03.11.1966
Neðri deild: 11. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í C-deild Alþingistíðinda. (1735)

25. mál, verðjöfnunargjald af veiðarfærum

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Það er út af uppástungu hæstv. ráðh. Ég verð að segja, að mér finnst ekki ástæða til þess að fara að kjósa sérstaka þn. til þess að fjalla um þetta mál, mér sýnist það ekki vera þannig vaxið, og ef nú ætti að fara að kjósa sérstaka þn. til þess að fjalla um þetta mál, hygg ég, að þær gætu orðið æðimargar, um það er lýkur, ef þá stefnu ætti að taka upp, því að það eru mýmörg mál, sem snerta ýmsar greinar, og verður auðvitað að gera það upp hverju sinni, að þau fari til einhverra fastanefnda Alþ. Mér fyndist eðlilegt, að þetta mál færi til sjútvn. Mér sýnist það vera vafasöm stefna að fara að stinga upp á því að fjölga þn., jafnvel þó að það kunni að vera svo, að mönnum líki ekki við einhverja. sem eru í þeim n., sem að réttu lagi ættu að fá málin.