25.10.1966
Neðri deild: 7. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í C-deild Alþingistíðinda. (1742)
33. mál, lausn deilu framreiðslumanna og veitingamanna
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Hv. 5. þm. Vestf. var nú hér með orðaleik. Vera má, að hann telji það skyldu sína að snúast gegn þessu frv. og loka augum og eyrum fyrir rökum og því, sem er áþreifanlegt.
Hv. þm. undrast það, að dómurinn skuli ekki vera uppkveðinn, gerðardómurinn ekki búinn að ljúka störfum. Því getum við náttúrlega ekki ráðið í ríkisstj. Ég geri ráð fyrir, að það efist enginn um, að þetta séu valinkunnir menn, sem voru valdir í dóminn af hæstarétti, og í dag upplýsti formaður dómsins, að störfum væri ekki lokið, en langt á veg komið.
Það er gert ráð fyrir, að þessi lög falli úr gildi 1. febr. 1967, þannig að sá tími líður nú, og framreiðslumenn geta þá eftir þann tíma hafið baráttuna að nýju, ef þeim býður svo við að horfa. En fullyrðing hv. þm. um það, að ekki hafi borið brýna nauðsyn til að setja lögin, fær ekki staðizt. Ég tel brýna nauðsyn að setja brbl., þegar þjóðarhagsmunir eru í veði, og ferðamálin voru sett í hættu, ef deilan hefði ekki verið leyst. Þær gjaldeyristekjur, sem þjóðin hefur nú af ferðamönnum, hefðu stórkostlega rýrnað, og sú atvinna, sem fjöldi manna hefur af þjónustu við ferðamenn, hefði lítil orðið á þessu sumri, ef ekki hefði verið skorið á þennan hnút. Það ber brýna nauðsyn til að koma í veg fyrir slíkt, því að okkar þjóð veitir ekki af að nota og nýta þá möguleika, sem fyrir hendi eru til tekjuöflunar. Og ég segi enn: Þessum lögum er ekki beint gegn öðrum aðilanum. Þessi lög eru sett til þess að leysa deiluna. Enginn veit, hver niðurstaða dómsins verður. Verði niðurstaða dómsins framreiðslumönnum í vil, en á móti veitingamönnum, gegn hverjum hafa þá þessi lög snúizt? Segjum það, að niðurstaða dómsins verði á þá leið, að framreiðslumennirnir fái í aðalatriðum það, sem þeir gerðu kröfu til að fá, en veitingamennirnir verði að láta það samkv. dómnum, sem þeir vildu ekki sleppa. Þess vegna er ekki hægt að segja, að þessum lögum sé beint gegn öðrum aðilanum. Lögin eru sett til þess að leysa deiluna, og lögin eru sett af samgmrh. í góðu samkomulagi innan ríkisstj., vegna þess að samkv. forsetaúrskurði heyra gistihúsin og ferðamálin undir samgmrh.
Það hafa verið sett hér lög til lausnar deilu flugmanna. Það kom í hlut samgmrh., vegna þess að flugmálin heyra undir hann. En ég undrast, að hv. 5. þm. Vestf. skuli gera þetta að svo miklu umtalsefni, því að það ætti að liggja í léttu rúmi frá hans sjónarmiði, hvort það var hæstv. félmrh. eða ég, sem gaf út brbl. En ég hygg, að hæstv. félmrh. sé alveg reiðubúinn að viðurkenna það, að hann hafi verið samþykkur því, að þessi lög voru út gefin, og hann þarf áreiðanlega engan kinnroða fyrir það að bera.
Þegar hv. 5. þm. Vestf. fullyrðir, að það vanti forsendur fyrir útgáfu þessara laga, að stjórnarskráin hafi raunverulega verið brotin, vil ég vitna til þeirra manna, sem gerst þekkja til þessara mála. Það er ferðamálaráð. Það er Samband ferðaskrifstofa. Það eru flugfélögin. Og engum á að vera kunnara um það en veitingamönnunum, hvort undanþágurnar, sem hv. 5. þm. Vestf. gerði að umtalsefni áðan, hefðu verið fullnægjandi.
