28.11.1966
Efri deild: 19. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 500 í C-deild Alþingistíðinda. (2080)

70. mál, rafvæðing Vestur-Skaftafellssýslu

Flm. (Helgi Bergs):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í tilefni af því, sem hæstv. raforkumrh. hafði að segja okkur í sambandi við þetta mál. Hæstv. ráðh. minnti á till., sem samþ. var hér í sameinuðu þingi í þinglokin í fyrra og fjallaði um að rannsaka, með hvaða hætti yrði hagkvæmast leyst úr raforkuþörf Skaftfellinga. Ég man einnig vel eftir þessari till., og raunar greiddi ég henni líka atkv., þegar sýnt var, að mál mitt næði ekki fram að ganga á því þingi, þar sem ég vildi gjarnan halda málinu vakandi, og það er því fróðlegt að heyra, að hæstv. ráðh. hefur í júnímánuði s.l. skipað nefnd til þess að framkvæma þessa könnun og í septembermánuði tók hún sig til og hafði tal af oddvitum þessara hreppa austur á Kirkjubæjarklaustri og lagði þar fyrir fjóra möguleika, sem mér sýnist nú raunar tæplega vera nema þrír, því að einkarafstöðvar, sem taldar voru sem fjórði liðurinn þarna, eru ekki nein ný lausn á þessu máli. Það er þá línulögn, eins og það frv., sem hér liggur fyrir, gerir ráð fyrir, virkjun þar eystra í héraðinu með dreifilínum og dísilstöð þar með dreifilínum. Eins og ég vakti athygli á í fyrri ræðu minni um þetta mál, sparast með þessum tveim síðarnefndu leiðum línan yfir sjálfan Mýrdalssand, og ég verð að líta svo á, að hæstv. ráðh. sýni mjög mikla varúð, þegar hann treystir sér ekki til þess að gera ráð fyrir því, að sú lína mundi verða ódýrari en virkjun eða dísilstöð þar eystra. Um það vildi hæstv. ráðh. ekkert fullyrða, sem segja má, að eðlilegt sé, meðan sú n., sem hann hefur skipað, hefur ekki skilað áliti. Ég hef hins vegar kynnt mér lítillega bæði þar eystra og víðar þá starfsemi, sem þessi n. hefur haft með höndum, og ég vil nú leyfa mér að álíta, að hæstv. ráðh. kynni að geta fengið niðurstöður hennar fyrr en hann lét í veðri vaka, ef fast væri eftir því sótt. Ég mundi a.m.k. gjarnan vilja, að það yrði kannað í þeirri n., sem vonandi fær þetta mál til meðferðar, hvort ekki er hægt að fá nú fljótlega álit þessarar n., sem hæstv. ráðh. skipaði. Það er rétt, sem við vöktum báðir athygli á og hæstv. ráðh. nefndi hér áðan, að sveitirnar, sem hér er um að ræða, hafa goldið þess, að þar er línulengd nokkru hærri á bæ en á þeim stöðum, þar sem nú er verið að vinna að línum, en í því sambandi vil ég vekja athygli á því, að þarna er um alveg sérstakar ástæður að ræða, sem mjög orkar tvímælis, að þessar sveitir eigi að gjalda, þó að þarna sé óbyggður sandur á milli, sem lengir meðalvegalengdina mjög, eins og menn sjá.

Ég skal svo ekki ræða meira um þetta að öðru leyti en því, að ég vil gjarnan slá föstu tvennu, sem fram kom í ræðu hæstv. ráðh. og ég tók eftir mér til ánægju. Hæstv. ráðh. lýsti því yfir, að hann teldi, að það lægi fyrir eindreginn vilji Alþ. um það, að Skaftfellingar eins og aðrir fengju rafmagn eins fljótt og verða mætti, og í öðru lagi lýsti hæstv. ráðh. því yfir, að allir landsmenn mundu hafa fengið rafmagn á árinu 1970. Hvort tveggja finnst mér ástæða til þess, að eftir sé tekið, og þess vegna vil ég undirstrika það hér og læt svo máli mínu lokið að sinni.