07.04.1967
Sameinað þing: 31. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (2191)

176. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Eins og þegar hefur komið fram hér á Alþ., hefur verið unnið að skipulegum athugunum á staðgreiðslukerfi opinberra gjalda um meira en eins árs skeið. Í ársbyrjun 1986 var ríkisskattstjóra ásamt tveimur mönnum falinn undirbúningur málsins, og skilaði hann ýtarlegri skýrslu um það s.l. haust. Var þar gerð grein fyrir skipulagi staðgreiðslukerfisins í nágrannalöndum, svo og helztu vandamálum, sem lögfesting slíks kerfis hér á landi mundi hafa í för með sér. Í framhaldi af þessu var skipuð n. fulltrúa frá ríki og sveitarfélögum til þess að gera frekari athuganir á því, hvort hagkvæmt mundi að taka upp staðgreiðslukerfi opinberra gjalda hér á landi. N. þessi hefur nýlega skilað skýrslu um málið, og var henni strax dreift meðal alþm., svo að þeim hefur nokkur tími gefizt til að kynna sér málið. Þar sem sú skýrsla er hins vegar mikið mál og flókið, þykir mér rétt að reyna að draga hér fram í sem stytztu máli meginatriði þess.

Í þeim löndum, sem tekið hafa upp staðgreiðslukerfi skatta og gögn eru um, er það nokkuð mismunandi, til hvaða aðila kerfið nær og hvaða skattar eru innheimtir eftir því. Algengast er, að kerfið nái til allra einstaklinga, hvort sem um er að ræða launþega eða sjálfstæða atvinnurekendur. Þó nær kerfið eingöngu til launþega í Bretlandi og Írlandi. Skattar félaga eru yfirleitt ekki innheimtir eftir staðgreiðslukerfi, heldur eftir á. Undantekningu frá þessu er þó að finna í Svíþjóð, þar sem kerfið nær einnig til félaga Kerfið nær yfirleitt ekki til annarra skatta en þeirra, sem reiknast sem hundraðshluti af tekjum, enda hæfa slíkir skattar kerfinu bezt. Algengt er, að stighækkandi tekjuskattar séu innheimtir eftir kerfinu, en þó þekkist það, að einungis sá hluti tekna, sem skattlagður er með jafnri hlutfallstölu, sé háður því. Er hér um að ræða almennan tekjuskatt, þ.e. skatt á tekjur undir ákveðnu marki, og hefur tekjuskattur sums staðar verið breytt þannig við lögfestingu staðgreiðslukerfis, að sá hluti tekna, sem skattlagður er með einni og sömu hlutfallstölu, hefur verið aukinn verulega. Er ástæðan sú, að stighækkunin er til þess fallin að skapa ósamræmi milli bráðabirgðaskattgreiðslna ársins og endanlegs skatts, sem fram kemur við álagningu eftir á. Nefskattar og hliðstæð gjöld eru hvergi tekin með í kerfið, að því er bezt er vitað, enda eru slíkir skattar samkv. eðli málsins ekki vel hæfir sem staðgreiðsluskattar. Á það má benda, að í Svíþjóð voru skattar af þessu tagi lagðir niður við lögfestingu staðgreiðslukerfisins. Yfirleitt eru skattgreiðslur á skattárinu sjálfu aðeins bráðabirgðagreiðslur, og fer þá jafnan fram álagning eftir á samkv. framtali skattþegna Mismunur, sem fram kann að koma, er þá leiðréttur við endanlega álagningu. Sú vinna, sem framkvæma þarf við slíkan endurreikning, er misjafnlega umfangsmikil, og fer það eftir því, hversu einföld ákvæði skattalaga eru. Því einfaldari sem þessi ákvæði eru, þeim mun meiri nákvæmni næst að öllum jafnaði milli skattgreiðslna ársins og endanlegs skatts, en þetta sparar mikla vinnu og þar með kostnað við kerfið. Það þekkist, að skattgreiðslur á skattárinu séu endanlegar og engin álagning fari fram eftir á. Þessi afbrigði frá meginreglunni eru byggð á mjög einföldum reglum skattalaga um tekjur þeirra, sem þau eiga við, og er þá venjulega um að ræða hreina launþega.

