16.12.1966
Efri deild: 30. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í B-deild Alþingistíðinda. (202)
88. mál, Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. Eins og sjá má af þskj. 173, hefur landbn. orðíð sammála um að mæla með, að þetta frv. verði samþ. Þó höfðu 3 nm. þann fyrirvara á, að þeir mundu freista þess að koma fram brtt. við þessa umr. til nokkurrar hækkunar á framlagi til framleiðnisjóðs.
Þetta frv. er komið úr Nd. og var þar samþ. ágreiningslaust, að ég hygg, en svipaðar till. komu þó þar fram um það að auka fjárráð sjóðsins, sem voru felldar.
Þetta frv. er árangur af skynsamlegum og hóflegum umr., sem fram fóru á s.l. sumri um verðlagningu landbúnaðarvara á milli stjórnar Stéttarsambandsins og ríkisstj., og ég verð að segja það, að ég hygg, að þær viðræður hafi borið heillaríkan árangur. Það náðist samkomulag um búvöruverðið, án þess að það yrði lagt í gerð, og einnig samkomulag um að gera nokkrar hliðarráðstafanir til hagsbóta fyrir landbúnaðinn, þar sem ég álít að sé mjög rétt stefnt með þessu frv.
Það hefur lengi verið svo, að framleiðsla landbúnaðarvara hér á landi hefur verið ákaflega skipulagslítil, og þetta hefur leitt í nokkrar ógöngur á síðustu árum, að því er snertir framleiðslu á einstökum búvörutegundum. Þó að ég segi þetta, þá lít ég samt svo á, að það sé of mikið gert úr því, að það horfi til vandræða, hversu mikið hefur verið framleitt hér af mjólk hin síðustu ár, því að það er mjög árstíðabundið og fer mjög eftir tíðarfari og árferði, hversu framleiðslan verður mikil hverju sinni, og ekki óeðlilegt, þótt eitthvað verði í afgangi, þegar bezt árar, enda virðist mér, að það sé nú þegar að koma í ljós, að sú aukning á mjólkurframleiðslunni, sem hefur verið nú hin síðustu ár, hefur numið staðar og er nú mun minni mjólk framleidd en var t.d. 1965. Aukningin var þá á fimmta prósent, en nú mun framleiðslan vera um 3% eða 4% minni á þessu ári en í fyrra. En hvað um það, þetta frv. gengur að mínu áliti í rétta átt og stefnir að því að styðja að betri nýtingu og betri vinnslu á búfjárafurðum, og mun nú einkum stefnt að því að stuðla að betri verkun á kjöti í sláturhúsum. Um það voru gerð sérstök lög í fyrra að skylda þá, sem taka á móti sláturvörum, að bæta mjög um sláturhúsin hjá sér.
Ég sé ekki ástæðu til að rekja þetta frv. eða efni þess, það var gert hér mjög rækilega af hæstv. landbrh. við 1. umr. málsins fyrir tveimur dögum og mun vera öllum í fersku minni. Um þær till., sem hér liggja fyrir til breytinga á þskj. 170, vil ég segja það, að ég tel þeirra ekki þörf á þessu stigi málsins og muni ekki vera málinu til framdráttar. Þetta eru till., sem komu fram í Nd. og fengu ekki hljómgrunn þar. En auk þess er svo tillaga annars eðlis, að taka lán allt að 50 millj. kr. til þess að endurlána framleiðnisjóði. Ég held, að á þessu hvorugu sé þörf að þessu sinni. Þetta er nýtt mál, og á eftir að sýna sig og sanna, hvernig til tekst með framkvæmdir, og öll þessi mál eru mjög í deiglunni. Ég held, að það sé rétt að bíða með að flytja brtt. til hækkunar við þetta frv., þangað til það er betur séð, hversu mikið fé þessi sjóður þarf að hafa til þess að fullnægja þeim verkefnum, sem væntanlega koma fram og er ekki enn svo vel séð, hver verða, að þau verði öll reiknuð út fyrir fram. Ég mun því leggja til, að þessar brtt. verði felldar. Þó að ég hins vegar játi, að það muni vera líklegt, að þessi sjóður muni þurfa á meira fé að halda, áður en langir tímar liða, þá hygg ég, að það, sem honum er ætlað nú, muni vera mjög sæmilegt til að byrja með.