24.11.1966
Efri deild: 18. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 322 í B-deild Alþingistíðinda. (214)

66. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Að gefnu tilefni frá hv. síðasta ræðumanni, hv. 3. þm. Norðurl. v., langar mig til þess að bæta fáeinum orðum við það, sem ég sagði áðan.

Það hefur auðvitað aldrei verið tilgangur minn eða ríkisstj. að sniðganga Alþ. á einn eða annan hátt í sambandi við undirbúning að sjónvarpi á Íslandi eða stofnun íslenzka sjónvarpsins. Engum hefur komið það til hugar. Og ég tel óhætt að fullyrða, að það hafi alls ekki átt sér stað. Í því sambandi vil ég sérstaklega benda á, að engin bein ákvæði hafa verið í lögum um sjónvarp og till. hafa ekki fyrr verið fluttar um það, af því að ekki aðeins þessi ríkisstj., heldur tvær, sem á undan henni hafa setið, hafa talið, að útvarpsl., sem gilda, tækju einnig til sjónvarps. En þótt sérstök lagaákvæði hafi ekki verið í gildi um sjónvarpið í útvarpsl., hefur ekkert fé verið notað til undirbúnings sjónvarps á Íslandi né heldur til stofnunar sjónvarpsstöðvarinnar hér í Reykjavík nema samkv. ótvíræðri og skýlausri lagaheimild frá Alþ.

Á sínum tíma var samþ. á Alþ. brtt. við frv., sem þá lá fyrir um Viðtækjaverzlun ríkisins, þar sem Alþ. heimilaði ríkisstj. að nota ákveðinn hluta af tekjum Viðtækjaverzlunarinnar til undirbúnings sjónvarps á Íslandi, og enn fremur samþykkti Alþ. vorið 1964 það ákvæði í tollalög, að aðflutningsgjald af innfluttum sjónvarpstækjum skyldi ganga til stofnunar sjónvarps á Íslandi. Þessir peningar hafa síðan verið notaðir til þess að undirbúa og stofna sjónvarp á Íslandi og enginn eyrir umfram það. Hver einasta króna, sem þess vegna hefur gengið til sjónvarpsins, hefur gengið þangað samkv. skýlausri og ótvíræðri heimild Alþ. Og í nánara samstarfi en þetta tel ég ríkisstj. ekki hafa getað verið varðandi undirbúning og framkvæmd þessa máls.

Að því er hitt atriðið snertir, að ekki hafi verið ákvæði í útvarpsl. um sjónvarpið, vil ég aðeins geta þess til stuðnings þeirri skoðun, sem ríkt hefur í núv. og fyrrv. ríkisstj., að sjónvarpsrekstur var, að því er ég bezt veit, hafinn á öllum hinum Norðurlöndunum með nákvæmlega sama hætti og hér, þ.e.a.s. samkv. heimild í gildandi l. um radíó, ríkisútvarp, sem þar gilda. Að þannig hafði verið farið að á hinum Norðurlöndunum, studdi og mjög þá skoðun, sem við fylgdum í þessu efni. En hitt er annað, að eftir að látinn hafði verið í ljós efi um, að þessi skoðun væri rétt, eins og ég sagði áðan, bæði hér á hinu háa Alþ, af hinum lögfróðustu mönnum og einnig utan Alþ., er enginn hlutur sjálfsagðari en að Alþ. sjálft taki af öll tvímæli um vilja sinn í þessu efni og ákveði, hvað skuli vera lög á þessu sviði.

Ég er alveg sammála hv. 3. þm. Norðurl. v. um, að brýn þörf er á því og hefur lengi verið að endurskoða útvarpsl. í heild, og fleiri hafa verið þessarar skoðunar. Hv. 5. þm. Vesturl. hefur tvívegis á undanförnum árum flutt till. hér á hinu háa Alþ. um það, að útvarpsl. skyldu endurskoðuð. Ég beitti mér hins vegar fyrir því, að till. væri ekki samþ., af því að ég er þeirrar skoðunar og um það var ríkisstj. sammála, að rétt væri að láta endurskoðun útvarpsl. í heild biða, þar til sjónvarpi hefði verið komið á fót og nokkur reynsla fengin af rekstri sjónvarpsins, til þess að endanleg endurskoðun útvarpsl. gæti byggt á nokkurri reynslu um sjónvarpsreksturinn. Nú er svo komið, að íslenzkt sjónvarp er tekið til starfa, og ég geri fastlega ráð fyrir, að það muni taka til fullra starfa, þ.e.a.s. sjónvarpað muni verða 6 daga vikunnar, áður en langt um liður, áreiðanlega á þessum vetri, og þá tel ég einmitt þá reynslu vera fengna, sem nauðsynleg er, til þess að hægt sé að endurskoða útvarpsl. skynsamlega. Og mér er því óhætt að lýsa því yfir, að ég mun á næstunni, áreiðanlega á þessum vetri, hafa forgöngu um, að útvarpsl. í heild verði endurskoðuð, og ég vona, að það verk geti gengið svo hratt, að í öllu falli verði hægt að leggja frv. að nýjum útvarpsl. fyrir næsta Alþ., er það kemur saman næsta haust. Ég er einnig sammála um, að framkvæmd endurskoðunarinnar á fyrst og fremst að vera í höndum útvarpsráðs og útvarpsstjóra. Ég vil einnig geta þess í þessu sambandi, að um þessa málsmeðferð alla var sjónvarpsnefndin svokallaða, sem skipuð var fulltrúum allra stjórnmálaflokka, sammála.

