07.04.1967
Sameinað þing: 31. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (2193)
176. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Ég skal ekki fara að lengja umr. um þetta mál á þskj. 178 og skýrslu þeirrar n., sem athugaði um staðgreiðslu opinberra gjalda. En í sambandi við skýrsluna og það, sem fram kom hér hjá hv. síðasta ræðumanni, hv. 3. landsk., vil ég taka það fram, að vinnubrögð þeirra, sem mest unnu í n. og mótuðu stefnu hennar um afgreiðslu málsins, voru fyrst og fremst miðuð við það að gefa sem hlutlausast mat á þeim atriðum, sem telja mætti kosti og galla, en ekki verið að túlka eða reyna að gera of mikið, hvorki úr göllum né kostum þess, sem þarna er við að fást. Hins vegar hygg ég, að það hafi verið skoðun n., a.m.k. er það mín skoðun, að hér sé á ferðinni mál, sem eigi að athuga áfram og gaumgæfilega.
Ég tek undir það, sem kom hér fram hjá hv. S. landsk. og hæstv. ráðh., að það, sem hér skiptir meginmáli, er sú áhætta, sem bæði launþeginn og t.d. sveitarfélögin eru í sambandi við sveiflur, sem eru á tekjum manna. Hér getur verið, eins og nú er orðið, um stórkostlegar fjárhæðir að ræða, svo að einstaklingar geta þar af leiðandi verið orðnir stórskuldugir án þess að hafa raunverulega gert sér grein fyrir því. Enginn vafi er á því, að ekkert tryggir þá betur en það, að skattarnir séu teknir jafnharðan, svo að launþeginn hafi ekki þetta fé handa á milli. Og það tryggir líka sérstaklega sveitarfélögin, sem styðjast fyrst og fremst við beinu skattana, það tryggir þau betur en nokkuð annað að fá innheimtuna, um leið og teknanna er aflað, vegna þessarar miklu hættu, sem þau eru í, ef tekjurnar lækka mikið hjá einstaklingunum það árið, sem þeir eiga að greiða háu gjöldin. Allar slíkar sveiflur gætu haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinga, sveitarfélögin og þjóðfélagið í heild, og þess vegna ber að leita að leiðum til að forðast það. Þess vegna mæli ég með því, og eftir að hafa unnið í þeirri n., sem samdi þessa skýrslu, sem hér er til umr., mæli ég eindregið með því, að áframhaldandi athugun verði gerð á þessu máli. Það er þess vert, að það verði gert, og mér sýnist, að margt muni benda til þess, að stefnan verði sú, að inn á þessa leið verði farið. Hitt er líka alveg ljóst, þegar farið er að kafa í þessi mál, að hér er um verulega byltingu að ræða frá því, sem er nú í sambandi við skattamál okkar, og við þurfum að vanda mjög undirbúning málsins.
Í sambandi við till. þá, sem hér liggur fyrir á þskj. 178, hefði ég talið eðlilegast, að það væri mþn., sem væri kosin af Alþ., sem fjallaði um málið áfram, — eðlilegra en að ríkisstj., hver sem hún kann að verða, skipaði n., sem um málið á að fjalla. Mér sýnist þetta mál vera þannig vaxið, að það geti ekki orðið deilumál á milli flokka. Að vísu geta komið upp í því pólitísk atriði, sem skipta mönnum í flokka síðar meir, en á þessu stigi er það ekki, og ég hefði talið, að það væri mjög æskilegt að fá um þetta mál víðtæka samstöðu flokka á milli, svo og þeirra aðila, sem þetta varðar mestu.
Ég hefði viljað skjóta því til hæstv. ráðh. og þeirrar n., sem um mál þetta fjallar, hvort ekki væri hugsanleg samstaða um það, að Alþ. kysi n., en hún yrði ekki stjórnskipuð. En ég legg áherzlu á það, að málið ar þannig vaxið, að það á að halda áfram rannsókn á því.