07.04.1967
Sameinað þing: 31. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (2192)

176. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Ég verð að játa það, að ég hef ekki haft möguleika til þess að kynna mér þá skýrslu, sem hér er sögð hafa legið fyrir alllengi. Ég sá hana ekki fyrr en á borðinu í gærdag og hef því ekki haft tíma til að lesa hana að neinu gagni.

Það er ekki neinum efa undirorpið, að hér er um vandasamt mál að ræða og áreiðanlega ekkí hlaupið að því að segja, hvað sé bezt og æskilegast í framkvæmd þess. Mál þessi bar hér á góma fyrir nokkru í fyrirspurnatíma, og ég lagði þá áherzlu á áhuga verkalýðshreyfingarinnar á að fá breytingu á skattgreiðslukerfinu. Og áhugi launþega er ósköp augljós, þ.e.a.s. það eru hinar ójöfnu tekjur frá ári til árs, sem eru helzti grundvöllurinn fyrir óánægju manna með það kerfi, sem nú er, eins og hæstv. fjmrh. tók fram. Þegar menn eiga að greiða skatta af mun lægri tekjum ársins á eftir en voru hið fyrra ár, sem skattálagningin er miðuð við, þá koma erfiðleikarnir náttúrlega berlega í ljós. Nú einmitt á þessum vikum, þessum vetrarmánuðum, hefur þetta komið sérstaklega áberandi í ljós hér í Reykjavík, einmitt vegna þess að tekjur manna hafa dregizt verulega saman, og það er ekki óalgengt núna á útborgunardögum, að menn fái lítið annað í umslögum sínum en skattreikninga, vegna þess að tekjurnar hafa lækkað verulega vegna minnkandi vinnu og af öðrum ástæðum. Þegar svona er, verður skattgreiðslan ákaflega tilfinnanleg, og mörg dæmi væri hægt að nefna þess að nú hafa einmitt þessir launþegar naumast tekjur fyrir skattgreiðslum og húsaleigu. Það væri hægt að tilnefna mörg dæmi. Þetta er sá augljósi vandi, sem launþegarnir eiga við að stríða, og ég mundi segja, að það væri þess virði, þó að í framkvæmd gætu orðið ýmsir örðugleikar á öðru kerfi, ef hægt væri að bæta um, og mundi áreiðanlega verða til þess, áð innheimtan yrði betri, eins og virðist líka vera álit þeirrar n., sem um málið hefur fjallað.

Ég ætla ekki á þessu stigi málsins að fara að orðlengja um þetta, vegna þess að ég hef ekki heldur getað kynnt mér skýrslu n. En nokkur atriði rakst ég á í niðurlagi grg. n., þar sem taldir eru fram ókostir þessa kerfis. Það er talað um, að það muni verða allmiklu dýrara í framkvæmd og m.a. verða launagreiðendum, þ.e.a.s. atvinnurekendum, mun óhagstæðara, valda þeim auknu álagi. Ég satt að segja efast um, að hér sé um neitt stórvægilegt atriði að ræða. Það er eins og hæstv. fjmrh. tók fram, þá eru atvinnurekendur nú þegar aðalinnheimtumenn skatta í þessu þjóðfélagi, og ég efast um, að breyting til slíks kerfis yrði neitt sem næmi, — ég þori ekki að segja neitt um það, — neitt sem kæmi til frekari byrði fyrir þá heldur en það kerfi, sem nú er notað. Þetta getur sjálfsagt orkað tvímælis, hve mjög á að leggja á atvinnurekendur í þessum efnum, og spurning þá, á hvern hátt eigi að taka tillit til þess máske. En breytingin ein held ég að verði ekki til þess að auka þeim neitt verulega óhagræði.