Innheimta hinna opinberu gjalda, sem staðgreiðslukerfið nær til, er alls staðar sameiginleg fyrir þá aðila, sem gjöldin renna til. Ríkið hefur jafnan innheimtuna á hendi, og er gjöldunum skipt milli aðila eftir fyrir fram ákveðnum reglum á föstum gjalddögum. Að skattárinu liðnu fara svo fram endanleg reikningsskil. Þessi regla gildir á Norðurlöndunum, en í Bretlandi og Írlandi þarf hennar hins vegar ekki með, þar sem sveitarfélög þar hafa engan tekjuskatt.

Ástæður þess, að staðgreiðslukerfi hefur verið tekið upp svo víða sem raun ber vitni, eru að sjálfsögðu fólgnar í hinum almennu kostum kerfisins. Einn höfuðkostur staðgreiðslukerfis er það öryggi, sem í því felst, að skattar séu greiddir af sömu tekjum og þeir eru lagðir á því að á þann hátt er stuðlað að samræmi milli skattheimtu og greiðslugetu þegnanna á hverjum tíma Þetta öryggi tekur raunar bæði til skattgreiðenda og þeirra opinberu aðila, sem viðkomandi skattar renna til. Hið opinbera mundi njóta hagræðis af því, að tekjur kæmu inn þegar á álagningarárinu og væru því að verðgildi í samræmi við raunverulegan kostnað við framkvæmdir og veitta þjónustu þessara aðila á sama tímabili. Auk þess er það aukin trygging fyrir fljótri og góðri innheimtu, að skattar eru krafðir, áður en tekjunum er eytt. Við hérlendar aðstæður er það sérstaklega mikilvægt, að tekjur sveitarfélaga yrðu tiltölulega jafnar yfir árið. Fyrir skattgreiðendur, sem hafa mjög breytilegar tekjur frá ári til árs, mundi staðgreiðslukerfið koma í veg fyrir þau vandkvæði, sem skapast í núverandi kerfi, þegar menn þurfa að standa skil á sköttum af hærri tekjum ársins á undan með lægri tekjum yfirstandandi árs. Þetta er raunar alþekkt fyrirbrigði hér á landi og óþarft að gera frekari grein fyrir því. Loks eru þau jafnvægisáhrif á efnahagslifið, sem staðgreiðsla skatta getur haft í för með sér, talin meðal höfuðkosta slíks kerfis.

Á hinn bóginn fylgja staðgreiðslukerfi nokkrir ókostir. Þannig er líklegt, að framkvæmd kerfisins og eftirlit muni krefjast aukins átaks og kostnaðar hins opinbera í sambandi við skattamálin. Þetta atriði er þó mjög undir því komið, hversu róttækar breytingar á ákvæðum skattalaga reynist unnt að framkvæma, en síðar verður nánar vikið að þessu efni. Yfirleitt hefur reynsla annarra þjóða verið sú, að staðgreiðsla skatta hefur haft í för með sér verulegan kostnaðarauka, en jafnframt hefur tekjuaukning hins opinbera vegna betri og greiðari skattheimtu gert meira en vega þar á móti. Erfitt gæti orðið að fá næga sérhæfða starfskrafta við framkvæmd skattamálanna. Þá mun bætast nokkur vinna á launagreiðendur við að halda eftir skatti af launum starfsmanna sinna. Þetta hefur þó yfirleitt verið meira vandamál erlendis við lögfestingu kerfisins, þar sem það var viða óþekkt, að vinnuveitendur héldu eftir skatti af launum. Hér á landi er það aftur á móti algengt, eins og kunnugt er, að sköttum sé haldið eftir af vinnuveitendum, og yrði breytingin af þeim sökum ekki eins umfangsmikil og verið hefur víðast erlendis. Loks er rétt að hafa það í huga, að staðgreiðslukerfi hlýtur að krefjast verulegra breytinga á skattalöggjöfinni og framkvæmd skattamála án tillits til þess, hvers konar kerfi verður valið. Þetta er ekki ókostur á kerfinu sem slíku, en getur valdið ýmsum erfiðleikum í framkvæmd við lögfestingu þess.

