17.10.1966
Neðri deild: 4. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í C-deild Alþingistíðinda. (1790)
19. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Flm. (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Við höfum hér þrír þm. Alþb. leyft okkur að flytja á ný frv., sem við fluttum á síðasta ári, um breyt. á l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins. Þetta frv., eins og það liggur fyrir, fer eingöngu fram á eitt, og það er, að felldur sé niður sá málsliður í 7. gr. C-lið, 3. málslið, sem ákveður, að það skuli reiknast vísitala á þau lán og þá vexti, sem veitt hafa verið til þess, að menn gætu eignazt íbúðir samkv. l. um húsnæðismálastofnun. Þessu var komið á fyrir tveim árum, og reynslan er nú þegar sú, að allir, sem um þetta fjalla, sjá fram á, að þetta ákvæði má ekki standa.
Það hefur verið stefna, sem slegið hefur verið fastri af öllum þingflokkum, að það skuli reyna að stefna að því, að hver fjölskylda geti eignazt sína eigin íbúð, a. m. k. stefna að því í sem ríkustum mæli, og hafa þá að öðru leyti til leiguíbúðir handa þeim, sem ekki megna slíkt. Og það hefur orðið alveg gerbreyting frá því, sem var hér t.d. fyrir stríð, alveg gerbreyting á því, hve mikill hluti þjóðarinnar það er nú, sem á eigin íbúðir. Hins vegar er það vitanlegt, að fólk hefur lagt ákaflega mikið á sig til þess að eignast þessar íbúðir. Það hefur í fyrsta lagi kostað það, að strax og nokkur tök voru á hafa svo að segja allir fjölskyldumeðlimir orðið að vinna til þess að komast yfir þessa eign, og í öðru lagi hefur verið unnið í eftirvinnu, næturvinnu, helgidagavinnu til þess að geta staðið undir afborgunum, sem eru yfirleitt þannig, að þetta á að borgast upp á tiltölulega skömmum tíma, 15–20, í hæsta lagi 25 árum. En meira að segja allt þetta hefði vart dugað. Það er gefið, að sú verðbólga, sem átt hefur sér stað, hefur líka óbeint hjálpað til þessa, þannig að það þjóðfélagsástand, sem nú er, að svona mikill fjöldi af launþegum skuli eiga eigin íbúðir, hefði varla skapazt nema fyrir þetta sérstaka fyrirbrigði.
Nú er því slegið föstu með þessari lagabreytingu, að menn skuli greiða fulla vísitölu af sínum lánum. Það þýðir m. ö. o., að ef verðbólga héldi áfram í svipuðum mæli og nú hefur verið, mundi eftir 25 ár eða á 25. ári afborgun af 280 þús. kr. láni nema 199 þús., og þá mundi með svipaðri verðbólgu og verið hefur sú fjölskylda, sem er að eignast slíka íbúð, á þessum 25 árum hafa greitt þetta lán, 280 þús., frá húsnæðismálastjórn með nokkuð á 3. millj. kr. Það er vitað mál, að undir þessu munu menn ekki standa. Þetta er sama sem að taka þá ákvörðun, að menn skuli missa sínar íbúðir, eða að svo miklu leyti sem menn hefðu einhverja fyrirhyggju, hvað menn væru að ganga út í, þegar menn væru að undirskrifa skuldabréfin hjá húsnæðismálastjórn, hættu menn við að reyna að eignast íbúðir. Nú er það hins vegar svo með flesta, að þegar þeir gangast inn á þessa lánsskilmála, eru þeir í fyrsta lagi venjulega að gera það út úr neyð, menn hafa enga aðra möguleika til þess að fá inni heldur en reyna að láta byggja yfir sig, annars yrðu menn venjulega að flýja burt. Það er ekki auðvelt og oft og tíðum næsta ókleift að fá leigt. Ég veit sjálfur um fleiri en eina fjölskyldu í Reykjavík, sem hafa flúið út á land, vegna þess að þær hafa hvergi getað komizt inn hér. Það er þess vegna gefið mál, að ef menn hefðu einhverja hugmynd um þessa greiðsluskilmála, mundu menn yfirleitt ekki fallast á þá. En almenningur er yfirleitt það saklaus í þessum efnum, að þegar opinber stofnun leggur svona skilmála fyrir menn, undirskrifa menn það, af því að menn ganga út frá því, að það, sem ríkið einn sinni gerir þeim að greiða, sé tiltölulega heiðarlegt og eðlilegt, og ætlast til þess, að almenningur standi undir því.
