27.02.1967
Neðri deild: 46. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í C-deild Alþingistíðinda. (1929)

125. mál, utanríkisráðuneyti Íslands

Flm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Á þskj. 229 höfum við leyft okkur, 3 þm. Alþb., að flytja frv. til l. um breyt. á 1. nr. 31 frá 27. júní 1941, um utanríkisráðuneyti Íslands og fulltrúa þess erlendis.

Frv. þetta felur í sér breytingu á meðferð utanríkismála í þá átt að auka samráð og samstarf milli utanrrh. og Alþingis frá því, sem nú er. Í íslenzkum lögum eru ekki mörg ákvæði um meðferð utanríkismála. Í stjórnarskránni er forseta og ráðh. falið framkvæmdavaldið á þessu sviði sem öðrum, og í lögum um utanríkisráðuneyti Íslands er í 1. gr. falið sérstöku ráðuneyti í Rvík að fara með utanríkismál landsins. Í stjórnarskránni er svo ákvæði, sem takmarkar valdsvið framkvæmdavaldsins verulega, eins og kunnugt er, þ.e.a.s. 21. gr. Þar er tiltekið, að handhafar framkvæmdavaldsins geri samninga við önnur ríki, en sérstaklega tekið fram, að enga slíka samninga megi þó gera, ef þeir hafi í sér fólgið afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða horfi til breytinga á stjórnhögum ríkisins, nema samþykki Alþ. komi til.

Mér virðist augljóst, að valdsvið ríkisstj. er rýmra og óheftara á vettvangi utanríkismála en í innanríkismálum, þar sem framkvæmdavaldið er bundið af margháttaðri lagasetningu. Að sjálfsögðu má segja, að sérhver ríkisstj. sé bundin af þeim þingmeirihl., sem að baki hennar stendur hverju sinni, og þannig leggi meiri hl. Alþ. grundvöll að stefnu hennar, einnig á sviði utanríkismála. En reynslan sýnir, að ráðh. eru frekar húsbændur þess þingmeirihl., sem þá hefur valið, en þjónar og umboðsmenn, eins og þeir ættu í rauninni að vera. Þeir fara sínu fram án eftirlits og átölulaust, jafnvel þótt samherjar þeirra hér á Alþ. hafi sitthvað við gerðir þeirra að athuga.

Í frv. því, sem hér liggur fyrir, er ekki lagt til, að skert verði ákvörðunarvald ríkisstj. og rn. um stefnuna í utanríkismálum. En hins vegar er reynt að tryggja, að Alþ. fái að fylgjast nægilega vel með því, sem er að gerast hverju sinni á vettvangi íslenzkra utanríkismála. Það er ekki nóg, að Alþ. fjalli um utanríkismál aðeins í þeim undantekningartilfellum, sem getið er um í 21. gr. stjórnarskrárinnar, heldur hlýtur það að vera hlutverk Alþ. að hafa stöðugt og vakandi eftirlit með gerðum ríkisstj. í utanríkismálum. En til þess að svo geti orðið, verður Alþ. að hafa betri aðstöðu en nú er til að fylgjast með athöfnum ríkisstj. á sviði utanríkismála. Fyrsta stóra skrefið í þá átt væri að gera utanrmn. þingsins aftur virka. Undanfarnar vikur hefur hvað eftir annað verið rætt um það háttalag hæstv. núv. utanrrh. og fyrrv. utanrrh., sem hefur viðgengizt um árabil, að sniðganga utanrmn. og þverbrjóta þannig skýlaus lagaákvæði um þetta efni. Ég sé að sjálfsögðu ekki ástæðu til þess að fjölyrða mjög mikið um þetta atriði, þar sem það hefur verið aftur og aftur til umr. hér í þinginu. En þó er rétt að rifja upp í örfáum orðum helztu staðreyndirnar, sem komið hafa fram í þessum umr.