Í skýrslu n. þeirrar um staðgreiðslukerfi opinberra gjalda, sem skipuð var á s.l. hausti og þm. hafa haft til athugunar, kemur fram hugmynd n. um það, hvernig hugsanlegt væri að haga staðgreiðslum hér á landi. N. lætur þess getið, að þessi hugmynd sé niðurstaða viðleitni hennar til að sætta, tvö gagnstæð viðhorf, þar sem annars vegar sé lögð áherzla á sem óbrotnast kerfi, en það mundi krefjast mjög róttækra breytinga á gildandi skattalöggjöf, og hins vegar á sem minnsta röskun gildandi skattkerfis, en það gerir kerfið aftur á móti flóknara og dýrara en ella. Mun ég nú gera gein fyrir hugmynd n. í stórum dráttum.

Staðgreiðsla opinberra gjalda á skattárinu yrði bráðabirgðagreiðsla, en að skattárinu liðnu færi fram álagning eftir framtali skattþegna. Mismunur, sem fram kynni að koma vegna skattgreiðslna ársins og endanlegs skatts, yrði krafinn eða endurgreiddur, eftir því sem við á, eftir föstum reglum. Innheimta á skattárinu að því er varðar launþega yrði byggð á einföldu skattheimtureglunni, sem svo er kölluð og skýrð er í skýrslu n. Þeir einstaklingar, sem hafa með höndum atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, svo og félög, sjóðir og stofnanir, yrðu krafðir um greiðslu opinberra gjalda á skattárinu eftir áætlun þeirra sjálfra eða eftir ákvörðun skattyfirvalda.

Gert er ráð fyrir, að staðgreiðslukerfið nái til allra skattskyldra og gjaldskyldra aðila, sem greiða eiga þau opinberu gjöld, sem kerfið nær til. Þessi gjöld eru 21 að tölu, eins og fram kemur í skýrslu n. Í þessu sambandi bendir n. á, að íslenzka skattakerfið sé frábrugðið kerfum flestra annarra landa að því leyti, að beinir skattar og gjöld, sem ekki eru miðuð við tekjur, eru mjög mikilvæg. Væri kerfið hér á landi takmarkað við þá skatta og gjöld, sem miðast við tekjur, mundi skapast óánægja meðal skattþegna, vegna þess að þeir yrðu að standa skil á verulegum hluta eftir á þrátt fyrir staðgreiðslukerfið. Til að koma í veg fyrir, að framkvæmdin yrði óviðráðanleg af þessum sökum, gerir n. þó þann fyrirvara, að svið ákveðinna gjalda verði takmarkað, önnur verði samræmd og viss opinber gjöld verði auk þess alls ekki felld inn í kerfið.

Þá má vekja á því athygli, að félög yrðu tekin með í kerfið samkvæmt hugmynd n., en erlendis munu þau ekki vera í kerfinu annars staðar en í Svíþjóð. Enda þótt innheimta skatta af félögum eftir staðgreiðslukerfi sé ýmsum erfiðleikum háð, bendir n. á það, að svonefnd atvinnurekstrargjöld, þ.e. gjöld, sem greidd eru af atvinnurekstrinum í landinu, t.d. viss tryggingagjöld, launaskattur, aðstöðugjald o.fl., séu mikilvægur þáttur opinberra gjalda hér á landi. Mundi því skapast verulegt misræmi milli félaga og einstaklinga, sem hafa með höndum atvinnurekstur, ef félög væru undanskilin. Auk þess er íslenzkri félagalöggjöf svo háttað, að auðvelt er að stofna til félags um rekstur. Með því að láta kerfið ná til félaga fengist bezt samræmi og engum yrði mismunað.