Ég vildi, að menn tækju skoðanakönnun hjá öllum þeim, sem hafa skrifað undir lánin frá húsnæðismálastjórn núna t.d. á þessu ári, til að sjá, hve margir þeirra hefðu hugmynd um, hvað þessir greiðsluskilmálar yfirleitt þýða. Það er ákaflega gott einmitt, að almenningur skuli hafa slíkt trúnaðartraust til ríkisvaldsins, að ríkisvaldið geri sér ekki leik að því að „rúinera“ menn, gera menn gjaldþrota. En þá verður líka ríkisvaldið að reynast verðugt þessa trúnaðartrausts og hafa sína skilmála þannig, að það sé hægt fyrir menn að rísa undir þeim.
Það er vitað mál, að meginið af öllum lánum, sem veitt eru, ég tala nú ekki um þau lán, sem veitt eru t.d. til þeirra manna, sem fást við verzlun og annað slíkt, það eru lán, þar sem engum dettur í hug að gera neina skilmála eða neina vísitölu og ekki heldur Seðlabankanum í þeim till., sem hann hefur gert. Og á meðan slíkt á annað borð viðgengst, að lán séu veitt úr bönkum án vísitölu, er enginn aðili, sem á annan eins rétt á að fá slík lán og sá almenni maður, sem er að reyna að koma yfir sig húsnæði, ekki sízt þegar hann á að borga þetta upp á t.d. 20–25 árum, þegar samsvarandi skilyrði hafa verið t.d. til skamms tíma í Danmörku, að menn hafa getað fengið lán út á 80–90% af kostnaðarverði íbúðar til 80–90 ára með 2% vöxtum af helmingi lánsins og 4% vöxtum af hinum helmingnum.
Þegar ríkið gerir mönnum að greiða þetta lán upp á 25 árum, má ekki minna vera en menn hafi að öðru leyti þau beztu skilyrði, sem veitt eru í þjóðfélaginu. Það er þess vegna gefið mál, að það er ekki hægt fyrir ríkið með nokkrum siðferðilegum rétti að lána 280 þús. kr. í dag til þess að koma þaki yfir höfuð sér, og ætla að heimta þetta borgað með rúmum 2 millj. kr. á næsta aldarfjórðungi. Þannig er ekki hægt að haga sér. Við leggjum þess vegna eindregið til, að þetta vísitöluákvæði sé fellt niður. Síðan verður það opinbera sjálft að sjá um, hvernig það stjórnar sínum málum hvað snertir verðbólgu eða annað slíkt, hvort það hefur verðbólgu eða hvort það hefur verðbólgu ekki. Það er þess mál. En fjölskyldan, sem undirskrifar í dag skuldbindingar um að borga 280 þús. kr., á að geta gengið út frá því, að það sé með þeim skilmálum, sem alltaf hefur tíðkazt á Íslandi að lána út.