Hún gerði beinlínis till. um það, og ég vona, að þar hafi nm. talað fyrir hönd þeirra flokka, sem þeir voru fulltrúar fyrir í sjónvarpsnefndinni, hún gerði beinlínis till. um það, að útvarpsl. yrðu endurskoðuð, þegar nokkur reynsla væri fengin á rekstur íslenzks sjónvarps.

Að síðustu vildi ég fara örfáum orðum um þá hugmynd hv. þm. að taka í þetta frv. ákvæði um dreifingu sjónvarps um landið og lögfesta í því sambandi nokkrar grundvallarreglur. Ég tel, að þetta væri mjög óheppilegt, og tel, að ekki séu fordæmi fyrir slíku í annarri hliðstæðri löggjöf. Ég vil í því sambandi fyrst og fremst benda á það, að í útvarpsl. eru engin ákvæði og mér vitanlega hefur engum dottið í hug, að í því skyldu vera ákvæði um dreifingu útvarps um landið, og er það þó að sinu leyti auðvitað alveg hliðstætt tæknivandamál og fjárhagsvandamál eins og dreifing sjónvarps um landið. Ekki eru, að ég held, í lögum nein ákvæði t.d. um dreifingu síma um landið, og er þó þar um að ræða enn þá miklu fjárfrekara fyrirtæki en dreifingu sjónvarpsins um landið, og sama má segja um dreifingu rafmagns um landið. Í raforkulögunum sjálfum eru engin ákveðin fyrirmæli um það. Og ég tel, að lagafyrirmæli um slíkt mundu geta orðið framkvæmdum öllum mjög alvarlegur fjötur um fót, vegna þess að dreifingin sjálf, tilhögun hennar og framkvæmdir í því sambandi eru tæknivandamál fyrst og fremst, sem ráða verður fram úr með hliðsjón af tæknilega hagkvæmastri lausn hverju sinni. Í því efni geta orðið mjög tíðar breytingar og þess vegna hætt við, að lagaákvæði, sem vissan tíma getur tekið að fá breytt, yrðu beinlínis fjötur um fót í þessu sambandi. Þess vegna tel ég þetta ekki mundu horfa til heilla fyrir sjónvarpið eða fyrir landsbyggðina, sem auðvitað bíður eftir því með óþreyju að fá sem fyrst að njóta þjónustu sjónvarpsins.

Að gefnu þessu tilefni þykir mér einnig rétt að síðustu að skýra frá atriðum, sem ég vona, að verði talin mikilvæg í sambandi við dreifingu sjónvarpsins um landið, sem ég gat ekki skýrt frá á fundinum í Sþ. um daginn, vegna þess að þá lágu ekki fyrir upplýsingar, sem gerðu nauðsynlegt að skýra frá endanlegum ákvörðunum í því máli. En nú hafa endanlegar ákvarðanir verið teknar og verða mjög bráðlega tilkynntar ríkisútvarpinu eða þegar í stað, eftir að þetta frv. nær fram að ganga, eins og ég vona að verði, varðandi dreifikerfið um landið. Það hefur þegar verið ákveðið og verður sennilega formlega tilkynnt útvarpinu, þegar þetta frv. hefur náð fram að ganga, að byggðar verði endurvarpsstöðvar í Vestmannaeyjum, Borgarnesi, Grindavík og Vík í Mýrdal til þess að sjá Suðurlandsundirlendi og verulegum hluta Vesturlands fyrir sjónvarpsþjónustu. Þessar stöðvar í Vestmannaeyjum, Borgarnesi, Grindavík og Vík munu tryggja Suðurlandsundirlendi og nokkrum hluta Vesturlands sjónvarpsþjónustu. Enn fremur hefur verið tekin ákvörðun um að heimila ríkisútvarpinu að byggja aðalendurvarpsstöð landskerfisins á Skálafelli og enn fremur samtímis að byggja endurvarpsstöð fyrir Norðurland á Vaðlaheiði. Þessar tvær stöðvar, Skálafellsstöðin og Vaðlaheiðarstöðin, munu tengja þéttbýlið á Norðurlandi, Akureyri, Eyjafjörð og grennd við sjónvarpsstöðina í Reykjavík, og þannig verður sjónvarpið komið til Norðurlands, og allt þéttbýlissvæði Norðurlands mun því fá að njóta sjónvarpsþjónustu í kjölfar þessarar ákvörðunar.