Hann talaði mikið um það, hv. þm., að það hefði verið gefin undanþága til þess að halda kveðjuhóf fyrir norræna ungtemplara, það hafði verið gefin undanþága til þess að hafa hóf fyrir gesti borgarstjórans. En jafnvel þótt framreiðslumenn hefðu verið tilbúnir að gefa slíkar undanþágur, alltaf þegar beðið var um veizlur og annað þess konar, dugðu undanþágurnar ekki til þess að veita ferðamönnum þá þjónustu, sem þeir eiga rétt til og nauðsynleg er í ferðamannalandi, sem ætlar að laða að sér gesti. Og ég vil taka hér til vitnis ferðamálaráð, sem ég hygg að hafi að dómi hv. 5. þm. Vestf. unnið gott verk. Þetta er 9 manna ráð, sem hefur mikið um ferðamálin að segja og þekkir þau út og inn, og með leyfi hæstv. forseta, vil ég lesa hér umsögn þess, því að eins og ég sagði áðan, eftir að bréfið kom frá framreiðslumönnum, sem mun hafa verið sent öllum hv. þm., gerði ég ráðstafanir til þess, að þessir aðilar, sem ég vitnaði til áðan, væru spurðir um það, hvort brbl. væru að þeirra áliti út gefin án brýns tilefnis og hvort undanþágurnar, sem hefur verið talað um, hefðu nægt til þess að veita ferðamönnum viðunandi þjónustu. Og ferðamálaráð segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Á 99. fundi ferðamálaráðs tilkynnti formaður ráðsins, að Félag framreiðslumanna hefði sent alþm. orðsendingu vegna brbl. um frestun á þjónadeilu og skipun gerðardóms til að leiða til lykta nefnda deilu. Af nefndu tilefni samþykkti ferðamálaráð eftirfarandi ályktun, jafnframt því sem látið var í ljós þakklæti til hæstv. ráðh. fyrir aðgerðir í miklum vanda, sem hefði getað skaðað þjóðina um milljónatugi,“ segir ferðamálaráð, „og það hefði getað skaðað þjóðina óbeint, sem var miklu meira virði en þessir milljónatugir. Þar sem ferðamálaráði er kunnugt um, að samtök framreiðslumanna hafa sent alþm. álitsgerð vegna aðgerða hæstv. samgmrh. í deilu framreiðslumanna og gisti- og veitingahúsaeigenda á s.l. sumri, leyfir ferðamálaráð sér að taka fram eftirfarandi :
Þegar framkvæmd nefndrar deilu var frestað með lögum og settur á laggir gerðardómur til að komast að niðurstöðu um sanngjarna lausn málsins, hafði skapazt algert vandræðaástand í gisti- og veitingahúsaiðnaði landsins. Verkfall átti að koma til framkvæmda þann 8. júlí. Vitað var þá, að ekki var um raunverulega kaupdeilu að ræða, heldur snerist deilan um önnur og óskyld mál, þ. e. aðallega um fyrirkomulag á vinnustað og hvort notaðir skyldu stimpilkassar í vínstúkum. Ferðamálaráð aflaði sér upplýsinga um gang deilunnar þegar 5. júlí og komst að raun um, að þunglega mundi horfa um lausn hennar. Ef til verkfalls hefði komið hjá framreiðslumönnum, er fyrirsjáanlegt, að slíkt mundi hafa haft í för með sér m. a. eftirfarandi:
Háannatími hjá gisti- og veitingahúsum hérlendis fór í hönd og mundi því vinnustöðvun hafa getað orsakað, að margra ára vinnu í sambandi við aukningu erlendra ferðamanna hingað til lands kynni að vera hætta búin, enda má telja fullvíst, að fréttir í heimspressunni um verkföll í hóteliðnaðinum hér á landi kynnu að hafa þær afleiðingar í för með sér, að ferðamenn mundu breyta ferðaáætlunum sínum og sneiða hér hjá landi. Þetta er einnig álit flugfélaganna. Ef til verkfalls hefði komið, mundi slíkt ekki eingöngu hafa skaðað gisti- og veitingahúsaiðnaðinn, heldur einnig flugfélögin og samgöngutæki á sjó og landi og þar með rýrt gjaldeyristekjur landsmanna. Þá má og vekja athygli á því, að þá daga, sem verkfallið átti að hefjast, var von hingað til lands margra erlendra skemmtiferðaskipa með þúsundir ferðamanna, sem áttu pantaðar veitingar á veitingastöðum í landi. Þá var einnig fyrirsjáanlegt, að margir hinna erlendu ferðamanna, sem ekki búa á fullkomnum hótelum, mundu strax lenda í erfiðleikum vegna verkfallsins, þar eð öll veitingahúsastarfsemi hefði stöðvazt, þar sem framreiðslumenn vinna. Til þess að sanna, að hér var ekki um að ræða deilu um kaup eða kjör, má að lokum geta þess, að ferðamálaráð aflaði sér upplýsinga um, hverjar mundu vera almennastar tekjur framreiðslumanna, og komst að raun um, að þær mundu nema um 25–35 þús. kr. á mánuði, en þessara tekna er í mörgum tilfellum aflað með 3–5 daga vinnuviku.“
Félag ísl. ferðaskrifstofa hefur einnig nokkuð um þetta að segja. En hverjir skyldu vera kunnugastir ferðamálum hér á landi? Hverjir skyldu þekkja ferðamálin betur en þeir, sem hafa veitt ferðaskrifstofum forstöðu um margra ára skeið og fylgzt með þróun ferðamálanna frá upphafi. Félag ferðaskrifstofa segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Félag vort hefur haft spurnir af því, að Félag framreiðslumanna hafi sent alþm. grg. frá félaginu um deilu framreiðslumanna og veitingamanna s.l. sumar og sé því m. a. haldið fram í grg. Félags framreiðslumanna, að brbl. þau, er sett voru 15. júlí þ. á., hafi verið óþörf sakir þess, að undanþágur þær, sem félagið veitti vegna hótelgesta, hafi verið fullnægjandi. Vegna þessa telur félag vort fulla ástæðu til þess að taka fram eftirfarandi:
1. Alkunnugt er, að umrædd vinnudeila snerist ekki um launamál, heldur raunverulega um húsbóndavald á veitingahúsum, sem framreiðslumenn vildu fá að verulegu leyti.
2. Undanþágur þær, sem veittar voru, voru algerlega ófullnægjandi, þar sem þær bundu hvern hótelgest við eitt hótel og jafnvel meinuðu þeim að taka með sér gest, hvernig sem á stóð, nema hann byggi einnig á sama hóteli.
3. Mesti annatími veitingahúsa og ferðaskrifstofa fór í hönd, og hefði óbreytt ástand skapað hrein vandræði við móttöku erlendra ferðamanna, spillt árangri langrar landkynningarstarfsemi og gert íslenzku þjóðina að athlægi út á við hjá öllum þeim, sem frétt hefðu um, að slíkur molbúaháttur viðgengist hér á landi.
4. Afleiðingar verulegrar stöðvunar á því að láta erlendum ferðamönnum í té þá þjónustu, sem þeim hafði verið lofað og þeir jafnvel þegar greitt, hefði valdið því, að ferðum erlendra manna hingað hefði fækkað til muna og það valdið stórum rýrari afkomu íslenzkra ferðaskrifstofa og einnig bitnað á veitingahúsum, flugfélögum, skipafélögum, sérleyfis- og hópferðabifreiðum og leigubifreiðastjórum.
