07.11.1966
Neðri deild: 12. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í C-deild Alþingistíðinda. (1748)

50. mál, alþjóðasamþykkt um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna

Utanrrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Þetta frv. fjallar um heimild fyrir ríkisstj. til að staðfesta fyrir Íslands hönd alþjóðasamþykkt um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna, sem gerð var í Brüssel 10. okt. 1957. Siglingalögin gömlu, sem sett voru 1914, en giltu allar götur til ársins 1963, voru þýðing á dönskum siglingalögum frá 1892. Um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna voru lögin í samræmi við siglingalög Norðurlandanna, Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, sem sett höfðu verið á árunum 1891–1893. Aðalreglan þar um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna var sú, að á tilteknum kröfum, sem stofnuðust vegna útgerðar skipsins, báru útgerðarmenn aðeins ábyrgð með skipi og farmgjaldi vegna útgerðar skipsins, en ekki með öðrum eignum sínum.

Hinn 35. ágúst 1924 var í Brüssel sett alþjóðasamþykkt um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna. Þar var ákveðið, að hinar takmörkuðu sjókröfur skyldu útgerðarmenn ábyrgjast með verði skips að viðbættum 10%, sem kæmi í stað farmgjalds. Ábyrgðin skyldi þó ekki fara fram úr 8 sterlingspundum fyrir hverja rúmlest skips, þegar eingöngu var um eignatjón að ræða, og ekki fram úr 16 sterlingspundum fyrir rúmlest, þegar jafnframt eða eingöngu kæmu til bætur fyrir lífs- eða líkamstjón. Norðurlandaþjóðirnar, Danmörk, Noregur og Svíþjóð, gerðust aðilar að Brüssel-samþykktinni frá 1924, og þær breyttu á árunum 1928–1929 siglingalögum sínum til samræmis við ábyrgðarreglur hennar. Ísland gerðist hins vegar aldrei aðili að þessari samþykkt. En með núgildandi siglingalögum, nr. 66 frá 1963, voru ákvæði um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna samræmd reglum samþykktarinnar og þágildandi Norðurlandalögum, en þó var ekki tekin upp í siglingal. reglan um, að ábyrgðin takmarkaðist við 8 eða 16 sterlingspund fyrir rúmlest. Samkv. 206. gr. siglingal. er aðalreglan nú sú, að útgerðarmaður ber ábyrgð á hinum takmörkuðu sjókröfum með verði skipsins að viðbættum 10%, þegar bæta skal eignatjón, en með tvöfaldri þeirri fjárhæð, þegar jafnframt eða eingöngu skal bæta lífs- eða líkamstjón.

Nú var ný alþjóðasamþykkt um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna gerð í Brüssel 10. okt. 1957, og það er þessi alþjóðasamþykkt, sem hér er lagt til að Ísland gerist aðili að. Þar er felld algerlega niður reglan um, að útgerðarmenn ábyrgist sjókröfurnar miðað við verð skips að viðbættum 10%. Í stað þess er haldið reglunni um ábyrgð með tiltekinni fjárhæð fyrir hverja rúmlest, en þó þannig breyttri, að í stað 8 og 16 sterlingspunda komi 1000 frankar fyrir rúmlest, þegar eingöngu er um eignatjón að ræða, en til viðbótar 2100 frankar fyrir rúml. eða alls 3100 frankar fyrir hverja rúmlest, þegar jafnframt eða eingöngu er um að tefla bætur fyrir lífs- eða líkamstjón. Þessi franki, sem hér er notaður samkv. samþykktinni, er ekki nein mynteining sérstaks lands, heldur er það sérstök gullmynt, svokallaður Poincaré-franki, sem hefur inni að halda vissa þyngd af gulli með ákveðnum skírleika. Þúsund slíkir frankar eru taldir jafngilda 24 sterlingspundum, og eftir núverandi gengi ísl. kr. gagnvart sterlingspundi samsvarar 1 franki af þessu tagi sem næst 2,90 kr.

Þetta er talið nauðsynlegt, að við tökum upp, því að hin aðferðin, sem höfð er í núgildandi siglingalögum, getur leitt til svo stórkostlegra tjóna, að erfitt sé við að ráða. Ég get hér getið þess, að fyrir tæpum tveim árum lenti togarinn Narfi í árekstri við portúgalskt skip. Ef Íslendingar hefðu þá verið aðilar að þessari samþykkt, hefðu tjónabæturnar verið gerðar upp samkv. samþykktinni og af tryggingafélögunum innbyrðis. En nú var bótakrafan mjög miklu hærri eða að mér hefur verið tjáð um 45 millj. kr., sem mál var höfðað út af, sem nú hefur verið afgreitt með réttarsætt, þannig að bæturnar verða eitthvað minni, en mjög miklu hærri en verið hefði, ef við hefðum verið orðnir aðilar að þessari alþjóðasamþykkt.

Þessu frv. þarf svo að fylgja breyting á okkar siglingalögum frá 1963 til samræmis víð alþjóðasamþykktina, og hefur frv. í þá átt verið lagt fyrir Alþingi.

Þórður Eyjólfsson hæstaréttardómari fyrrv. hefur verið ráðunautur ríkisstj. í þessum málum öllum, bæði við samningu siglingalaganna frá 1963 og eins þeirra breytinga á þeim, sem nú hefur verið lagt fram frv. um hér á Alþ. í samræmi við þessa alþjóðasamþykkt. Þetta er aðalefni samþykktarinnar. Hún er prentuð sem fskj., þannig að hv. alþm. geta lesið samþykktina þar, og í henni er, eins og ég segi, þetta aðalatriði, að takmarka skyldur útgerðarmannsins til greiðslu á sjókröfum við 1000 franka á rúml., ef um eignatjón eitt er að ræða, en að viðbættum 2100 frönkum á rúmlest, ef einnig er um líkamstjón eða lífstjón að ræða. Það eru líka í frv. ákvæði um það, að minni skip en 300 smál. skuli greiða eins og um 300 smál. skip væri að ræða og í vissum tilfellum 150 rúml. skip vera tekin til viðmiðunar, þegar um minni en 150 rúml. skip er að ræða. Ísland hefur gert fyrirvara út af þessu orðalagi eða hyggst gera fyrirvara, og hann er einnig prentaður með frv. Fyrirvarinn tekur aðallega til þess, að heimilt verði að setja reglur um að draga úr skaðabótaskyldunni fyrir skip, sem eru undir 150 eða 300 rúml.

Ég held, að það sé svo ekki ástæða til þess að skýra þetta mál öllu frekar. Þetta er sem sagt aðalatriði málsins, að takmarka ábyrgð útgerðarmannsins og koma henni, ef svo má segja, niður á jörðina, því að þessi óskaplegu tjón, sem verða, ef um stór skip er að ræða, eru næstum óviðráðanleg, og þó að vátryggt sé fyrir þeim, kemur það vitaskuld niður aftur á útgerðarmönnum í hærra vátryggingariðgjaldi, þegar útgerðarfélögin verða að borga, eina og t.d. varð tilfellið með Narfaáreksturinn.

Ég vildi svo leyfa mér að leggja til, herra forseti, að málinu yrði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn., því að ég geri ráð fyrir, að siglingal. komi þangað einnig, og eðlilegast, að bæði frv. séu í sömu nefnd.