Þá er einnig tekið til, að þetta nýja kerfi gæti haft óhagstæð áhrif á vinnuframboð, vegna þess að menn yrðu ófúsari til þess að leggja á sig aukavinnu. Þetta er að sjálfsögðu alveg órannsakað mál, og reynslan yrði úr að skera. Annað atriði er það, að nm. telja, að þessi breyting gæti orðið til þess að ýta undir frekari launakröfur, vegna þess að menn miðuðu þá við nettótekjur, en ekki við brúttótekjur, eins og nú er. Það má vel vera, að eitthvað yrði í þessa átt varðandi bæði þessi atriði. En ég verð að segja, að ég held, að þar væri ekki neinn þjóðfélagslegur voði á ferðinni. Það vita allir, að yfirvinna hér hefur verið að mörgu leyti vegna þess, að kaupið er of lágt, bæði af þörf verkamannsins og hagræði atvinnurekandans að greiða hið lága kaup, þó að það sé fyrir yfirvinnu, og þá minna hugsað um að hagræða störfum svo, að hægt væri að vera án yfirvinnunnar, og verkin gerð kannske dýrari en ella yrði. Þó að það hefði áhrif í þessa átt, hið nýja kerfí, þ.e.a.s. að menn yrðu ófúsari til þess að leggja á sig aukastörf, og jafnvel gæti ýtt undir launakröfur, þá tel ég þar ekki neinn þjóðfélagslegan voða á ferðinni, því að jafnhliða mundu áreiðanlega þeir, sem við það þyrftu að búa, sjá til þess að búa betur í haginn fyrir sig á annan hátt.

Það er einnig talað um, að hér séu erfiðleikar á ferðinni vegna þess, að beinu skattarnir, nefskattarnir, séu svo stór hluti í okkar skattgreiðslum og stærri hluti en annars staðar gerist. Það mundi áreiðanlega að mínum dómi vera til athugunar, hvort ekki ætti einmitt hér að breyta verulega til, og það varðar auðvitað svið þessara breytinga að mörgu leyti, hve langt á að ganga, eins og hæstv. fjmrh. tók fram í sinni ræðu. En ekki teldi ég skaða skeðan, þó að beinu skattarnir yrðu minni og hins vegar meira gert að því að leggja á eftir tekjum, færa beinu skattana inn á það svið.

Þá er áreiðanlega hægt að velta því fyrir sér, hve víðtæk breytingin á að verða, hvort hún á að ná til launþeganna einna saman, og gæti jafnvel verið spurning um, hvort taka ætti allt landið í einu. Ég skal ekki leggja á það dóm, en ég held að það væri hægt að athuga þá hlið málsins, hve viðtækar þessar breytingar eigi að vera.

Hér virðist nú loks liggja fyrir raunveruleg athugun á breytingum til staðgreiðslukerfisins, — athugun, sem að vísu er búið að margsegja að hafi farið fram á undanförnum árum. Það er í æðimörg ár búið að skýra frá því, að málið hafi sífellt verið í athugun, og æði oft er búið raunverulega að dagsetja framkvæmd málsins, sagt, að það ætti að koma til framkvæmda þetta og þetta árið. En allt þetta hefur reynzt vera orðin ein, en loks nú virðist liggja fyrir sá grundvöllur, sem hægt er að byggja á mat á þessum málum og frekari beinar athuganir. Ég sé ekki annað en sá framgangsmáti, sem hér er lagður til, þ.e.a.s. að Alþ. heimili áframhaldandi athugun á þessu máli og að leitað verði álits þeirra, sem það mjög snertir, m.a. samtaka vinnumarkaðarins, — ég sé ekki annað en það sé eðlilegur framgangsmáti, úr því sem komið er, og ég er sammála hæstv. fjmrh. um, að það er að sjálfsögðu nauðsynlegt að gera öllum, sem hlut eiga að máli, ljósa grein fyrir eðli málsins og framkvæmd þess og því sé samþykkt þessarar þáltill. sjálfsögð, eins og málum er nú komið, jafnframt því sem verður að harma það, að það, sem áður hefur verið sagt um þessi mál, og jafnvel æðistór orð, sem hafa verið látin falla á undanförnum árum um, á hvaða stigi þessi mál væru, virðast hafa verið orðin ein og ekki annað.