænum. Ég álít, að bankakerfið eigi að annast þessa hluti, en eigi ekki að leggja það á útgerðarmenn og á báta, sem ekki geta staðið í skilum. Ég veit ekki, hvernig innheimtan gengur með þennan launaskatt, en ég er sannfærður um, að hann hefur ekki verið borgaður á réttum gjalddögum, og er raunar alveg sannfærður um, að talsvert af honum er vangreitt og það af getuleysi. Það var farið að leggja aðstöðugjöld á bátana. Gjaldið er raunar ekki ýkjahátt,en það á að leggja það á rekstrarkostnaðinn, þannig að þeir bátar, sem tapa allverulegum upphæðum, verða að borga aðstöðugjöld. Þetta er vitanlega óeðlilegt að leggja bein gjöld á fyrirtæki, sem eru rekin með verulegu tapi. Og það eru ýmis fleiri gjöld, sem hafa verið lögð á þá, þó að ég nefni þetta alveg sérstaklega.

Það væri eðlilegra að reyna að laga ýmislegt viðvíkjandi sjávarútveginum heldur en að bæta á nýjum og fáránlegum útgjöldum. Við getum bara tekið ákvæði í lögum eins og það, að útgerðarmenn verða að borga vélamönnum og skipstjórum og yfirleitt öllum, ef einhver veikist, í þrjá mánuði hlut, en ekki tryggingu. Og það má geta nærri, ef um yfirmenn á skipum er að ræða, hversu gífurlegar upphæðir þetta geta orðið. Svona atriði þyrfti ríkisstj. að beita sér fyrir að yrðu löguð. Það er ekki til neins fyrir okkur, sem erum hér í stjórnarandstöðunni, að koma með frv., við vitum það. En þessu ætti ríkisstj. að beita sér fyrir. Og satt að segja finnst mér það að leggja viðbótarskatt, eins og þetta er, þetta er ekkert annað en 2% skattur á innflutt veiðarfæri, sem kemur á alla bátana, — mér finnst þetta dálítið hliðstætt því, þegar hvolpar eru að elta sína eigin rófu. Þetta kemur vitanlega fram í því, að það verður bara að styrkja bátaútveginn þeim mun meira úr ríkissjóði, og hvað er þá unnið við þessa hringrás? Væri þá ekki eðlilegra, að ríkið á einhvern annan hátt reyndi að hjálpa Hampiðjunni, svo að hún gæti verið rekin áfram? Það eru ótal leiðir til. Það eru hagstæð lánakjör og ýmislegt fleira, sem gæti komið til greina. Það er lagður 4% innflutningstollur á veiðarfæri. Væri nú ekki ráðlegt til þess að auka ekki við ýmis útgjöld, sem sjávarútvegurinn verður að borga, alveg óskyld útgjöld, eins og t.d. launaskattinn, — væri þá ekki ráð að taka eitthvað af þessum 4% til að hjálpa Hampiðjunni án þess að bæta nýjum útgjöldum við, eða þá bara með beinum ríkisstyrk eða láta fiskimálasjóð hjálpa henni eða eitthvað slíkt? Útvegurinn verður að borga til fiskimálasjóðs árlegt framlag. Ég veit ekki, hvort hann gerði neitt þarfara. Ég álít nauðsynlegt að efla innlenda veiðarfæragerð, og við eigum að gera það. Við eigum ekki að láta Hampiðjuna velta um. En það er bara hægt að fara ýmsar aðrar leiðir en að bæta nýjum útgjöldum á bátaútveginn, sem mikill hluti hans er alls ekki fær um að inna af hendi. Ég held satt að segja, að með þann útveg, sem þarf hjálpar við, sé réttara að reyna að létta af honum útgjöldum heldur en bæta nýjum við.

Einn af stærstu útgerðarmönnum hér við Faxaflóa sagði mér, að hagræðingarféð, sem hann fengi, færi til að greiða launaskattinn. Hvað eiga svona ráðstafanir að þýða? Væri ekki alveg eins gott að sleppa því að leggja þennan launaskatt á fiskiðjuverin og útveginn og lækka hagræðingarféð? Það er atriði, sem við þurfum að taka til gaumgæfilegrar athugunar, hvernig við getum gert rekstrarkostnaðinn minni fyrir atvinnuvegina, en ekki alltaf að vera að hækka hann.

Það birtist nýlega í víðlesnu blaði hér, að það væri hægt að lækka fóðurbætinn um 1500 kr. á tonn með því að gera hagfelldari innkaup og með frjálsum viðskiptum. Nákunnugur maður sagði mér, að það væri hægt að ganga lengra, ef innflutningurinn væri gefinn frjáls, lækka hann um 2000 kr. tonnið. Hvað haldið þið, að svona lagað þýði fyrir landbúnaðinn? Ætli það þyrfti ekki að taka áburðinn alveg eins, sem er nú sá fáránlegasti hlutur, sem við verðum að kaupa?

Það er ekki kominn hér listi yfir númerin á þm., svo að maður verður að nefna þá með nöfnum, en ég er ekki svo minnugur, að ég muni númerið á þeim öllum, — ég vil sérstaklega þakka Matthíasi Bjarnasyni fyrir ræðu þá, sem hann hélt hér, því að það þarf einurð og skörungsskap til þess að rísa úr sæti sinu og tala móti sinni eigin stjórn. Það færi betur, að það væru fleiri, sem hefðu einurð og kjark til að stinga við fótum, ef á þyrfti að halda, það yrðu þá færri vitleysur gerðar á þessu þingi en hafa verið gerðar undanfarin ár.

Ég held satt að segja, að hæstv. ríkisstj. hafi nóg ráð til þess að hjálpa Hampiðjunni, þó að það sé ekki farin sú leið að búa til nýja skatta, sem sú útgerð á að greiða, sem ber sig ekki, eins og nokkur hluti af bátaflotanum gerir. Annars vil ég taka það fram, að ég hef alltaf síðan ég var dálítill drengur heyrt það, að útvegurinn bæri sig ekki. Við megum ekki taka það allt of alvarlega, þótt þessar raddir séu uppi. Þær hafa alltaf verið uppi. Sannleikurinn er sá, að nokkur hluti af bátaflotanum skilar góðum arði. Það eru þau síldarskipin, sem afla vel, og það væri þá miklu nær að breyta skattakerfinu þannig, að þessi skip, sem kæmu út með miklar tekjur, greiddu einhvern hluta af þeim í ríkissjóð, heldur en fara að leggja aðstöðugjald á báta, sem eru reknir með tilfinnanlegu tapi. Það ætti að breyta þessum ákvæðum í skattalögunum. En hitt vitum við, að ef sjávarafurðir hætta að hækka, en tilkostnaður allur heldur áfram að verða meiri og meiri, rekur náttúrlega að því, að hlutirnir bera sig ekki hjá öllum þorra skipanna. Ef dregur stórlega úr síldaraflanum eða hann hverfur að miklu leyti, sjáum við, hvar þau eru á vegi stödd, þessi skip, sem hafa verið byggð eingöngu til að afla síldar.

Ég skal svo ekki fjölyrða meira um þetta núna. Ég mun greiða atkv. á móti þessu frv., og ég álít, að það séu nógar aðrar leiðir til að styðja rekstur Hampiðjunnar, þó að það sé ekki bætt við nýjum sköttum á þau atvinnufyrirtæki, sem geta ekki risið undir þeim sköttum, sem fyrir eru.