13.03.1967
Efri deild: 52. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í C-deild Alþingistíðinda. (2103)
152. mál, stýrimannaskóli í Vestmannaeyjum
Flm. (Helgi Bergs):
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa mörg orð sem framsögu fyrir þessu frv. Á fimmtudaginn var, þegar frv. um stýrimannaskóla í Vestmannaeyjum, sem er á þskj. 87, var hér til 2. umr., gerði ég grein fyrir ástæðunum til þess, að ég flyt þetta frv., sem hér er um að ræða.
Þegar lög um stýrimannaskóla í Vestmannaeyjum voru samþ. á hv. Alþingi í des. 1964, var full samstaða um það á hv. Alþingi, að það væri eðlilegt, að sjómannaskóli til fiskimannaprófs væri staðsettur í Vestmannaeyjum. Á hinn bóginn eru í lögum þessum ákvæði um það, að bæjarsjóður Vestmannaeyja skuli greiða kostnað við stofnun og rekstur skólans, og um það atriði voru menn ekki sammála, þegar l. voru afgr. Þeir hv. alþm., sem réðu því, að þetta ákvæði var í l., létu sumir hverjir í ljós þá skoðun, að slíkt fyrirkomulag væri eðlilegt til bráðabirgða, þar til skólinn hefði komizt á laggirnar og sannað sinn tilverurétt. Það verður að segjast, að nú sé svo komið, og eðlilegt sé að kanna á ný, hvort ekki sé orðinn meiri hl. fyrir því, að ríkið taki á sig kostnað við starfrækslu þessa skóla eins og aðra þætti sjómannafræðslunnar.
Rekstur skólans hefur í för með sér mjög tilfinnanlegan kostnað fyrir Vestmanneyinga, eins og nú standa sakir. Á árinu 1965, sem var fyrsta starfsár skólans, var kostnaður við rekstur hans skv. reikningum bæjarsjóðs Vestmannaeyja 780 þús. kr., og á því ári var enginn styrkur frá ríkissjóði. Kostnaðarreikninga fyrir það ár hef ég enn ekki fengið, en gera má ráð fyrir, að kostnaður hafi þá verið nokkru hærri en fyrsta árið. Á þessu ári er gert ráð fyrir 400 þús. kr. styrk á fjárlögum, en gera má ráð fyrir, að kostnaður við skólann hækki nú enn, m.a. vegna þeirra laga um breytingar á kennslugreinum skólans, sem samþ. voru hér áðan. Mér hefur af þessum ástæðum, sem ég hef gert grein fyrir, þótt rétt að flytja þetta frv. og kanna með því, hvort hv. alþm. finnst ekki nú tímabært, að ríkið taki við kostnaði af rekstri þessa skóla eins og annarra þátta sjómannafræðslunnar.
Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð, heldur leggja til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.