23.11.1966
Sameinað þing: 11. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í D-deild Alþingistíðinda. (2133)

59. mál, öryrkjaheimili og endurhæfingastöðvar

Flm. (Oddur Andrésson):

Herra forseti. Ég er þess fullviss, að öllum hv. alþm. er ljós nauðsyn framgangs þess máls, er þáltill. sú, sem hér er til umr., fjallar um. Þó vil ég leitast við að rökstyðja hana enn frekar nokkrum orðum en gert er í grg. þeirri, er henni fylgir.

Um það eru ekki skiptar skoðanir, að það er bæði mannúðar- og menningaratriði að búa sem bezt að þeim stóra hópi einstaklinga í þjóðfélaginu, sem býr við eins konar orkuskerðingu, andlega eða líkamlega, og sá hópur stækkar ört vegna hinna óeðlilega hröðu breytinga nær allra þátta þjóðlífsins. Áhugi almennings er vissulega mjög vakandi fyrir að bæta hag olnbogabarna lífshamingjunnar. Það sýna hin mörgu félagssamtök til styrktar tiltekinna öryrkjahópa. Má þar til nefna Sjálfsbjörg, styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Blindravinafélagið, Samband ísl. berklasjúklinga, Geðverndarfélagið og fleiri félög. Á vegum þessara félaga hefur verið unnið að endurhæfingu um árabil með góðum árangri. Heildarlöggjöf um þessi mál á ekki að draga úr tilvistarþörf slíkra félaga eða veikja starfsaðstöðu þeirra, heldur þvert á móti að styrkja starfsgrundvöllinn og tryggja, að allir, sem þurfa, fái notið sömu aðstöðu til endurhæfingar.

Rétt þykir mér að tilfæra hér, hvernig Oddur Ólafsson yfirlæknir á Reykjalundi gerir grein fyrir, hvað felst í hugtakinu endurhæfing, í 20. árgangi tímaritsins Reykjalundur:

„Endurhæfing er að verulegu leyti skipulagning og áætlunargerð um framtíð einstaklinga, sem vegna slyss, sjúkdóms eða meðfædds örkumls hafa minni möguleika á að sjá sér og sínum farborða en heill þjóðfélagsþegn, en þar sem þó eru möguleikar á umbótum ef samræmdar læknisfræðilegar og félagslegar aðgerðir koma til.“

Endurhæfingu er venjulega skipt í þrjú meginatriði: í fyrsta lagi læknisfræðileg endurhæfing, í öðru lagi félagafræðileg endurhæfing og í þriðja lagi atvinnuendurhæfing. Þarna þurfa því til að koma þrír aðilar: læknir, félagsfræðingur og endurhæfingarsérfræðingur. Auk þess þarf sérþekking þessara aðila að vera mjög margbreytileg eftir því, hverjar orsakir örorkunnar eru. Þrjár meginorsakir nýrra örorkutilfella nútímans eru af völdum slysa í umferðinni, hjarta- og æðasjúkdóma og geðsjúkdóma Afskiptaleysi þjóðfélagsins um velferð hinna síðast töldu, þ.e. geðsjúklinga, er slíkt, að á því sviði fyllum við flokk hinna vanþróuðustu þjóða. Þó að velmegun og öll fjárhagsleg afkoma fjöldans hér á landi sé svo jöfn og góð, að hún hefur aldrei betri verið, verður aldrei hægt að tala um velferðarríki hér, fyrr en vel hefur verið séð fyrir heimilisþörfum öryrkja og aðstöðu til endurhæfingar. Endurhæfingin er kostnaðarsöm, svo sem öll hliðstæð þjónusta, en hún er líka ábatasöm. Því til sönnunar get ég tilfært, að talið er, að hver rúmlegusjúklingur á sjúkrahúsi krefjist eins hjúkrunarliða, svo að hver sjúklingur eða öryrki, sem endurhæfing kemur á ról, sparar vinnukraft. Ef svo vel tekst, að starfsorka náist, er árangurinn enn meiri. Þó er sá ágóðinn mestur, sem aldrei verður í tölum talinn, því að með endurnýjaðri orku kemur trú á lífið og möguleikar til lífshamingju.

Á hinum Norðurlöndunum öllum hafa verið sett merk lög um þessi mál, og það má vel vera, að það verði hægt að styðjast að verulegu leyti við þau um undirbúning þessa máls hér. Undirbúningsvinna við lagasetningu að þessu er mikil og hlýtur að taka nokkurn tíma, en þörfin er brýn. Þess vegna vænti ég þess, að málið hljóti afgreiðslu hér á Alþ. og hæstv. ríkisstj. tryggi því áframhaldandi brautargengi.

Að svo mæltu legg ég til, að umr. verði frestað og málinu verði vísað til hv. allshn.