13.12.1966
Neðri deild: 28. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í B-deild Alþingistíðinda. (193)

88. mál, Framleiðnisjóður landbúnaðarins

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Örstutt ábending. — Ég reikna með, að í stjórn þessa sjóðs eigi Stéttarsamband bænda að eiga einn fulltrúa, en frv. tekur ekki af tvímæli um það. Í 2. gr. frv. segir, að annar skuli skipaður samkv. tilnefningu Stéttarfélags bænda. Það geta kannske verið ýmsir í landinu, sem vilja kalla sig Stéttarfélag bænda. Ég benti hæstv. landbrh. á þetta hér undir umr. í dag, en nú sé ég, að þetta hefur verið prentað upp með sömu villunni. Vel má vera, að það sé hægt að fá lögfræðinga til þess að túlka það, að þetta skuli vera Stéttarsamband bænda, en ég held, að það væri nú nær, að við leiðréttum þetta hér, áður en það fer út úr d., svo að við þurfum ekki að fá það til baka aftur frá Ed.