08.12.1966
Neðri deild: 23. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í C-deild Alþingistíðinda. (1760)

72. mál, skipun prestakalla

Gunnar Gíslason:

Herra forseti. Ég á eins og hv. síðasti ræðumaður sæti í þeirri n., sem fær þetta mál til meðferðar, og gefast mér því nóg tækifæri til þess að koma fram aths. mínum, ef einhverjar verða, víð málið, og get ég þess vegna sparað mér það að verða langorður um frv. nú víð 1. umr.

Eins og sjá má af fyrirsögn frv., er það tvíþætt. Annars vegar fjallar það um skipun prestakalla og prófastsdæma og hins vegar um kristnisjóð. Það má vel vera, að ýmsum fari eins og hv. 2. þm. Sunnl., að þeim finnist nokkuð róttækar þær breytingar, sem lagt er til í frv., að gerðar verði á skipun prestakalla. Eins og segir í aths., er lagt til, að sameinuð verði 20 prestaköll úti í strjálbýlinu öðrum prestaköllum, og það má vera, að ýmsum þyki hér um róttæka breytingu að ræða. Ég er samt sem áður nokkuð á öðru máli um þetta, því að sannleikurinn er sá, að um þau prestaköll, sem lagt er til í frv. að verði sameinuð öðrum, er flest þannig ástatt, að þau hafa verið prestslaus í lengri eða skemmri tíma og engar líkur eru til þess, að nokkur sæki um þessi prestaköll. Sem sagt, að nokkru leyti er þessi breyting þegar komin á, að því er þessi prestaköll snertir. Það er að vísu lagt til líka, að nokkur prestaköll verði sameinuð öðrum, þar sem prestur situr enn. En því miður verð ég að segja það, að ég hef það á tilfinningunni, að þegar þessir prestar, sem enn sitja í þessum brauðum, hætta sínum störfum þar, kunni svo að fara, að enginn fáist til þess að sækja um þessi prestaköll allflest. En þetta gefst okkur í menntmn. tóm til þess að íhuga, og getum við að sjálfsögðu flutt okkar brtt. við frv. Ég held fyrir mitt leyti, að frv. gangi jafnvel skemmra en það hefði átt að gera í þessum efnum, og ég get alls ekki tekið undir það með hv. 2. þm. Sunnl., að hér sé um einhvern fjandskap við bændastéttina að ræða. Að vísu viðurkenni ég, að það er mikils virði fyrir dreifbýlið að hafa presta og það sem flesta. En breytingin í þjóðlífi okkar hefur nú verið í þessa áttina, að það, sem lagt er til með þessu frv., er í rauninni ekki miklu meira en það að staðfesta þá reynslu, sem þegar er orðin.

Ég fagna mjög ákvæðum frv. um kristnisjóð. Ég hef orðið nokkuð var við þann misskilning, að ýmsir hafa skilið það svo, að með fækkun þessara prestakalla væri verið að spara fé við íslenzku kirkjuna. En þetta er misskilningur. Það fé, sem sparast við það að fækka prestaköllunum, á allt að renna í kristnisjóð. Hæstv. kirkjumrh. upplýsti í sinni framsöguræðu, að tekjur kristnisjóðs mundu verða þegar í upphafi nær 4–5 millj. kr. Þetta er að sjálfsögðu ekki há upphæð á okkar tímum, en það er samt mikilsvert fyrir kirkjuna að fá þetta fé til umráða, og ég efast ekkert um það, að með stofnun kristnisjóðs muni starfsemi kirkjunnar öll aukast, og þessu fé er vissulega vel varið.

Hv. 3. þm. Reykv. hélt hér alllanga ræðu áðan og talaði stundum á sínum hæstu tónum, eins og honum er nú gjarnt að gera, þegar málefni kirkjunnar ber á góma. Ég ætla ekki að fara að hnotabítast við þennan hv. þm. neitt að ráði, a. m. k. ekki nú. En ég tel það algeran misskilning hjá honum, þegar hann er að halda því fram, að of miklu fé sé varið til íslenzku kirkjunnar. Það er, eins og hv. 2. þm. Sunnl. benti á, ekki meira en það, að það er innan við 1% af útgjöldum ríkissjóðs, og hvernig er hægt að telja slíkt eftir, að þeirri upphæð sé varið til kirkjumála í landinu?