Þá er rétt að athuga annan hlut í sambandi við þetta og það er það, að nú mundu máske ýmsir vilja segja: En það er meiningin að stöðva verðbólguna. Það er meiningin, að það eigi ekki að verða nein verðbólga í framtíðinni. — Að vísu á maður eftir að sjá það. Það verður ríkisvaldið á hverjum tíma að sjá um. En við skulum segja, að það væru teknar þær ákvarðanir, að eitthvað slíkt mundi gerast. Eins og sakir horfa nú, mundi það að öllum líkindum gerast með því móti, a. m. k. þar sem farið er að brydda á nú þegar, að það yrði stöðvað það mikið af fyrirtækjum, að eftir nokkurt skeið, 1–2 ár, yrði nokkuð almennt atvinnuleysi, og það mundi byrja með því, að það yrði, eins og nú þegar er farið að bera á í Reykjavík, farið að hætta að láta verkamenn vinna eftirvinnu, næturvinnu eða helgidagavinnu. Það er auðvitað mjög skynsamlegt frá sjónarmiði viðkomandi atvinnurekanda að borga ekki 50–100% hærra kaup en ella, og ef farið er að framkvæma harðvítugar ráðstafanir, þá skilja menn það ósköp vel, að slíkt sé lagt niður. Hvað mundi það þýða fyrir þann mann, sem að vísu sér verðbólguna stöðvaða, en fær ekki lengur neitt tækifæri til að vinna eftirvinnu, næturvinnu eða helgidagavinnu? Það mundi þýða í öllum þorra tilfella, að þessir menn hafa ekki aðstöðu til þess að rísa undir því að borga af þeim íbúðalánum, sem þeir hafa fengið. Það er vitanlegt, að núverandi dagkaup fyrir 8 tíma eða 44 klukkutíma í viku dugir ekki til meira en að lifa af því án þess raunverulega að þurfa að borga fyrir húsnæði, hvorki leigu né afborgun. Það mundi eðlilega hafa þau áhrif, þegar slíkt ástand væri skapað, að menn fengju ekki lengur eftirvinnu og næturvinnu, að verkamenn hlytu að segja: Þar sem ég geri kröfu til að búa í húsi, hækka ég mitt dagkaup þannig, t.d. um a. m. k. 50%, að ég hafi efni á að borga leigu, þar sem ég leigi, eða borga af þeirri íbúð, sem ég bý í. — Ég veit ekki, hvort atvinnurekendum í landinu þætti það betra, að kaup yrði tafarlaust hækkað um 50% eða að ríkisvaldinu þætti það betra, að staðið væri máske í hörðum átökum út af slíku. En allir sjá, að það er eina ráðið, ef það á ekki að gera þær ráðstafanir að láta fjöldann allan af fólki missa þær íbúðir, sem það hefur verið að þræla til þess að eignast.
Um leið og menn hugsa um einhverja stöðvun á þann veg, að það verði atvinnuleysi, þar sem eftirvinna hættir og næturvinna hættir og helgidagavinna hættir, blasir við það ástand, sem við kölluðum einu sinni kreppu. Og það er vitað mál, að í því felst stjórnlist í þjóðfélagi, þar sem stjórnendurnir vilja hafa skilning á því að stjórna af hófsemi og sigla á milli þessara tveggja skerja, verðbólgunnar annars vegar og atvinnuleysisins hins vegar. Mér sýnist, að nú sé verið að prófa það, eftir að hafa strokizt við verðbólguskerin allan tímann, hvort það sé ekki bezt að taka „kúrsinn“ þvert yfir sundið og sigla beint í atvinnuleysið og kreppuna til þess að fá að kynnast einhverju öðru. A. m. k. hljóta það að verða afleiðingarnar, ef haldið er áfram eins og nú hefur verið byrjað með stöðvun allmargra hraðfrystihúsa, stöðvun allmargra iðnaðarfyrirtækja og minnkun á þeirri vinnu, sem menn hafa. Það er gefið, að ef eitthvað slíkt gerist, kemur hvað húsnæðismálin snertir að því, að menn geta ýmist ekki eignazt íbúðir eða haldið þeim íbúðum, sem þeir hafa verið að reyna að borga niður. Menn hafa eignazt þessar íbúðir með því að vinna eftirvinnu, næturvinnu og helgidagavinnu, og menn leggja út í það að taka lán út á þessar íbúðir nú eða reyna að kaupa þessar íbúðir nú með því að treysta á að geta á næstu áratugum unnið eftirvinnu, næturvinnu og helgidagavinnu. Það er því gefið, að svo framarlega sem áframhald verður á því, sem nú virðist í undirbúningi, er líka brýn þörf á því að breyta þessum lögum og það jafnvel meir en hér er lagt til. En þessa vil ég geta vegna þess, að ef þessi vísitala er felld niður, eru lánin ákveðin 4%. Það þykir sæmilegt nú, en það mundi ekki þykja sæmilegt að bjóða upp á slíkt upp á það háa vexti eins og 4%, ef atvinnuleysi væri byrjað.