Tilhögun staðgreiðslu yrði tvenns konar eftir því, hvort um er að ræða launþega eða atvinnurekanda. Vinnuveitendur héldu eftir skatti af launum starfsfólks síns við hverja útborgun launa, en atvinnurekendur stæðu sjálfir skil á sköttum sínum. Að því er varðar launþega færu skattgreiðslur eftir skattkortum og skatttöflum, gerðum af skattayfirvöldum, og er gerð þessara gagna lýst í skýrslu nefndarinnar. Skattkort launþegans vísar til ákveðinnar skatttöflu, sem byggð er á ýmsum atriðum, er ákvarða skattskyldu hvers skattþegns. Nefndin gerir ráð fyrir nokkrum tegundum skatttaflna, og byggist mismunur þeirra fyrst og fremst á því, að gert er ráð fyrir, að útsvarsstigi verði ekki hinn sami um land allt, heldur verði sveitarfélögum gefinn kostur á að velja milli nokkurra útsvarsstiga, sem yrðu stighækkandi. Aðrir þættir, er ákvarða uppbyggingu skatttöflunnar, eru persónufrádráttur einstaklinga, hjóna og barna, tekjuskattsstigi, sem gert er ráð fyrir að verði stighækkandi, nefskattar og fastafrádráttur. Síðastnefndi þátturinn er byggður á þeirri upphæð frádráttarbærra gjalda, sem flestir launþegar ættu rétt á. Mundu þeir fá þennan frádrátt án tillits til þess, hvort samanlögð raunveruleg útgjöld þeirra af þessu tagi næðu heildarupphæð fastafrádráttarins. Ef skattþegn teldi hins vegar, að þessi frádráttarbæru gjöld væru hærri en fastafrádrátturinn, fengi hann tækifæri til að færa sönnur á það við skattayfirvöld, en í slíkum tilvikum mundu skatta- yfirvöld m.a. reikna til tekna ákveðna liði, sem ekki teldust skattskyldir hjá þeim, sem sættu sig við fastafrádráttinn. Þetta ákvæði, sem er algert nýmæli í framkvæmd íslenzkrar skattalöggjafar, miðar að því að einfalda skattgreiðslukerfið án þess þó að takmarka á neinn hátt rétt skattþegnanna Skattyfirvöld senda þessi gögn til réttra aðila, áður en skattárið gengur í garð. Launþegi skilar skattkorti sínu til aðalatvinnuveitanda, þegar hann mætir til vinnu í fyrsta sinn á akattárinu. Aðalvinnuveitandi heldur kortinu, meðan skattþegninn er í þjónustu hans, og heldur eftir skatti af launum við hverja útborgun í samræmi við upplýsingar á skattkortinu. þetta yrði algengasta aðferðin, en auk þess mundu koma til greina tvær aðrar aðferðir, sem beitt yrði við útborgun launa fyrir aukavinnu og þess háttar. Er hér í fyrsta lagi um það að ræða, að skatti sé haldið eftir samkvæmt hámarkshundraðshluta, þ.e. hæsta hundraðshluta samanlagðs tekjuskatts og útsvarsstiga með álögum, og í öðru lagi samkvæmt aukaskattkorti með sérstökum hundraðshlutum. Hámarkshundraðshluti yrði t.d. ávallt notaður, þegar launþegi gæti ekki framvísað skattkorti, en skattþegn gæti sótt um það til skattyfirvalda að fá aukaskattkort vegna aukavinnu og þess háttar. Mundi slíkt kort útgefið með lægri hundraðshluta en hámarki, ef skattyfirvöld teldu ekki á því líkur, að viðkomandi skattþegn hefði það háar árstekjur, að þær lentu í hámarksstiga Í skýrslu nefndarinnar er að finna nánari greinargerð um notkun þessara þriggja aðferða við skattgreiðslu launþega hjá atvinnuveitanda

Þá er gert ráð fyrir sérstökum reglum um skattgreiðslu þeirra skattþegna, sem bæði hafa launatekjur og aðrar tekjur umfram ákveðið mark, t.d. af sjálfstæðri starfsemi og eignum. Mundu þessir aðilar sjálfir greiða þá áætluðu upphæð opinþerra gjalda, sem á vantar, þegar skattur hefur verið greiddur af launatekjum eftir framangreindum reglum. Atvinnurekendum yrði gert að skyldu að gera fyrir upphaf skattársins áætlun um tekjur sínar ag eignir á komandi skattári, en skattyfirvöldum yrði einnig heimiluð slík áætlanagerð. Á grundvelli sjálfsuppgjörs eða áætlana skattyfirvalda yrði atvinnurekendum gert að greiða áætlaða skatta og gjöld, önnur en atvinnurekstrargjöld, samkvæmt gjaldseðlum á fastákveðnum gjalddögum. Yrði gjaldanda ljóst á skattárinu, að áætlun hans eða skattyfirvalda fengi ekki staðizt, þyrfti hann að tilkynna það skattyfirvöldum, sem tækju á ný ákvörðun um staðgreiðslu, sem gæti orðið til hækkunar eða lækkunar. Á sama hátt gætu skattyfirvöld endurákvarðað staðgreiðslu eftir vissum reglum.