Þessi hv. þm. hélt því fram, að í hvert skipti, sem ætti að fækka prestum, væri hlaðið upp nýjum embættum innan kirkjunnar, og hann hafði mjög á móti öllum þeim embættum, sem talin eru upp í frv. og ætlað er að stofna við kirkjuna. Hann sagði, þessi hv. þm., að þegar væri minnzt á það, að fjölga ætti starfsmönnum eða fræðimönnum við háskólann, væri eins og að höggva í harðan stein. Þetta er ekki alls kostar rétt hjá þessum hv. þm. Ég held, að starfsmönnum háskólans fjölgi á hverju einasta ári, og við stóðum að því í fyrravetur, ég og þessi hv. þm., að flytja brtt. — eða menntmn. gerði það — að flytja brtt. við frv. um Háskóla Íslands, sem þá lá fyrir þinginu, að fjölga mönnum víð háskólann meira en það frv. gerði þó ráð fyrir, og við fengum þetta í gegn. Þess vegna er ekki alls kostar rétt, þegar þessi hv. þm. heldur því fram, að það sé ætíð eins og að höggva í harðan stein, þegar minnzt er á það hér á Alþ. að styrkja og efla Háskóla Íslands. Vissulega þurfum við að efla hann sem bezt, og ég held, að það sé rétt, að hv. Alþingi hefur á því máli skilning.

Þessi hv. þm., 3. þm. Reykv., hafði yfirleitt á móti öllum þeim embættum, sem nefnd eru í 6.–11. gr. frv. Hæstv. forsrh. hefur nú svarað einni af aths. hans mjög rækilega. Það var í sambandi við þann prest, sem ráðinn hefur verið til starfa meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn, og skal ég ekki gera það frekar að umræðuefni.

Hv. þm. talaði um æskulýðsstarfsemi kirkjunnar og gerði lítið úr henni og taldi mjög óþarft, að stofnað væri embætti æskulýðsfulltrúa. Ég hygg, að ef þessi hv. þm. kærir sig nokkuð um að fylgjast með störfum íslenzkrar kirkju, hljóti hann að komast að raun um það, að eitt hið bezta starf, sem kirkjan einmitt vinnur í dag, er á meðal unga fólksins í landinu. Þetta er ósköp eðlilegt. Þarna er starfsvettvangurinn mestur og mikilvægastur, og að fara að telja það svo eftir, að lagt sé til að efla þessa starfsemi, er þannig, að það er ekki hægt annað en áminna þennan hv. þm. fyrir að halda fram slíkum skoðunum.

Hann minntist einnig á starf sjúkrahúsprestsins. Það er að vísu alveg rétt, að það munu vera skiptar skoðanir um starf slíks manns. Og það mátti heyra einnig á ræðu hv. 3. þm. Vestf., að hann gerir ekki mikið úr þessu starfi. Jú, það geta verið skiptar skoðanir um þetta, ég skal viðurkenna það. En það eru ýmsir menn í þessu landi, sem eru á annarri skoðun en þessir hv. þm. Ég hef það fyrir satt, að mikilsvirtir læknar hér í höfuðborginni, sem gegna áhrifamiklum störfum víð sjúkrahúsin hér, telji þetta starf mjög svo mikilvægt og gagnlegt. Það er vitaskuld um þetta starf eins og öll önnur störf, að nytsemi þess er mjög undir því komin, hverjir menn fara með þau, hvaða menn ráðast í þau. Án alls efa er hér um mjög vandasamt starf að ræða og mjög svo mikilvægt, að í þetta starf ráðist hæfur eða hæfir menn, — menn, sem hafa hlotið þá menntun, sem þetta starf krefst, og allan þann undirbúning undir það, sem nauðsynlegur er. En ég er alveg viss um, að þetta starf getur haft mjög mikið gildi einmitt, þegar það er komið í það horf, að þarna er fastráðinn maður eða fastráðnir menn, sem vinna í samstarfi og í samráði víð sjúkrahúslæknana. Og það er eins og ég sagði, þetta er skoðun ýmissa lækna, að þetta starf sé mjög mikilvægt, enda hefur það aldrei verið dregið í efa, að sálusorgun, sem svo er nefnd, er mjög mikils virði, bæði heilbrigðum og sjúkum, og þá ekki sízt þeim sjúku. Ég held því, að það sé alveg ástæðulaust fyrir hv. 3. þm Reykv. og hv. 3. þm. Vestf. að vera að reyna að gera lítið úr þessu starfi og jafnvel tala um það í kersknistón.

Það má segja sama um starf sjómannaprests. Við vitum það t.d., að norska kirkjan starfar ákaflega mikið meðal sjómanna, bæði heima í sinu heimalandi og víðs vegar úti um heim. Þetta starf er þar talið mjög mikilvægt, og norska kirkjan er í mjög miklum metum einmitt fyrir þetta sjómannastarf sitt. Er ekki eðlilegt, að einmitt við Íslendingar, sem þurfum svo margt að sækja til sjómannastéttarinnar og lifum svo mjög á þeirra starfi, að íslenzka kirkjan taki þátt í því að sinna þörfum þeirra í þessu efni. Ég held það.

Það er í raun og veru ekki miklu meira, sem ég vil segja nú víð þessa umr. Ég er fylgjandi frv. að mestu leyti a. m. k., og ég fagna alveg sérstaklega þeim kafla þess, sem fjallar um stofnun kristnisjóðsins.