Gömlu vextirnir í sambandi við verkamannabústaðina og annað slíkt voru 2 og 2½%, og það er eitt af því, sem þyrfti þá að breytast, ef á að fara inn á þá braut.
Ég vil taka það fram í sambandi við þetta frv., að það er engum efa bundið, að það er almenn ósk verkamanna og launþega allra, að þeir losni við þessa vísitölu, og ef þörf þykir, er tvímælalaust hægt að fá umsagnir frá öllum þorra verkalýðssamtakanna í landinu til þess að fá staðfestingu á slíku.
Þetta frv. hefur verið flutt hér áður á Alþ., og ef ég man rétt, tók Framsfl. vinsamlega afstöðu til þessa máls. Og mér er satt að segja ekki annað kunnugt en hjá Alþfl. sé líka fullur skilningur á því, að það sé nauðsynlegt að fá þessa breytingu fram. Og ég vil þá leyfa mér að spyrja, hvort það sé Sjálfstfl. einn, sem stendur í vegi fyrir því, að hægt sé að gera þessa breytingu nú á þessu þingi. Ég veit, að það hefur verið í stefnuskrá Sjálfstfl., a. m. k. fyrir undanfarnar kosningar, að það eigi að gera hverjum manni kleift, hverri fjölskyldu kleift að eignast sína eigin íbúð. Og ég held, að flestallir þeir menn, sem eitthvað þekkja inn á þetta af hálfu Sjálfstfl., skilji það enn fremur, að það er ekki hægt með þessu móti, sem nú er sett í lög. Á því verður að verða breyting, þannig að ég vil leyfa mér að vonast til þess, að það komi alveg skýrt og greinilega í ljós, — menn vita, að þetta er síðasta þing fyrir kosningar, — það komi skýrt og greinilega í ljós við meðferð þessa máls hér á Alþingi, hvaða afstöðu hinir ýmsu flokkar taka til þess og hvort það er meiningin að binda almenningi þær byrðar, sem þetta vísitöluákvæði mundi þýða, ef því væri við haldið. Það er nauðsynlegt, að almenningur, sem skammtað er af þessum kjörum, viti, hvernig menn standa gagnvart því að létta af honum þessari byrði. Að vísu þarf að gera fleiri breytingar en þessar í sambandi við húsnæðismálalöggjöfina. En þetta er það, sem er alveg brýnt að gera nú þegar.
Í 2. og 3. gr. þessa frv. eru gerðar nokkrar ráðstafanir til þess, ef þetta yrði samþ., að breyta þeim lánasamningum, sem þegar hafa verið gerðir, og það yrði óhjákvæmilegt í því sambandi, að ríkið tæki á sig viss útgjöld til þess að bæta upp þeim, sem kynnu að hafa keypt skuldabréf með þessum skilyrðum. Að vísu býst ég við, að það séu mest opinberir sjóðir, sem væri auðvelt að semja við í slíku sambandi. En hitt er gefið, að því lengur sem svona ákvæði yrði látið standa, þetta vísitöluákvæði, því meiri yrðu þær byrðar, sem ríkið yrði að taka á sig seinna meir. Það væri ekki hægt að láta menn standa undir þessu, þó að menn hefðu orðið svo óheppnir á árunum 1964–1966 að undirskrifa eitthvað slíkt.
Ég vil þess vegna leyfa mér að vona, að sú nefnd, sem ég legg til að þessu frv. sé vísað til, heilbr.- og félmn., afgreiði þetta frv. sem fyrst og hv. þm. fái tækifæri til þess að sýna afstöðu sína gagnvart þessu máli.