5. Hagsmunir hinna fjölmörgu stétta, sem í húfi voru, sköpuðu að vorum dómi brýna nauðsyn á, að höggvið væri á hnútinn af ríkisvaldinu. Brbl. um lausn deilu framreiðslumanna og veitingamanna voru til þess fallin að afstýra yfirvofandi hættu, og vill félag vort láta í ljós þakkir sínar við samgmrh. fyrir að leysa málið á þennan hátt.“
Þetta segir Félag ferðaskrifstofa, sem gerst þekkir málin, og það fullyrðir, sem er alveg rétt, að ef ekki hefði verið skorið á hnútinn, hefðu hópferðabifreiðar, leigubifreiðar allar, skipafélögin, veitingahúsin og þjóðarbúið í heild misst meginhlutann af þeim tekjum, sem ferðamenn hafa gefið s. 1. sumar. Og þegar þetta liggur fyrir, sýnist ekki vera nokkur vafi á því, að það hafi verið forsendur fyrir útgáfu brbl., að það hafi verið brýn nauðsyn, að það hafi verið skylt að gera það að bjarga hagsmunum þjóðarinnar með þessum hætti, úr því að það var ekki unnt með öðrum hætti. Og ég hygg nú, þegar hv. 5. þm. Vestf. kynnir sér málin, — og það hefði verið gott, ef hann hefði frestað því að tala, þangað til hann var búinn að kynna sér málin, — þegar hann er búinn að kynna sér málin og talar af kunnugleika um þau, þá er ég alveg sannfærður um, að hann er það sanngjarn og það viti borinn, að hann gerir sér alveg glögga grein fyrir því, hvað rétt var, jafnvel þótt hann telji sér skylt að mótmæla með nokkrum orðum hér.
Hann segir, hv. þm., að miðstjórn Alþýðusambandsins sé á sama máli. það getur vel verið, að svo sé, að hún sé á sama máli. En hefur miðstjórnin kynnt sér það, sem ferðaskrifstofurnar hafa að segja, það, sem ferðamálaráð hefur að segja? Ég efast um, að svo hafi verið, þegar samþykktin var gerð, því að það veit ég, að miðstjórn Alþýðusambandsins er ekki í nokkrum vafa um það, að þegar þjóðarhagsmunir eru í veði, ber að bjarga þeim. Það er ég alveg sannfærður um.
Flugfélag Íslands hefur sína skoðun á þessu máli líka og hefur gert sér fulla grein fyrir því, hvers það hefði misst við, ef deilan hefði ekki verið leyst, hvað farþegarnir hefðu orðið miklu færri hjá Flugfélagi Íslands á þessu sumri, hvað tekjur þess hefðu orðið rýrari. En hvaða hv. alþm. vill ekki koma í veg fyrir það, að Flugfélag Íslands tapi miklum tekjum af því að flytja erlenda ferðamenn til og frá landinu? Ekki nokkur þm. Allir þm. vilja hag Flugfélags Íslands.
Svo kemur hv. 5. þm. Vestf. og talar hér alveg öfugt um þessi mál, segir, að það hafi ekki verið nokkur nauðsyn að gefa út brbl., þótt það liggi fyrir, að þjóðarbúið í heild skaðist um tugi millj. og missi, eins og kallað er, andlitið út á við, þó að flugfélögin tapi hundruðum og jafnvel þúsundum farþega og væru með taprekstur, ef málinu hefði ekki verið bjargað. Þá segir hv. 5. þm. Vestf.: Það bar enga nauðsyn til þess að skerast í málið. Það, sem Flugfélag Íslands hefur um þetta að segja, er þetta, með leyfi hæstv. forseta :
„Oss hefur verið tjáð, að því sé haldið fram af Félagi ísl. framreiðslumanna, að brbl. þau, sem bönnuðu verkfall félagsins á s.l. sumri, hafi verið óþörf, þar eð undanþágur þær, sem félagið veitti til þjónustu við erlenda ferðamenn, hafi verið fullnægjandi. Af þessu tilefni viljum við taka fram eftirfarandi:
1. Það er skoðun vor, að hin unga atvinnugrein, móttaka erlendra ferðamanna, sé þegar orðin nokkur styrkur íslenzku atvinnulífi, og verði það í vaxandi mæli, sé rétt á málum haldið.
