23.02.1967
Neðri deild: 45. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í C-deild Alþingistíðinda. (1894)

112. mál, verkfræðiskrifstofa Vestfjarðakjördæmis

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég er fylgjandi því nýmæli, sem fram kemur í frv. á þskj. 208 um stofnun verkfræðiskrifstofu á Vestfjörðum á vegum ríkisins. En ég vil leyfa mér að vekja athygli á því, að á þskj. 191 höfum við hv. 2. þm. Sunnl. leyft okkur að flytja frv. um verkfræðiráðunauta ríkisins á Norður-, Austur og Vesturlandi, og er það raunar mál. sem einnig var flutt á síðasta þingi.

Þetta frv., sem við höfum flutt, um verkfræðiráðunauta ríkisins á Norður-, Austur- og Vesturlandi, felur í rauninni í sér efni þess frv., sem hér er nú til umr., þannig að ef okkar frv. verður samþ., er þar með stofnuð verkfræðiskrifstofa á Vestfjörðum. Nú vill svo vel til, að máli okkar hv. 2. þm. Sunnl. hefur þegar verið vísað til hv. allshn., en hv. flm. þessa frv. gerir einmitt ráð fyrir, að frv. á þskj. 208 verði einnig vísað til þeirrar n. Ég vil því mega vænta þess, að þeir, sem að þessu frv. standa, á þskj. 208, geti haft samvinnu við okkur, sem stöndum að frv. á þskj. 191, um viðunandi lausn í þessum málum, ekki aðeins fyrir Vestfirði, heldur fyrir þá landshluta, sem hér er um að ræða og tilgreindir eru á þskj. 191 í okkar frv. Vil ég mega vænta þess, að um það geti tekizt samvinna milli þeirra, sem áhuga hafa á þessum málum, að svona verkfræðiskrifstofu verði komið upp bæði á Norður-, Austur- og Vesturlandi og þá einni þeirra á Ísafirði.