28.02.1967
Neðri deild: 47. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í C-deild Alþingistíðinda. (1968)
139. mál, skipulagslög
Flm. (Jón Skaftason):
Herra forseti. Út af þeim aths., sem hv. 2. landsk. þm. lét hér falla áðan, sé ég ástæðu til þess að segja nokkur orð.
Það kom fram í ræðu minni áðan og raunar í ræðu hv. 3. þm. Reykn. (AJ) líka, að mjög verulegur dráttur er á skipulagsstörfum fyrir sveitarfélögin. Um það held ég, að verði ekki deilt. Hitt má svo vissulega nokkuð um deila, af hvaða ástæðum það kunni að vera, en ég hygg, að það séu fleiri en ein ástæða, sem valda því.
Megintilgangurinn með frv.-flutningi okkar er að reyna að hraða vinnubrögðum í sambandi við skipulagsstörf með því að tryggja, að þeir menn, sem vinna í skipulagsstjórn ríkisins, geti helgað þeim störfum mjög verulegan hluta af starfstíma sínum. Ég get lýst því hér yfir sem minni skoðun, að ég teldi ákaflega eðlilegt, að menn, sem tilnefndir yrðu í skipulagsstjórn ríkisins af Arkitektafélagsins hálfu og einnig af hálfu Verkfræðingafélagsins, gætu helgað sig þeim störfum fyrst og fremst, því að þörfin fyrir aukin störf í skipulagsmálum sveitarfélaganna er geysilega mikil. Þetta er sem sagt aðaltilgangurinn með frv: flutningnum. Af þessu leiðir það, að þó að einhver smáafgangur hafi orðið af skipulagsgjaldinu á undanförnum árum, er mjög sennilegt og nær vitað, að hann hyrfi fljótt, ef meiri rækt yrði lögð við þessi störf en verið hefur til þessa, og er beinlínis fyrirsjáanlegt, að þeir tekjustofnar, sem nú eru í l. og eiga að standa undir skipulagsstörfum, mundu verða alls ófullnægjandi. Ég held þess vegna, að það sé eðlilegt sjónarmið, að heimild til að innheimta skipulagsgjald hækki, úr 3 % af brunabótamatsverði verði hækkuð í 5 % eins og lagt er til í frv., og enn fremur sé eðlilegt af sömu ástæðu, að ríkissjóður greiði nokkurt mótframlag í skipulagssjóðinn þar á móti.
Ég fagna svo þeirri yfirlýsingu, sem seinasti ræðumaður gaf hér áðan, þar sem hann lýsti því yfir sem sínum skilningi, að það fé, um 5.7 millj. kr., sem nú standa inni hjá ríkissjóði, vegna þess að tekjur af skipulagsgjaldi undanfarinna ára hafa ekki verið notaðar að fullu til skipulagsstarfa, skuli endurgreitt til þessarar starfsemi.