2. Atvinnuvegur þessi á þó við ýmsa byrjunarerfiðleika að etja í harðri samkeppni sinni við háþróuð lönd á þessu sviði, t.d. vegna takmarkaðrar aðstöðu hérlendis til móttöku ferðamanna, dýrtíðar o. fl. Af þessum sökum og vegna þess einnig, að hér er verið að byggja frá grunni, er það frumskilyrði, ef vel á að takast, að hinir útlendu ferðamenn fái hér góða þjónustu og geti treyst til hlítar gerðum áætlunum.
3. Vér teljum engum vafa undirorpið, að ef verkfall framreiðslumanna hefði haldið áfram, hefði það orðið þessari ungu atvinnugrein, þ. e. móttöku erlendra ferðamanna, til mikils tjóns. Undanþágur framreiðslumanna gátu að vísu forðað hinum erlendu ferðamönnum frá svelti, en það nægði hvergi til þess að koma í veg fyrir margs konar óhagræði, breyttar áætlanir og þar af leiðandi megna óánægju hinna erlendu gesta. Slík óánægja hefði svo haft áhrif til fækkunar erlendra ferðamanna, þegar á s.l. sumri, en einnig á næstu árum, ekki aðeins í sumar, heldur einnig á næstu árum.
Af framangreindum ástæðum er það skoðun vor, að með setningu brbl. hafi verið fyrirbyggt alvarlegt tjón þeirra, sem að þessari starfsemi vinna, beint og óbeint, auk þess sem mannorði þjóðarinnar út á við hafi verið forðað frá hnekki.“
Ég er alveg sannfærður um það, að hv. alþm. viðurkenna Flugfélag Íslands og þjónustumenn þess. Umsögn þeirra og dómur er þess vegna mikils virði fyrir hv. alþm., og hv. 5. þm. Vestf. hefur vissulega tækifæri til þess að skipta um skoðun á þessu máli. Ekki mun ég deila á hann, þótt hann hafi hér komið og talað, áður en hann var búinn að kynna sér málið. Ef hann, eftir að hafa heyrt rökin, kynnt sér allar hliðar og málsatvík, vill hafa það, sem sannara og réttara reynist, vex hann af því, og það getur öllum orðið á að tala af sér. Menn geta flýtt sér stundum of mikið, gleyma því, að það þarf að lesa ýmislegt og kynna sér allar hliðar málanna, áður en farið er að blanda sér í umr.
Loftleiðir eru einnig með umsögn í þessu máli í sambandi við ferðamennina. Þeirra bréf er miklu lengra enn Flugfélagsins, sem stafar kannske af því, að þeir eru ekki aðeins flutningsaðilar, þeir hafa einnig hótel. En einmitt vegna þess að þeir hafa hótel, ættu þeir frekar en aðrir að geta dæmt um það, hvort undanþágurnar, sem voru gefnar, hefðu farið vel og sómasamlega úr hendi. En Loftleiðir hafa um þetta að segja, með leyfi hæstv. forseta:
„Í grg., sem Félag framreiðslumanna sendi dagblöðunum 25. júlí s.l., þar sem mótmælt er brbl.„ er út voru gefin 15. s. m. til lausnar verkfalli og verkbanni, sem til framkvæmda var komið, réttlætir félagið verkfallsréttinn með eftirtöldum rökum :
1. Kröfur félagsins hafi að mestu verið til samræmingar á vinnutilhögun í veitingahúsum.
2. Gefnar hafi verið undanþágur vegna þjónustu við erlenda ferðamenn.“
Rétt er að skjóta hér inn, áður en þessir tveir liðir eru ræddir, að Félag framreiðslumanna hóf verkfall 8. júlí, en næstu daga boðuðu hljómlistarmenn og starfsstúlkur í veitingahúsum samúðarverkfall, sem frestað var síðar um óákveðinn tíma. Það væri fróðlegt, ef hv. 5. þm. Vestf. upplýsti það, hvers vegna þessu samúðarverkfalli var frestað. Það var upplýst, að þetta fólk, sem ætlaði að fara í samúðarverkfall, þegar það fór að kynna sér málefnin og tekjur framreiðslumannanna, þá þótti það ekki eðlilegt að gera samúðarverkfall, og þess vegna var því frestað um sinn eða ótiltekinn tíma, en að áliti flestra frestað að fullu.
