13.12.1966
Neðri deild: 27. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í B-deild Alþingistíðinda. (179)

88. mál, Framleiðnisjóður landbúnaðarins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins staðfesta það, sem hv. frsm. sagði hér áðan, að skilningur þeirrar n., sem samdi þetta frv., og skilningur ríkisstj, á ákvæðum 4. gr. varðandi 20 millj. er sá, að ráðstöfun á 20 millj. sé ekki bundin af ákvæði 3. gr., þar sem talað er um, að heimilt sé að veita aðeins 1/3 styrk og 2/3 lán. Og einmitt í tilefni af því, að þetta komst til umr. í hv. landbn., hringdi ég í Gunnlaug Briem ráðuneytisstjóra, sem er farmaður þeirrar n., sem samdi þetta frv., og hann staðfesti, að það hefði verið skilningur allra nm., svo og hefur það verið skilningur ríkisstj., að þessar nefndu 20 millj. eigi að ganga til vinnslustöðvanna sem óafturkræft framlag.