14.02.1967
Neðri deild: 41. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í C-deild Alþingistíðinda. (1885)

108. mál, verndun og efling landsbyggðar

Flm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Á þskj. 204 flytjum við 6 þm. þessarar bv. d. frv. til l. um sérstakar ráðstafanir til að stuðla að verndun og eflingu landsbyggðar og koma í veg fyrir eyðingu lífvænlegra byggðarlaga.

Frv. er í 17 gr. og skiptist 1 2 kafla, ásamt ákvæði til bráðabirgða. Fyrri kaflinn fjallar um tilgang frv. og störf byggðajafnvægisnefndar, síðari kaflinn um byggðajafnvægissjóð, stofnfé hans, árlegar tekjur, lánsheimildir og fjárhagslegan stuðning til uppbyggingar í þágu landsbyggðar. Bráðabirgðaákvæðið fjallar um skyndihjálp til að koma í veg fyrir yfirvofandi eyðingu lífvænlegra byggðarlaga.

Samkv. frv. á byggðajafnvægisnefnd að hafa með höndum stjórn byggðajafnvægissjóðs og ráðstöfun þess fjármagns, sem honum er ætlað, enn fremur nauðsynlegar rannsóknir, skýrslu-söfnun og gerð svæðisáætlana. Gert er þó ráð fyrir, að einstakir landshlutar eða þeir, sem fara með almennt umboð landshlutanna, geti á sínum svæðum haft með höndum áætlunargerð og úthlutun lána og framlaga á nánar tilgreindum svæðum, hvort tveggja undir yfirumsjón byggðajafnvægisnefndar.

Með stofnfé byggðajafnvægissjóðs skv. 8. gr. er í þessu frv. átt við stofnfé og aðrar eignir núverandi atvinnubótasjóðs, sem lagður yrði niður með samþykkt þessa frv., ef að lögum yrði.

Tekjur byggðajafnvægissjóðsins yrðu fyrst og fremst tiltekinn hundraðshluti af árlegum tekjum ríkissjóðs, en auk þess vaxtatekjur og framleiðslugjald það af álverksmiðju, sem atvinnujöfnunarsjóði er ætlað, ef til kemur, á sínum tíma.

Í 12. gr. frv. er gert ráð fyrir 1000 millj. kr. lánsheimild, sem skiptist á 5 ár með ríkisábyrgð. Skv. frv. mundi byggðajafnvægissjóður veita lán umfram það, sem aðrar lánsstofnanir eru vanar að veita, og einnig óafturkræf framlög með vissum skilyrðum, en gæti líka með vissum skilyrðum fyrir hönd sjóðsins orðið meðeigandi í atvinnufyrirtækjum.

Í 10. gr. frv. eru sérákvæði um íbúðalán. Vaxtakjör og lánstími er óbundið í frv., þannig að í þeim efnum sé hægt að miða við greiðslugetu með tilliti til þess, að væntanleg lög nái tilgangi sínum.

Gert er ráð fyrir, að Framkvæmdasjóður Íslands, sem tók við af Framkvæmdabankanum, annist afgreiðslustörf og að skrá um veitt lán og framlög verði birt opinherlega ár hvert, til þess að engin hula bankaleyndar eða klíkuskapar geti hvílt yfir þeirri starfsemi, sem fram fer á þessu sviði.

Eins og heyra má af þessu stutta yfirliti um efni frv., sem ég nú hef flutt, er þetta frv. í meginatriðum sama efnis og frv. það um ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, sem flutt hefur verið á 4 undanförnum þingum, og tilgangurinn hinn sami og fyrr. Nýmæli er helzt það, að gert er ráð fyrir, að byggðajafnvægisstofnunin taki við atvinnujöfnunarsjóðnum og fylgifé hans, hvað sem það reynist, enda virðist hann a.m.k. að nokkru leyti hafa verið stofnaður til að vega á móti byggðaröskunaráhrifum fyrirhugaðrar álverksmiðju í Straumsvik, en stofnun hennar og staðsetning var enn óráðin, er frv. okkar var flutt á Alþingi 1965.

Þar sem ég hef fyrr á þingum rætt um meginefni þessa frv. oftar en einu sinni, þarf ég ekki að gera nánari grein fyrir því að þessu sinni, enda mun það væntanlega fara til n. En um tilgang þessa máls og nauðsyn vil ég enn einu sinni leyfa mér að fara nokkrum orðum hér í hv. deild.

Hæstv. forsrh. sagði á öndverðum þessum vetri, að við Íslendingar stæðum nú á vegamótum velmegunar og vandræða. Hann var þarna að tala um þá velmegun, sem góðæri undanfarinna ára ætti að hafa skapað og hefur skapað, það sem hún nær, og vandræðin, sem stafa af því, að við Íslendingar höfum ekki haft þeim stjórnarvöldum á að skipa, sem hafi verið þess umkomin að leysa sinn hluta af verkefnum þessa góðæristíma. Þessi vandræðavegamót, sem hæstv. forsrh. talaði um, eru og það að vonum nokkuð almennt umræðuefni í landinu um þessar mundir. Þau kunna að boða stjórnarskipti og annað slíkt, sem ég skal út af fyrir sig ekki lasta, en um það ætla ég ekki að ræða hér í dag. Mér er það efst í hug og hefur lengi verið, að við Íslendingar erum nú, á sjötta tug þessarar aldar, staddir á öðrum vegamótum, sem enn meira máli skipta en þau vegamót, sem forsrh. talaði um. Ef við látum skeika að sköpuðu, látum blind lögmál ráða, veljum við þann veg, sem leiðir íslenzka landsbyggð og þar með íslenzkt þjóðfélag og íslenzka menningu niður í djúp gleymskunnar. En frá þessum vegamótum á líka að vera önnur leið fær, ef við beitum þeirri þjóðfélagstækni, sem við ráðum yfir, ef við trúum á landið og sjáum þá staðreynd, að okkur hafa fram til þessa, Íslendingum, verið mikil örlög sköpuð.