„Till. Félags framreiðslumanna varðandi vinnutilhögun hljóðuðu svo:
Veitingamönnum er ekki heimilt að breyta vinnutilhögun frá því, sem verið hefur, eða frá þeirri vinnutilhögun, sem gert er ráð fyrir í samningi þessum, nema um slíkt náist samkomulag milli Félags framreiðslumanna og Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda.
Með slíku ákvæði eru eigendur veitinga- og gistihúsa sviptir í raun réttri stjórn rekstrarins og umráðaréttur á eignum þeirra takmarkaður, en hvort tveggja falið ákvörðunarrétti Félags framreiðslumanna. Í grg. sinni til dagblaðanna telja málsvarar Félags framreiðslumanna, að kröfur félagsins í vinnudeilunni hafi að mestu verið kröfur um samræmingar á vinnutilhögun í veitingahúsum og að látin yrði haldast vinnutilhögun sú, sem tíðkazt hefur með framleiðslumönnum og gefizt vel. Jafnframt er þess getið, að nefnd vinnutilhögun sé enn viðhöfð á því veitingahúsi borgarinnar, sem lengst hefur starfað. Nýmæli má sem sagt engin upp taka af hálfu eigenda þrátt fyrir þá þróun, sem átt hefur sér stað á síðustu árum erlendis í rekstri gistihúsa og þjónustu við ferðamenn, sem íslenzka þjóðin verður að miða við, eigi ekki að fæla erlenda ferðamenn, sem góðu eru vanir, frá landinu. Fram kemur enn fremur í grg., að aðallega amast félagið við stimpilkössum í vínsölum, sem eiga að sýna selt magn og verðlag og tryggja rétt uppgjör við eigendur og gesti þeirra, en slíkir stimpilkassar eru víða notaðir á veitingastöðum erlendis og ryðja sér mjög til rúms. Eigendur veitinga- og gistihúsa munu hafa hafnað slíkum till. framreiðslumanna, og hófu þeir þá verkfall. Er framleiðslumenn hófu verkfall, var boðað samúðarverkfall af hálfu annars starfsfólks veitinga- og gistihúsa, en síðan var verkfalli þessa starfsfólks skotið á frest um óákveðinn tíma. Hins vegar mun stjórn Félags framreiðslumanna hafa veitt nokkrum gistihúsum undanþágu, að því er varðar þjónustu við erlenda ferðamenn, og sum veitingahús fengu undanþágu vegna tilgreindra samkoma eða þinghalda. Félag framreiðslumanna ákvað, hverjir skyldu fá þjónustu og hverjir ekki, en takmarkaði og lamaði með öllu almenna þjónustu veitingahúsa. Undanþágur varðandi takmarkaða þjónustu sköpuðu engan grundvöll fyrir heilbrigðan rekstur fyrirtækjanna né fullnægjandi þjónustu, enda gátu gestir, erlendir sem innlendir, aðeins fengið afgreiðslu í þeim gistihúsum, þar sem þeir bjuggu, en ekki á öðrum veitingastöðum, en slíka þjónustu verður að telja nauðsynlega, enda allt annað vansæmandi fyrir þjóðina í heild. Eigendur veitinga- og gistihúsa töldu starfsgrundvöll með slíku sniði ekki vera fyrir hendi og ákváðu því að loka veitingahúsum sínum fyrir öllum nema erlendum dvalargestum. Þeir ákváðu að loka nema fyrir erlendum dvalargestum, vegna þess að þeir töldu, að þrátt fyrir þessar undanþágur væru húsin að hálfu leyti lokuð og starfsgrundvöllur væri ekki fyrir hendi.
