24.11.1966
Efri deild: 18. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í B-deild Alþingistíðinda. (212)

66. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í gildandi 1. um útvarpsrekstur ríkisins eru engin sérstök ákvæði um sjónvarp eða sjónvarpsrekstur. Þær ríkisstj., sem hér hafa setið síðan 1957 a.m.k., hafa þó litið þannig á, að sjónvarp heyrði undir útvarp eða væri einn þáttur útvarps. Hefur í því efni verið stuðzt við alþjóðlega málvenju, sem lítur svo á, að sjónvarp sé einn þáttur útvarps, „television“ sé einn þáttur „radios“. Þessi alþjóðlega málvenja kemur m.a. fram í ýmsum alþjóðasamningum, til að mynda í alþjóðafjarskiptasamningnum frá 1959, sem Ísland hefur verið aðili að síðan 1960 og gert er ráð fyrir að hafi lagagildi hér á landi í 26. gr. fjarskiptalaganna. En í þessum alþjóðasamningi segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta, að orðið útvarp eða radio sé almennt hugtak, sem tekur til notkunar útvarpsbylgna, en svo sem kunnugt er byggir sjónvarp á notkun útvarpsbylgna. Að vissu leyti má segja, að Alþ. hafi enn fremur staðfest þennan skilning núverandi og fyrrv. ríkisstj. með því að veita fé til stofnunar sjónvarps á fjárlagalið, sem einnig er veitt fé á til rekstrar útvarps, þ.e.a.s. undir heildarheitinu útvarpsrekstur. Engu að síður hefur það af lögfróðum mönnum verið talið vafamál, bæði hér á hinu háa Alþ. og utan þess, hvort sjónvarp geti talizt einn þáttur útvarps. Þykir því rétt, að lögum sé breytt á þá lund, að öll tvímæli um þetta séu af tekin. Er þetta sérstaklega nauðsynlegt vegna þess, að sjónvarp er þegar hafið á Íslandi, eins og öllum er kunnugt, og fyrir dyrum stendur að ákveða afnotagjald fyrir sjónvarpið. Er þá óskynsamlegt, að nokkur minnsti vafi geti leikið á því, að full lagaheimild sé til þess að innheimta afnotagjald af sjónvarpsþjónustu eins og útvarpsþjónustu, og er þetta höfuðástæðan fyrir því, að þetta frv. er flutt. Meginefni þess er sem sagt það eitt að taka af öll tvímæli um, að sjónvarp sé einn þáttur útvarps og sjónvarpsrekstur á Íslandi skuli vera í höndum ríkisútvarpsins eins og hljóðvarpsreksturinn.

Aðrar mjög smávægilegar breytingar eru gerðar, sem ég sé ekki ástæðu til þess að fara sérstökum orðum um, og geri ekki ráð fyrir, að neinn ágreiningur muni verða um.

Að lokinni þessari umr. leyfi ég mér, herra forseti að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn. Ég vil leyfa mér að bera þá ósk fram við hv. n., að hún hraði afgreiðslu málsins svo sem mest má verða, vegna þess að það er orðið mjög aðkallandi, að hægt sé að ákveða endanlega afnotagjald fyrir sjónvarpið, og ég geri raunar ekki ráð fyrir því, að um efni þessa frv. muni verða ágreiningur meðal hv. þm.