08.12.1966
Neðri deild: 23. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (1759)
72. mál, skipun prestakalla
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Ég hef ekki hugsað mér að ræða þetta frv. efnislega að þessu sinni, þar sem það mun koma væntanlega í n., þar sem ég á sæti. En ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. kirkjumrh. um tvö atriði viðvíkjandi þessu frv. Í fyrsta lagi vil ég spyrja um það, sem stendur í 9. gr. frv. um prestvígða menn, sem á að ráða til sjúkrahúsþjónustu í Reykjavík: Hvað er hugsað, að þeir verði margir? Ég sé ekki neitt á það minnzt í frv. eða grg. þess. Ætli það eigi að vera einn fyrir hvert sjúkrahús, eða hvað má gera ráð fyrir, að þeir verði margir? Og jafnframt vil ég spyrja: Hefur það ekki komið til greina við undirbúning þessa frv., fyrst þarf að skipa sjúkrahúspresta, að þess þurfi við einhver önnur sjúkrahús á landinu en í Reykjavík? Mér skilst, að þessir sjúkrahúsprestar eigi að verða til fulltingis þeim mönnum, sem eru að hafa vistaskipti. Þurfa þeir ekki einhverja aðstoð, sem líkt stendur á um og eru annars staðar á landinu? Það eru allstór sjúkrahús utan Reykjavíkur og mikið um sjúklinga á vissum stöðum, en þar er kannske ekki nema einn og í hæsta lagi tveir prestar. Hér í Reykjavík eru aftur á móti 15 prestar, sem aldrei munu hafa látið á sér standa að koma í sjúkrahúsin, þegar sjúklingar hafa beðið um það. Hefur ekki þetta frv. haft inni að halda einhver ákvæði um sjúkrahús utan Reykjavíkur á einhverju stigi undirbúningsins? Nú skilst mér, að þetta frv. sé í fyrsta lagi undirbúið af mþn., síðan hafi það verið sent sýnódus, kirkjuráði, kirkjuþingi, prestum og próföstum. Datt engum manni í hug á öllum þessum ferli, að það þyrfti nú líklega að sjá eitthvað fyrir þeim, sem eru á sjúkrahúsum annars staðar en í Reykjavík?
Hitt atriðið, sem ég vildi spyrja hæstv. ráðh. að og hv. síðasti ræðumaður drap á, er: Hefur þetta frv. ekki verið sent söfnuðum til umsagnar, t.d. söfnuðum þeirra prestakalla, sem nú á að leggja niður? Hafa þeir ekkert verið spurðir að því, hvort þeir kærðu sig um það að leggja prestakallið niður og sameina það öðrum? Það hefur verið sent þessum aðilum, sem ég nefndi áðan, sýnódus og kirkjuráði og kirkjuþingi og prestum og próföstum, en hefur það alls ekki verið sent til umsagnar söfnuðum, sem áttu að missa prestinn sinn? Þarf nú ekkert að spyrja þá aðila að þessum hlutum?
Það hefur borið á því á Alþ. fyrr, að það hefur ekki átt að virða mikils sjálfa söfnuðina. Það er búið að reyna það, held ég, á þremur þingum, ef ég man rétt, að afnema kosningarrétt manna til að kjósa sér presta. Ég held, að það sé loksins búið að koma þeirri hugmynd rækilega fyrir kattarnef, og ég er ánægður yfir því að hafa átt minn litla hlut að því. En á þá líka að ganga fram hjá fólkinu sjálfu hvað snertir þetta atriði?
Nú skal ég taka það fram, að ég tel það ekkert óeðlilegt, þó að það séu sums staðar sameinuð prestaköll. Það er ekkert óeðlilegt. En ég vil ógjarnan, að það sé gert, án þess að fólkið, sem á að búa við þetta, fái eitthvað að segja um það. Það væri a. m. k. kurteisi, og kurteisi kostar ekki neitt.
Ég skal ekki ræða fleira, þó að það væri ástæða til, í þessu frv., en mér þætti vænt um, ef hæstv. ráðh. gæti svarað þessum tveimur atriðum.