Við njótum nú, tæplega 200 þús. Íslendingar, þeirra forréttinda í veröldinni að eiga gott og heilnæmt land, sem á öldum komandi tækni til nýtingar náttúruauðæfa getur framfleytt milljónum manna. Af því að við eigum þetta land ein og höfum byggt það um aldir, erum við sjálfstætt ríki og sköpum okkur sjálf örlög, eftir því sem unnt er fyrir smáþjóð í hörðum heimi. En heimurinn á enga stjórnarskrá til að tryggja eignarrétt þjóða á löndum sínum. Það verða þær sjálfar að gera, og stórþjóðirnar hafa afl til þess, en smáþjóðirnar verða þar fyrst og fremst að treysta á vitsmuni sína og forsjá. En hver sú þjóð, sem vanrækir hlutverk sitt eða spillir sjálfri sér, glatar landi sínu og hverfur í deiglu ópersónuleikans. Svo segir sagan oss frá liðnum tíma.

Nauðsyn ber til að gera sér grein fyrir þeirri staðreynd, að engin trygging er fyrir því, að Ísland verði áfram í eigu Íslendinga og sjálfstætt ríki þeirra, t.d. eftir eina öld. Þar geta svo sterk utanaðkomandi öfl komið til sögu, að þjóðin fáí með engu móti við ráðið. En sú hætta er einnig yfirvofandi og jafnvel miklu fremur, að þjóðin glati landinu sjálf úr höndum sér óviljandi, vegna þess að hættan er vanmetin eða áhuginn á því að afstýra henni er ekki til staðar í nægilega ríkum mæli. Það er hugsanlegt, að mistök í utanríkismálum eða vanmáttartilfinning gagnvart hinum stærri þjóðum og lífskjörum þeirra verði oss Íslendingum sem slíkum að aldurtila, eða veiklun kynstofnsins af orsökum, sem ekki verða ræddar hér. En mesta hættan, sem nú er í augsýn varðandi sjálfstæði þjóðarinnar og eignarrétt á landinu, er sá samdráttur landsbyggðar, sem hefur átt og nú á sér stað hér á landi.

Í tímariti Seðlabankans var tilkynnt nú í vetur, að höfuðborg landsins hafi á árinu 1965 náð því marki að komast í tölu stórborga veraldarinnar, þegar með er talið næsta nágrenni hennar, sem ásamt henni myndar hina svonefndu Stór-Reykjavík á máli hagfræðinganna. En stórborg er sú borg almennt kölluð eða hefur verið í landafræðum, sem hefur 100 þús. íbúa eða fleiri. Af hverjum 100 íbúum í þessu landi eiga nú 52 heima í Stór-Reykjavík, eða áttu í lok ársins 1965. Svo fjölmennt höfuðborgarsvæði í hlutfalli við íbúatölu ríkis mun ekki fyrirfinnast annars staðar í veröldinni. Fyrir landsbyggðina í heild er þetta geigvænleg þróun, og höfuðborginni er hún til einskis gagns, nema síður sé. Nauðsyn ber til að horfast í augu við þá staðreynd, að borg, sem er orðin svona fjölmenn, hefur vaxandi aðdráttarafl. Þar á ofan hefur nú verið gerð ráðstöfun til þess að auka enn til muna aðdráttarafl stórborgarinnar með því að staðsetja þar stóriðjufyrirtæki og raunar að nauðsynjalausu. Ef stórborgin og stóriðjan draga til sín fólk og fjármagn, eins og líkur benda til, á komandi árum, er slík blóðtaka í vændum fyrir aðra hluta landsbyggðar, að mörgum mundi hrjósa hugur við, ef áætlað væri í tölum, eftir því sem líkur benda til. Það er ekki ætlan mín, að tilfæra slíkar tölur hér, en borgríki á Íslandi, jafnvel þótt auðugt væri að fé og lífsþægindum, mun ekki verða þess umkomið að varðveita Ísland fyrir Íslendinga.

Á ýmsum vettvangi er nú vaxandi viðurkenning á því, a.m.k. í orði, að spyrna beri gegn samdrætti landsbyggðarinnar. Aðgerðir annarra þjóða í byggðajafnvægismálum hafa nú síðustu árin ýtt undir þá viðurkenningu. En orð og fyrirheit hrökkva skammt, þegar mikið er í húfi. Athöfn þarf að fylgja orðunum. Sú stund er upp runnin, að við Íslendingar verðum að venja okkur við að líta á verndun og eflingu landsbyggðar sem eitt af stærstu viðfangsefnum þjóðfélagsins. Framkvæmd byggðajafnvægismála, verndun og efling landsbyggðarinnar, þarf að vera sjálfstæð starfsemi í stjórnarkerfinu, og sú starfsemi þarf að ráða yfir afli þeirra hluta, sem gera skal. Að því miðar það frv., sem hér liggur fyrir. Ég leyfi mér að vísa til grg., sem því fylgir, ásamt fskj., og legg svo til, herra forseti, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.