Hæstv. utanrrh. hefur látið hafa eftir sér hér á Alþ., að með því að sniðganga utanrmn. og brjóta þar með íslenzk lög sé hann að refsa utanrmn. og Alþ. fyrir einhverja lausmælgi, sem á að hafa átt sér stað fyrir 6 árum. Í 6 ár hafa utanrrh. Alþf1. verið að refsá Alþ. fyrir þessa meintu lausmælgi, en hins vegar kemur í ljós, að hæstv. utanrrh. veit ekki sjálfur, hvenær þessi atburður gerðist, og hann veit ekki einu sinni, hvaða ár þetta gerðist og hann virðist ekki heldur hafa hugmynd um, í hvaða máli þetta meinta trúnaðarbrot á að hafa átt sér stað. Einn af nm. í utanrmn. hefur rakið athafnir n. í 2 ár á umræddu tímabili og sýnt fram á, að á þeim tíma hefur þessi atburður ekki getað átt sér stað. Fullyrðing ráðh. um trúnaðarbrot hefur því orðið dularfyllri og tortryggilegri, því lengra sem skyggnzt hefur verið niður í þetta mál hér í þinginu. Staðhæfing hans hefur reynzt vera algerlega órökstudd og ósönnuð.

Í þriðja lagi hefur það komið fram, að fulltrúar Framsfl. í utanrmn. hyggjast flytja till. um skipun rannsóknarnefndar samkv. 39. gr. stjórnarskrárinnar til að rannsaka, hvort staðhæfingar fyrrv. og núv. utanrrh. hafa við rök að styðjast. Verði niðurstaða n. sú, að um trúnaðarbrot hafi verið að ræða, held ég, að við getum verið sammála um, að gera beri viðeigandi ráðstafanir gagnvart þeim, sem það brot hafa framið sannanlega. En komi í ljós, að staðhæfingar hæstv. ráðh. eru algerlega órökstuddar og tilefnislausar, er að sjálfsögðu óhjákvæmilegt að láta viðkomandi ráðh. sæta ábyrgð fyrir háttalag sitt gagnvart Alþ., sbr. 2. og 9. gr. l. um ráðherraábyrgð, því að ekki er hægt að þola, að ráðh. níðist á löggjafarþingi þjóðarinnar árum saman með lögbrotum og refsi Alþ. að tilefnislausu í 6 ár, án þess að þeir séu þá sjálfir látnir standa ábyrgir gerða sinna.

Hins vegar er að sjálfsögðu rétt að minna á, að hæstv. utanrrh. hefur loksins nú í vetur lýst sig reiðubúinn til þess að hefja á ný samstarf við utanrmn. lögum samkv., og er það vissulega góðs viti. Síðan þetta frv. kom fram hér í þinginu, hefur n., sem var skipuð til þess að gera till. um breytingar á þingsköpum, skilað áliti sinu, og leggur hún einróma til, að í nýjum þingsköpum verði lögð full áherzla á fyrri ákvæði þingskapa um skyldu ráðh. til að hafa samráð við utanrmn. Í till. n. er einnig lagt til, að ákvæðinu verði breytt í svipaðan búning og lagt er til í þessu frv. Nú er ákvæðið í þingskapalögunum þannig, með leyfi forseta:

„Utanrmn. starfar einnig milli þinga, og skal rn. ávallt bera undir hana utanríkismál, sem fyrir koma milli þinga.“

Ákvæði þetta hefur almennt verið skilið svo, að ríkisstj. bæri ekki aðeins skylda til að bera undir utanrmn. þá samninga, sem samþykki Alþ. er áskilið til, heldur og sérhver meiri háttar utanríkismál. Í þessu frv., sem víð höfum hér borið fram, er það skýrt tekið fram, að þessi skylda hvíli á ríkisstj. bæði milli þinga og meðan þing situr. Með sérstöku tilliti til þess, að ákvæði þingskapal. um utanrmn. hafa verið virt að vettugi á undanförnum árum, finnst mér ekki óeðlilegt, að hliðstæð ákvæði verði sett í lög með þessu frv., vegna þess að það fjallar einmitt um almenna meðferð utanríkismála. Að sjálfsögðu eru mörg dæmi þess, að mikilvæg ákvæði séu endurtekin og séu eins í fleiri en einum lögum.

