28.02.1967
Neðri deild: 47. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í C-deild Alþingistíðinda. (1960)

136. mál, sementsverksmiðja

Flm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 263 frv. til 1. um breyt. á l. um sementsverksmiðju. Frv. gerir ráð fyrir breytingu á 4. gr. l., þar sem fjallað er um stjórn verksmiðjunnar. Breytingin er sú, að fjölgað skuli mönnum í stjórn sementsverksmiðju ríkisins úr 5 í 7, að sameinað Alþ. kjósi 5 menn í stjórnina, eins og verið hefur, en fastráðið starfsfólk verksmiðjunnar fái að kjósa úr sínum hópi tvo stjórnarmeðlimi, sem mundu bætast við. Er gert ráð fyrir því, að atvmrh. setji reglugerð um það, hvernig sú kosning skuli fara fram, bæði hvað varðar kosningarrétt og kjörgengi og annað, sem ákveða þarf í því sambandi.

Hugmyndin á bak við frv. þetta er að gera tilraun með það, sem kallað er atvinnulýðræði. Undanfarna áratugi og raunar allt aftur til aldamóta hefur mikið verið um það hugsað, hvernig koma megi fyrir lýðræðislegri skipan mála á fleiri sviðum þjóðlífs en í stjórnmálum einum. Hefur athygli sérstaklega beinzt að því, sem kalla mætti atvinnulýðræði. Hugmyndin er að tryggja, að sem flestir aðilar komi við sögu við stjórn atvinnufyrirtækja og þannig verði stuðlað að því, að atvinnufyrirtækin verði rekin með hagsmuni fjöldans fyrir augum. Víða um lönd hafa verið gerðar tilraunir með að leyfa starfsfólki við atvinnufyrirtæki að kjósa fulltrúa í stjórn fyrirtækjanna, og einnig hafa verið gerðar margvíslegar tilraunir til að setja upp ýmiss konar nefndir, sem starfa með stjórnum fyrirtækjanna, og hafa þá meiri eða minni þátttöku starfsliðs í þeim nefndum. Er slíkum nefndum þá gjarnan falið einstakt verkefni í sambandi við fyrirtækin.

Allmikið hefur verið hugsað um þessi mál hér á landi, og frv. og till. hafa verið flutt á Alþ. fyrr um þetta efni. Eftir því sem ég kemst næst, munu ýmsir hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að allur þorri atvinnufyrirtækja á Íslandi sé svo lítill og starfsfólk svo fátt, að það gæti verið vandkvæðum bundið að taka upp þetta skipulag. Hins vegar verður sú mótbára ekki færð fram gagnvart sementsverksmiðju ríkisins. Þess vegna hef ég valið þann kost að leggja til, að tilraun yrði gerð með þessa tegund atvinnulýðræðis hjá sementsverksmiðjunni.

Þegar starfsliði fyrirtækja er heimilað að kjósa fulltrúa í stjórn þeirra, er tilgangurinn að jafnaði að veita starfsliðinu kost á því að láta sjónarmið sín koma fram í stjórninni, þar eð hún hlýtur að taka margar ákvarðanir um rekstur fyrirtækisins, sem mjög snerta starfsliðið sjálft. Þar að auki fá þessir fulltrúar tækifæri til þess að fylgjast með rekstri fyrirtækisins, þannig að fyrir þeim verður engu leynt. Þeir fá að jafnaði heimild til þess að veita félögum sínum upplýsingar, og á þennan hátt er útrýmt tortryggni, sem mjög oft er á milli starfsmanna og stjórnenda þeirra í ýmiss konar fyrirtækjum. Loks skapast með þessu mjög ákjósanlegt tækifæri til þess að mynda gott samstarf á milli starfsliðs og stjórnar fyrirtækja um ýmiss konar nýjungar, sem gætu leitt til aukinnar hagræðingar og betri rekstrar fyrirtækisins.

Ég lít á það sem tilraun, ef Alþ. vildi samþykkja að gera þessa breytingu hjá sementsverksmiðju ríkisins, og gæti þá nokkuð farið eftir reynslu, sem þar fæst, hvort reynt verður í framtíðinni að ganga lengra á þessari braut eða ekki.

Ég vil taka það fram, að þetta er aðeins ein af mörgum leiðum, sem eru til þess að auka lýðræði í atvinnulífi og veita hinu vinnandi fólki hlutdeild í stjórn þess. Margar aðrar leiðir eru til. Þessi leið er á engan hátt bundin við rekstrarform fyrirtækisins. Að því er ég kemst næst, hefur hún verið reynd jöfnum höndum við þjóðnýtt fyrirtæki í öðrum löndum, við samvinnufyrirtæki og við einkafyrirtæki, og þarf út af fyrir sig ekki að vera samhengi þar á milli. Jafnvel einkafyrirtæki, þar sem ætla mætti, að einn eða fáir eigendur réðu því, hvort starfsliðið fengi fulltrúa í stjórn eða ekki, hafa sums staðar farið inn á þessa braut og jafnvel fyrir tilstuðlan löggjafans.

Herra forseti. Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. iðnn.