18.04.1967
Sameinað þing: 37. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (2206)
177. mál, ellefu hundruð ára afmæli byggðar á Íslandi
Frsm. (Birgir Finnsson):
Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 554, leggur fjvn. til, að tillgr. verði breytt í það horf, sem þar greinir. Aðalbreytingin er fólgin í því, að það eru ekki nefnd í tillgr. tiltekin atriði, sem nefnd voru í upphaflegu till., eins og hún var lögð fyrir, og kveðið er á um það, að undirbúningsnefnd landnámshátíðarinnar skuli hafa samráð við ríkisstj. og bera meiri háttar ákvarðanir sínar undir hana, áður en framkvæmdir hefjast. Eins og fram kemur í nál. fjvn. á þskj. 555, er ætlunin með þessu m.a. sú, að ríkisstj. hafi aðstöðu til að hafa samráð við þingið eða þingflokkana um meiri háttar ákvarðanir. En þetta mál er þess eðlis, að æskilegt er talið af öllum, að um það náist sem víðtækust samstaða og ef taka þurfi meiri háttar ákvarðanir varðandi þetta mál utan þingtíma, þá sé æskilegt, að hæstv. ríkisstj. hafi um það samráð við þingflokkana, eða formenn þeirra.
Eins og fram kemur í nál., er það hugmyndin um þjóðarhús á Þingvöllum, sem fjvn. tekur fyrir sitt leyti ekki undir, en aftur á móti kemur fram í nál. ábending n. um það, að bæta þurfi til muna aðstöðu til gestamóttöku á Þingvöllum frá því, sem nú er. Einnig kemur það fram í nál., að fjvn. menn eru ekki sammála till. þjóðhátíðarn. eða landnámshátíðarn. um 58 binda útgáfu, og fjvn. telur slíkt fyrirtæki of viðamikið, en hins vegar er tekið mjög undir þá ábendingu, sem einnig kom fram í nál. landnámshátíðarn., að í tilefni ellefu hundruð ára afmælishátíðarinnar yrði gefin út heilleg Íslandssaga frá upphafi byggðar til vorra daga. Þrátt fyrir þetta er að sjálfsögðu ekki fyrir það girt, að meira verði um bókaútgáfu í tilefni hátíðarinnar en þarna er ráðgert. Auðvitað gætu þau mörgu bókaútgáfufyrirtæki, sem fyrir eru í landinu, skipt á milli sín verkefnum á þessu sviði og gefið út t.d. söfn eða sýnishorn fornrita og ljóða og fræðirita í tilefni afmælisins. Þá er í niðurlagi nál. frá fjvn. tekið undir þá ábendingu, að stefnt verði að því að koma upp nýju alþingishúsi í tilefni landnámshátíðarinnar, og er tekið fram í nál., að fjvn. vænti þess, að grg. um það mál verði lögð fram á næsta þingi af n. þeirri, sem falið hefur verið að gera till. um framtíðarhúsnæði Alþingis. Eins og hv. alþm. vita, var kosin n. í þessu skyni 1961, sem er þannig skipuð, að í henni eiga sæti forsetar Alþingis og fulltrúar þingflokkanna. Ég skal ekki ræða þinghúsmálið sérstaklega að þessu sinni.
Ég vona, að sá tími, sem fer í hönd fram að næsta þingi, geti nægt til þess, að þessi n. geti skilað áliti, og að málið komi þá til umr. hér á hv. Alþingi í haust, fljótlega eftir að þing kemur saman.
Það hafa 2 hv. nm. fjvn. skrifað undir þetta nál. með fyrirvara, annar þeirra, hv. 3. þm. Austurl., hefur óskað þess við mig, að ég tæki fram, að hans fyrirvari byggðist á því, að hann sé að sumu leyti ósamþykkur þeim skoðunum, sem fram koma í grg., en sé hina vegar samþykkur sjálfri till. Ég geri ráð fyrir, að hið sama gildi um hv. 2. þm. Sunnl., sem einnig hefur skrifað undir þetta nál. með fyrirvara, og veit ég, að hv. þm. eru kunnar skoðanir þessara tveggja hv. þm. á þinghúsbyggingarmálinu.
Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar, herra forseti, en mæli með því fyrir hönd fjvn., að tillgr. verði samþ. með þeirri breyt., sem fram kemur á þskj. 564.