18.04.1967
Sameinað þing: 37. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í D-deild Alþingistíðinda. (2188)
133. mál, vegarlagning yfir Fjarðarheiði
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Fjvn. hefur haft mál þetta til athugunar og skilað um það nál., eins og fram kemur á sérstöku þskj.
Vegurinn yfir Fjarðarheiði, frá Héraði til Seyðisfjarðar, er eina samgönguleiðin á landi, sem tengir Seyðisfjarðarkaupstað við akvegasamband landsins og einnig nauðsynlegt samband við flugvöllinn á Egilsstöðum. Með hliðsjón af þeim miklu framleiðslumöguleikum, sem fyrir hendi eru á Seyðisfirði, er augljóst mál, að það er knýjandi nauðsyn, að þetta vegasamband verði endurbætt. Eins og flm. bendir á í grg. fyrir till., eru nú fyrir hendi fullkomin og afkastamikil tæki til vegagerðar við slíkar aðstæður, sem hér um ræðir. Það er álit fjvn., að þessari vegagerð verði ekki til lengdar frestað, og leggur hún því til, að till. verði samþ. með smávægilegri orðalagsbreytingu.
Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um till., en legg til, að hún verði samþ. þannig breytt.