Setning brbl. nr. 79 15. júlí 1966 um gerðardóm var þannig aðkallandi og óumflýjanleg nauðsyn til þess að forða, að spillt yrði árangri af allri landkynningarstarfsemi þess opinbera, einkafyrirtækja og einstaklinga, enda vorn slíkir almennir hagsmunir þjónustufyrirtækja, framleiðenda og annarra einstaklinga svo í húfi, að allur dráttur á lagasetningu hefði getað leitt til óbætanlegs tjóns og álitshnekkis fyrir þjóðina í heild og þá ekki sízt fyrir framreiðslumenn sjálfa, sem hvorki gátu né geta réttlætt verkfall sitt með fullnægjandi rökum, enda stóð deilan ekki út af fyrir sig um launakröfur, svo sem félag þeirra viðurkennir í grg. sinni til blaðanna. Verkfall, sem byggt er á álíka sanngirni og almennri skynsemi og verkfall framreiðslumanna, er hættulegast hagsmunum þeirra sjálfra og launþega í landinu, og til þess eru vítin að varast þau.“
Þetta er nú það, sem Loftleiðir hafa um þetta mál að segja. Oft hefur verið vitnað í Hótel Borg sem fyrirmyndarhótel. og það er það, ég skal ekki draga úr því. En það getur ekki verið fyrirmyndarhótel, nema forustumaðurinn, hótelhaldarinn, sé góður, og það skal ég líka viðurkenna og taka undir, Pétur Daníelsson, en hér er umsögn hans um þetta einnig, og er þá rétt, að hv. alþm. heyri, hvað hann hefur um þetta að segja, ekki sízt vegna þess, að hv. 5. þm. Vestf. hefur vitnað um fyrirkomulagið á Hótel Borg. Pétur Daníelsson segir um brbl., hvort þau hafi verið þörf:
„Ég svara þessari spurningu hiklaust játandi og hef þó í huga rétt verkalýðsfélaga til að beita verkfallsrétti sínum, þegar sá réttur er notaður á réttan og skynsamlegan hátt. En allir ættu þó að geta verið sammála um, að á slíkt hefur skort verulega seinustu árin, og er þjónaverkfallið í sumar eitt áþreifanlegasta dæmið í þessa átt, en þjónar eru hæstlaunaða iðnaðarstéttin hér á landi miðað við vinnutímann, eins og ferðamálaráð upplýsti, 25–35 þús. kr. fyrir 3–5 daga vinnuviku. Veitingamenn buðu þjónunum þær sömu prósentuhækkanir á þá liði í samningum, þar sem slíkt átti við, og þeir höfðu áður boðið og samið um við þrjú önnur stéttarfélög, þ. e. matreiðslumenn, hljómlistarmenn og ófaglært starfsfólk. Þessu höfnuðu þjónarnir. Sannleikurinn er sá, að þjónarnir létu samningana stranda á tveimur atriðum, vinnutilhögun, svo sem fjölda starfsfólks í veitingahúsum, og stimpilkössunum, en þetta eru hvort tveggja atriði, sem ekki eiga að vera til umr. í kjarasamningum. Veitingamenn buðu þjónunum upp á með milligöngu sáttasemjara að fresta samningunum um deiluatriðin fram á þetta haust, en þá áttu ýmsir samningar að renna út. Þessu höfnuðu þjónarnir afdráttarlaust.
Þá er spurt, hvort ekki hefði mátt notast við undanþágurnar. Því er til að svara, að slíkt var allsendis ófullnægjandi. Undanþágur náðu eingöngu til hótelgesta á viðkomandi hóteli. Þannig gat hótelgestur á einu hóteli ekki fengið þjónustu á öðru hóteli eða veitingastað, þar sem þjónar unnu. Einnig má benda á það, að hótelunum hefði verið allsendis ófært að standa undir rekstri fyrirtækjanna með því að reka þau með undanþágum einum saman. Enginn starfsgrundvöllur var fyrir slíku. Benda má í þessu sambandi á, að undanþágurnar voru algerlega háðar duttlungum samtaka þjónanna.