Áður en ég hverf frá þessu atriði frv., víl ég minna á eitt dæmi þess af mörgum, hve örlagaríkt það hefur verið fyrir þjóðina, að fyrrv. utanrrh. meðhöndlaði utanríkismál þjóðarinnar eins og sín einkamál og neitaði að hafa samráð við utanrmn. Hæstv. núv. utanrrh. hefur nýlega viðurkennt það, sem reyndar allir vita, að Alþ. var blekkt með röngum upplýsingum á þeim tíma, þegar fyrrv. utanrrh. gaf leyfi fyrir stækkun sjónvarpsstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli. Núv. hæstv. utanrrh. var spurður að því á stúdentafundi í háskólanum, hver væri skýringin á því, að Guðmundur Í. Guðmundsson hefði gefið Alþ. þessar villandi og beinlínis röngu upplýsingar. Hæstv. núv. utanrrh. taldi, að fyrrverandi ráðh. hefði verið blekktur af einhverjum öðrum, og gat þess til, að þar hefði verið um tæknilega ráðunauta hans að ræða. Guðmundur Í. Guðmundsson gaf út leyfi til stækkunar sjónvarpsstöðvarinnar án þess að hafa nokkurt samráð við utanrmn., eins og honum bar skylda til. Ef þau lýðræðislegu vinnubrögð hefðu verið viðhöfð að leyfa fulltrúum þingflokkanna að íhuga þessa ákvörðun, áður en hún var tekin, er vissulega ósennilegt, að farið hefði sem fór.

Það er ekki aðeins í utanrmn., sem þörf er á samstarfi og samráðum um utanríkismál. Á hverju ári sendir Ísland sérstaka nefnd til þess að sitja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Þessi n. er skipuð af ráðh. án samráðs við aðra aðila og án þess að stjórnarandstaðan hafi tækifæri til þess að tilnefna mann eða menn í n. Hins vegar eru oft skipaðir í þessa n. ýmsir þeir menn, sem engan áhuga hafa sýnt á utanríkismálum, hvorki í ræðu né riti, og engan þátt eiga, hvorki á undan þessari ferð sinni né eftir hana, í neins konar meðhöndlun utanríkismála. Mér virðist, að það sé svo sjálfsagt mál, að það taki því tæpast að ræða það, að stjórnarandstaðan á skýlausan rétt til þess að tilnefna menn í sendinefnd á allsherjarþinginu.

Með þessu er að sjálfsögðu ekki verið að segja, að n. og sá meiri hl., sem i henni kynni að skapast, eigi að ráða afstöðu Íslands til einstakra mála á allsherjarþinginu. N. kemur fram í umboði utanrrn. og verður að lúta ákvörðunum þess. Eins er það sjálfsagt mál, að ráðh. fái að ákveða fjölda nm., því að í slíkum n. er oft þörf á ýmiss konar sérfræðingum og ráðunautum. En í n. eiga líka að vera fulltrúar tilnefndir beint af þingflokkunum og skipaðir af ráðh. í n. til þess að fylgjast með gangi mála á allsherjarþinginu og til þess að auðvelda samráð og samstarf um mótun íslenzkrar utanríkisstefnu. Mér er kunnugt um það, að í flestum nágrannalöndum okkar er reynt að skipa sendinefndir á allsherjarþingið á sem breiðustum grundvelli, m.a. með því að velja fulltrúa frá stjórnarandstöðuflokkunum. Mér er kunnugt um það, að slíkur er hátturinn í Danmörku. Ég veit að vísu ekki, hvort þetta byggist á lögum eða á venju, en hitt veit ég, að jafnvel litlir, fámennir þingflokkar eiga rétt til að tilnefna fulltrúa í sendinefndina. Frv., sem hér er flutt, gerir einmitt ráð fyrir því, að hliðstæð regla verði upp tekin hér, og ég vænti þess, að það geti náðst eining um, að lýðræðisleg vinnubrögð verði viðhöfð á þessu sviði sem öðrum.

Í þessu frv. er í þriðja lagi lagt til, að hæstv. utanrrh. verði falið að gefa Alþ. árlega skýrslu um utanríkismál. Ég held, að sú skoðun eigi fylgi að fagna í öllum flokkum, að of sjaldan sé rætt um utanríkismál á Alþ. T.d. er mjög fátítt, að þar sé rætt um afstöðu íslenzku sendinefndarinnar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Raunar gildir það sama um alþm. og aðra landsmenn, að þeir hafa litlar spurnir af því, hvernig atkv. Íslands er beitt á alþjóðavettvangi, og enn síður kemur það fram, hvaða sjónarmið hafa mótað afstöðu Íslands í einstökum málum. Á þessu þarf að verða breyting, og okkur virðist eðlilegast, að Alþ. fái tækifæri til þess að rökræða um meðferð utanríkismála á grundvelli ýtarlegrar skýrslu, sem ráðh. flytji árlega.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fylgja þessu frv. úr hlaði með fleiri orðum, en legg að lokum til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn. að lokinni þessari umr.