Staðgreiðsla svonefndra atvinnurekstrargjalda, sem þegar hefur verið rætt um, yrði með sérstökum hætti. Á hverjum ársfjórðungi ekattársins mundu gjaldendur þessara gjalda greiða mánaðarlega bráðabirgðagreiðslur vegna þeirra, er næmu 1/3 hluta gjaldanna samkv. lokauppgjöri fyrir sama ársfjórðung ársins á undan. Ef um nýja atvinnurekendur er að ræða, mundu þessar bráðabirgðagreiðslur miðast við næsta eða næstu ársfjórðunga fyrra árs eða hreina áætlun. Á gjalddaga bráðabirgðagreiðslu 1. dag hvers ársfjórðungs yrði atvinnurekendum skylt að gera lokauppgjör fyrir næstliðinn ársfjórðung.

Hugmynd nefndarinnar um skipun staðgreiðslukerfis leiðir óhjákvæmilega til þess, að gera þyrfti veigamiklar breytingar á yfirstjórn skattamálanna, bæði álagningu skatta og innheimtu þeirra. Gerir nefndin ráð fyrir því, að við embætti ríkisskattstjóra verði þrjár deildir: ein deildin hefði með höndum yfirstjórn innheimtu, sem yrði að vera sameiginleg fyrir alla þá aðila, sem fá gjöld þau, sem innheimt verða eftir kerfinu, önnur deild hefði með höndum yfirstjórn álagningar og sú þriðja yfirstjórn skattrannsókna. Leiðir það af uppbyggingu staðgreiðslukerfisins, að allir þessir þættir verða að vera í mjög nánum tengslum.

Í sambandi við innheimtudeildina er gert ráð fyrir, að settar verði upp innheimtu- og eftirlitsstöðvar í umdæmum, sem ákveðin verða hæfilega stór til þess að tryggja skynsamlega verkaskiptingu á vinnustöðum. Greiðslur allar gangi annaðhvort til umdæmisstöðvanna eða til banka og sparisjóða Þessir aðilar greiði síðan fé til þeirra, sem það eiga að fá, samkvæmt fyrirmælum yfirstjórnar innheimtunnar.

Álagningardeildin við embætti ríkisskattstjóra færi með yfirstjórn álagningar. Stefnt yrði að því að ná sem mestu samræmi um land allt við ákvörðun hreinna tekna. og eigna, svo og annarra stofna til álagningar opinberra gjalda Enn fremur yrði stefnt að því að nýta á sem skynsamlegastan hátt starfskrafta skattyfirvalda við álagningu og ná betri og víðtækari nýtingu og beitingu skýrsluvéla í þessu sambandi. Mundi það m.a. gera álagningu ópersónulegri en nú er. Þegar álagningadeildinni hafa borizt framtalsgögn, er gert ráð fyrir að fari fram lausleg endurskoðun þeirra, þ.e. tölulegur eftirreikningur framtalinna tekna og eigna og gjaldstofna atvinnurekstrargjalda. Auk þess kanni deildin, hvort öll gögn eru fyrir hendi eins og vera ber varðandi staðgreiðslu skattþegna Hún úrskurði og um ívilnanir. En hins vegar er gert ráð fyrir, að sveitarstjórnir úrskurði um ívilnanir samkvæmt tekjustofnalögum sveitarfélaga. Að slíkri endurskoðun lokinni færu framtalsgögnin til skýrsluvéla til vélrænnar álagningar, svo og til ákvörðunar um vangreiðslur eða ofgreiðslur miðað við upplýsingar skattþegna. Reikningsskil á þessu stigi yrðu því í raun og veru gerð eftir eigin framtali og upplýsingum skattþegnanna sjálfra.

