21.03.1967
Efri deild: 56. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í C-deild Alþingistíðinda. (2112)

161. mál, togarakaup ríkisins

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Hv. ræðumaður vék að þeim hugmyndum, sem ég lét uppi hér á síðasta Alþ., að ég teldi rétt að athuga möguleika á því að fá leigt hingað til lands a.m.k. eitt skip til prófunar og reynslu og til þess að Íslendingar hefðu einhverja aðstöðu á sínum heimamiðum til þess að meta, hverju þyrfti að breyta í slíkum skipum, ef smíðuð yrðu síðar. Þetta er alveg rétt, ég lét þessa skoðun í ljós, og hef haldið þeirri starfsemi áfram síðan, svo sem í mínu valdi hefur staðið, að kanna möguleika á leigu slíks skips. En aðeins einn möguleiki hefur til orðið í þessari leit. Það var á frönsku skipi, en á svo óhentugum tíma og einnig um svo skamman tíma, að talið var að færustu manna dómi, að gæfi alranga mynd og mundi engin reynsla af því fást. Þetta er því miður allur árangurinn, sem orðið hefur af þessari leit, sem stafar m.a. af því, að skipasmíðastöðvarnar hafa smíðað þessi skip í svokölluðum seríum og byrja ekki á þessum seríum eða skipaflokkum, fyrr en þær hafa fyrir fram selt þessi skip öll, þannig að við verðum að vera komnir upp á náðir þeirra útgerðarmanna, sem skipin fá, til þess að fá slík leiguskip og þeir vilja eðlilega ekki leigja skipin nema á þeim árstíma, sem lélegastir fiskimöguleikar eru hjá þeim. En ástæðan til þess, að hugsað var um leiguskip, var í fyrsta lagi sú, að það var mun fljótvirkara að fá slíkt skip hingað með þeim hætti og hægt að finna út, eins og ég sagði, ýmis atriði, sem skipstjórnarmenn og sjómenn vildu fá breytt við hugsanlega smíði skips síðar, og til þess að tryggja það, að ekki yrði rasað svo um ráð fram, að þessi fyrsta tilraun yrði e.t.v. til þess að dauðadæma slíka veiðiaðferð í okkar hópi eða í okkar fiskveiðum. Sannleikurinn er sá, að önnur ástæðan til þess, að hugsað var um leiguskip, var sú, að farin var hér mikil ferð, ég hygg skipuð 9—12 mönnum, sem tengdir voru fiskiðnaði, bæði veiðunum og vinnslu aflans, og þeir skoðuðu slík skip, sem þá voru talin þau fremstu í Englandi, en talið, að aðrar þjóðir hafi nú rutt þeim úr vegi, og það var einróma álit þeirra að lokinni þeirri ferð, að við hefðum ekkert við þau skip að gera og okkar skip yrðu að vera byggð með allt öðrum hætti og öðrum búnaði en þau skip, sem þeir áttu kost á að skoða og fara með í reynsluferðir. Þetta var og er sá bakþanki, sem liggur að baki þeirri hugsun að fá hingað leiguskip, og ég mun halda þeim tilraunum áfram, svo lengi sem ég tel, að nokkur von sé til þess, að slíkt skip fáist. En það gæti orðið nokkuð haldgóð reynsla um byggingu þeirra skipa, sem hér er fyrirbugað að greiða fyrir og ríkisstj. hefur reyndar lýst yfir, að hún muni beita sér fyrir, að keypt verði til landsins. –Þetta vildi ég, að kæmi til skýringar á þessu atriði í ræðu hv. þm.