14.04.1967
Neðri deild: 67. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í C-deild Alþingistíðinda. (2055)
195. mál, almannatryggingar
Flm. (Jón Ísberg):
Herra forseti. Ég flyt ásamt 7. þm. Reykv. frv. til laga á þskj. 448 til breytinga á almannatryggingalögum, sem er þess efnis, að það sé greitt með börnum foreldra eða þeirra, sem þurfa á að halda sjúkrabótum og slysabótum, ef börnin eru fleiri en þrjú. Þessi skerðing hefur þvælzt inn í lögin, ef ég má orða það þannig, fyrir misskilning. Ég tek það hér fram, hvernig þetta hefur komið inn, að þegar tryggingalögin voru sett 1946, þá voru fjölskyldubætur greiddar með 4 börnum o.fl., og þá var gerð sem sérstök ívilnun til þeirra, sem þurftu að njóta slysabóta eða sjúkrabóta, að greiða einnig með öllum börnum þeirra fjölskyldubætur. Þetta fór svo síðar þannig í gegn fyrir misgáning, að nú er ekki greitt lengur með fleiri börnum en þrem, og það er algerlega óeðlilegt. Þetta hefur í sjálfu sér ákaflega litla fjárhagsþýðingu fyrir þá aðila, sem þetta eiga að greiða, þ.e.a.s. slysatryggingadeildina og svo sjúkrasamlögin, vegna þess að það eru svo tiltölulega fáir, sem þetta snertir. En þetta er sanngirnismál, sem ég vona að hv. alþm. sjái sér fært að samþykkja, þegar þar að kemur. Ég veit, að það verður ekki fært á þessu þingi, en það koma tímar og koma ráð, og ég vona, að einhverjir taki þetta hér upp í haust og flytji fram til sigurs, því að þetta er eitt af þeim málum, sem við verðum varir við, sem störfum í þessu, en fer fyrir ofan garð og neðan hjá þeim,sem eru að reyna að hugsa þetta út og líta á þetta frá fræðilegu sjónarmiði.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri. Ég legg til, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og til heilbr.- og félmn.