Skattrannsóknadeildin mundi fara með yfirstjórn rannsókna og eftirreikninga á álagningu opinberra gjalda. Er gert ráð fyrir gagngerri endurskoðun og rannsókn framtala Við þá endurskoðun yrði byggt á þeim upplýsingum, sem skattyfirvöld hefðu handbærar eða öfluðu sér. M.a. færi þá fram athugun með aðstoð skýrsluvéla á launatekjum og staðgreiðslu launþega, fyrri skilagreinum atvinnurekenda, svo og bókhaldsrannsóknir og aðrar nauðsynlegar rannsóknir. Allar nauðsynlegar breytingar á álagningu og beitingu viðurlaga vegna ófullnægjandi framtala yrðu ákvarðaðar þar og einnig teknar ákvarðanir um frekari aðgerðir vegna framtalssvika.

Nefndin gerir ráð fyrir, að mikill hluti framtala verði þannig úr garði gerður, að frekari aðgerða sé eigi þörf umfram þær, sem fara fram í álagningardeild. Verði því málum þeirra aðila lokið án mikillar vinnu eða fyrirhafnar af hálfu skattyfirvalda og því unnt að einbeita störfum að þeim rannsóknum, sem þýðingu hafa. Loks er þess að geta, að nefndin gerir ráð fyrir, að viðurlög vegna vanskila og annarra brota á reglum skattalaga verði þyngd verulega frá því, sem nú er, enda sé góður árangur af staðgreiðslukerfi háður því, að eftir reglum þessum sé farið og viðurlögum sé framfylgt af nákvæmni.

Af framansögðu má ljóst vera, að núverandi uppbyggingu íslenzkrar skattalöggjafar er þannig háttað, að mjög erfitt er að fella að henni staðgreiðslukerfi í nokkurri mynd. Enda þótt nefndin hafi leitazt við að setja fram hugmynd um þá tilhögun staðgreiðslukerfis, sem ekki krefst mjög róttækra breytinga á gildandi skattakerfi, er það engum vafa undirorpið, að hugmynd hennar felur í sér allviðtækar breytingar, enda er það óhjákvæmlegt. Þannig verður innheimtan að vera sameiginleg fyrir alla þá aðila, sem fá gjöld þau, er kerfið nær til. Afnema þarf rétt sveitarfélaganna til að gefa afslátt frá gildandi útsvarsstiga eða bæta á hann álagi. Koma þarf á samræmingu í álagningu tekjuskatts og tekjuútsvars að öðru leyti, og endurskipuleggja þarf álagningu og innheimtu, þannig að starf skattstofanna í núverandi formi, svo og innheimtumanna ríkissjóðs, gerbreytist. Þetta eru veigamestu breytingarnar, sem leiðir af hugmynd nefndarinnar, en auk þess koma til ýmsar aðrar smávægilegri.

Þrátt fyrir þessar óhjákvæmilegu breytingar er sú tilhögun staðgreiðslukerfisins, er nefndin hefur bent á, samt sem áður tiltölulegs flókin, kostnaðarsöm í framkvæmd og mun leiða til töluverðrar ónákvæmni í skattgreiðslu. Allt er þetta líklegt til að leiða til allverulegra framkvæmdaerfiðleika, eins og skýrt kemur fram í skýrslu nefndarinnar. Þegar hafðar eru í huga þær breytingar á skattalöggjöf og framkvæmd hennar, sem gera verður hvort sem er, ef taka á upp staðgreiðslukerfi í einhverri mynd, virðist það koma mjög til álita, hvort ekki sé æskilegt að ganga enn lengra í lagabreytingum og leggja ríkari áherzlu á að fá fram einfaldara kerfi. Með róttækari breytingum væri unnt að gera kerfið mun nákvæmara, en nákvæmni hlýtur ávallt að vera ein höfuðforsenda þess, að markmiðum þeim, sem staðgreiðslukerfið beinist að, verði náð. Mikil nákvæmni slíks kerfis mundi auk þess gera kleift að komast hjá umfangsmiklum eftirreikningi og draga þar með verulega úr kostnaði við kerfið. Í þessu sambandi virðist helzt koma til greina að gera tekjuskatta einn fastan hundraðshluta, er nái til sem flestra skattþegna. Mætti þá taka tillit til aðstöðu hinna tekjulægstu, t.d. með fjölskyldubótum, sem væru á einhvern hátt tengdar tekjum bótaþega. Þá gæti verið æskilegt að beita hátekjur stighækkandi skatti og innheimta skatt af slíkum tekjum á sérstakan hátt. Auk þess kæmi til greina að ganga lengra í að afnema ýmis smærri gjöld og sameina önnur og rannsaka möguleika á því að miða ákveðin gjöld við tekjur, sem hafa annan álagsgrundvöll nú. Breytingar af þessu tagi gætu og leitt til þess, að gera þyrfti umfangsmikla breytingu á verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og jafnframt endurskoða skiptingu gjaldstofna milli þessara aðila.

