13.12.1966
Neðri deild: 27. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í B-deild Alþingistíðinda. (177)
88. mál, Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Frsm. (Gunnar Gíslason):
Herra forseti. Hv. landbn. þessarar deildar kom saman til fundar fyrr í dag og tók til meðferðar frv. til l. um framleiðnisjóð landbúnaðarins og afgr. frv. frá n. Eins og sést á nál. á þskj. 145, mælir n, einróma með því, að frv. verði samþ., en einstakir nm. áskilja sér þó rétt til að fylgja eða flytja brtt.
Ég sé ekki ástæðu til þess að fara að ræða þetta frv. efnislega umfram það, sem var gert hér í gær af hæstv. landbrh. o.fl., sem tóku til máls. En ég vil taka fram til þess að fyrirbyggja hugsanlegan misskilning, að það er ætlun og skilningur bæði þeirrar n., sem samdi frv., og eins hæstv. ríkisstj., að þær 20 millj., sem um er rætt í 4. gr. frv., séu óafturkræft framlag, sem stjórn sjóðsins ráðstafar að fengnum till. framleiðsluráðs um það, á hvern hátt framleiðsluráðið leggur til, að þessari fjárhæð verði varið. Ég vil einnig taka það fram, að ákvæði 3. gr. snerta ekki þessar 20 millj., sem hér um ræðir. Hér er um sérákvæði að ræða í frv., sem ákvæðið í 3. gr. tekur ekki til.