Ákveðinn hópur erlendra ferðamanna, sem hugðist koma til Íslands, hefði hætt við slíkt, hefði þjónaverkfallið haldið áfram. Fundir og ráðstefnur, sem hér átti að halda, hefðu ekki getað fengið fyrirgreiðslu, hefði umrætt þjónaverkfall staðið áfram. Brbl. voru því nauðsynleg til að skera á þann hnút, sem myndazt hafði.
Að lokum má geta þess, að í hópi þjóna hefur heyrzt, að brbl. hafi verið, úr því sem komið var, bezta lausnin til að losa þá úr þeirri úlfakreppu, sem þeir höfðu komið sér í með mörgum af sínum mjög svo ósanngjörnu kröfum.“
Skyldi vera nokkur vafi á því, að Pétur Daníelsson þekki til þessara mála? Og er nokkur, sem efast um það að hans umsögn er af sanngirni gerð? Ég held ekki. En getur það þá verið, að hv. 5. þm. Vestf. ætli að halda áfram að mælast til þess við hv. alþm., að þeir felli brbl. (Gripið frsm í: Ja, það getur verið.) Gæti það verið, að jafnsanngjarn og greindur maður og hv. þm. Eðvarð Sigurðsson gerði það? Ég efast um það. Eða fullyrði enn, eftir að hafa heyrt öll rök, sem mæla með þessu máli, að forsendurnar vanti til útgáfu þessara laga, að það hafi ekki verið nauðsyn að gera það.
Það er hér fleira, sem mætti lesa upp til stuðnings þessu máli, en það má geyma það þangað til frekari ástæða væri til að koma hér upp í ræðustólinn aftur. (EOl: Er ekkert frá Vinnuveitendasambandinu?) Frá Vinnuveitendasambandinu, nei, það er nú ekkert frá því. Það hefur ekki verið spurt um þetta, vegna þess að Vinnuveitendasambandið út af fyrir sig hefur takmarkaða þekkingu á ferðamálum. Ég hef snúið mér til þeirra, sem þekkja sérstaklega til ferðamálanna. Ég hef snúið mér til ferðaskrifstofanna, ég hef snúið mér til ferðamálaráðs, ég hef snúið mér til flugfélaganna, og ég hef snúið mér til Sambands veitingahúsaeigenda, hef vitnisburði þeirra og Péturs Daníelssonar sérstaklega, vegna þess að Hótel Borg hefur verið nefnt sem fyrirmyndarhótel á öllum svíðum í sambandi víð þessa deilu. Og það eru einmitt þeir, sem bezt þekkja til þessara mála, sem eru færastir til að dæma um, hvort það bar nauðsyn til að gefa út brbl. Og dómur þeirra allra er á einn veg. Ég er dálítið undrandi yfir því, að hv. 5. þm. Vestf., og sérstaklega ef það eru nú fleiri, hvernig þeir snúast í þessu máli og tala um það.
Verkfallsrétturinn út af fyrir sig er mikils virði, og það á ekki að ráðast á hann, nema brýna nauðsyn beri til, — alls ekki nema brýna nauðsyn beri til. Útgáfa brbl. er til þess að leysa deiluna, og lögin beinast ekki gegn öðrum aðilanum, heldur gegn báðum aðilum, vegna þess að lögin gera ráð fyrir, að hæstiréttur skipi hlutlausan gerðardóm til þess að leysa deiluna, og það veit enginn, hver niðurstaðan verður af þessum dómi. Hann getur orðið framreiðslumönnum í vil, þá beinast lögin gegn veitingamönnum, hann getur orðið þar mitt á milli, þannig að báðir aðilar uni dómnum, og þá er vel.