Svo umfangsmiklar breytingar sem hér hafa verið nefndar, krefjast að sjálfsögðu heildarendurskoðunar á allri skattalöggjöfinni, og yrði nauðsynlegt að vanda mjög mikið til þess verks og veita þeim, sem það verkefni yrði fengið, rúman tíma. Það ber að hafa í huga í þessu sambandi, að margt bendir til þess, að heildarendurskoðun á skattalöggjöfinni sé hvort sem er orðin tímabær, og væri alls ekki ólíklegt, að slík rannsókn leiddi í ljós, að ýmsar þær róttæku breytingar, sem nauðsynlegar eru til að gera staðgreiðslukerfið einfalt í sniðum, séu æskilegar í sjálfu sér.

Með þáltill. þeirri, sem lögð hefur verið hér fram og nú er til umr., vill ríkisstj. fá fram álit þingsins á því, hvort æskilegt sé að halda athugun staðgreiðslukerfisins áfram. Skýrsla nefndarinnar ætti að hafa skýrt alla þætti þessa máls það rækilega, að menn gætu tekið afstöðu til þessa atriðis, enda þótt þess sé ekki að vænta, að þm. séu reiðubúnir að taka afstöðu til endanlegrar tilhögunar staðgreiðslukerfisins. Ríkisstj. telur nauðsynlegt, að þingið láti í Ijós álit sitt þegar á þessu stigi, því að verði afstaða þess jákvæð, er enn mikið verk óunnið, áður en unnt verði að lögfesta kerfið og hefja framkvæmd þess. Næsta skrefið yrði þá að kynna kerfið rækilega sveitarfélögum, vinnuveitendum, verkalýðsfélögum og ýmsum öðrum hagsmunahópum þjóðfélagsins. Það hefur alls staðar verið talið grundvallarnauðsyn að taka ekki endanlega afstöðu til málsins fyrr en að lokinni ýtarlegri kynningu af þessu tagi, er enda ógerlegt að innleiða jafnvíðtækar breytingar á skattakerfinu, sem verða nauðsynlegar, ef staðgreiðslukerfið á að verða til verulegra bóta, nema um meginefni málsins sé sem mest samstaða, eigi aðeins pólitísk, heldur eigi síður við sveitarstjórnir og hina ýmsu aðila vinnumarkaðarins. Má vekja á því athygli í þessu sambandi, að í flestum löndum, sem tekið hafa upp staðgreiðslukerfi, hafa jafnan liðið nokkur ár, frá því að formlega var ákveðið að taka kerfið upp, þar til framkvæmd þess hefur hafizt. Hefur sá tími verið talinn nauðsynlegur til kynningar kerfisins fyrir framvangreindum og annars undirbúnings. Nefndin hefur og lagt ríka áherzlu á þetta atriði í niðurstöðum sínum. Hér er einnig um svo umfangsmiklar og kostnaðarsamar athuganir að ræða, að ástæðulaust er að halda þeim áfram, ef meiri hluti Alþingis kynni að telja skýrslu þá er lögð hefur verið fram, benda til neikvæðrar niðurstöðu.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að hafa þessi orð mín fleiri. Málið er mjög flókið, en ég vænti þess að sú ýtarlega og glögga skýrsla, sem hér hefur verið útbýtt og verið í höndum þm. um alllangt skeið, hafi gert þeim kleift að átta sig nokkuð á meginkjarna málsins, og að þær skýringar, sem ég hef hér gefið á höfuðatriðum þess, kunni að vera til frekari glöggvunar. Ég legg svo til, herra forseti, að till. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjvn.