18.04.1967
Sameinað þing: 37. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (2209)

177. mál, ellefu hundruð ára afmæli byggðar á Íslandi

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þó að það skipti ekki miklu máli, vil ég segja út af aths. hv. síðasta ræðumanns, að við kvöddum okkur hljóðs samtímis, þó að forseti tæki eftir honum, en ekki mér, svo að ég ætlaði að segja nokkur orð um þessa till.

Brtt. var borin undir mig af hv. frsm., og hafði ég út af fyrir sig ekkert við hana að athuga. Ég tel, að efniságreiningur hér sé í raun og veru minni en í fljótu bragði mætti virðast, vegna þess að í till. frá ríkisstj. var ekki tekin afstaða til neinnar af till. n. efnislega, heldur lögð höfuðáherzla á, að þær þyrfti að kanna betur en enn hefði verið gert og ákvarðanir væri ekki hægt að taka, fyrr en slík athugun hefði átt sér stað. Nú er það auðvitað alveg ljóst, að hv. n. hefur ekki getað athugað þessar till. til neinnar hlítar á þeim stutta tíma, sem til ráðstöfunar befur verið, enda hefur hún haft ærnum öðrum störfum að gegna. Og að því er mér hefur skilizt, m.a. af viðtölum við nm., hefur ekki í hugum þeirra verið sá sami skilsmunur á væntanlegri gistihúsbyggingu á Þingvöllum og þjóðarhúsi, eins og ég gerði ráð fyrir í minni framsöguræðu hér á dögunum, vegna þess að n. mun hafa ráðgert, sem raunar að athuguðu máli sýnist vera óhjákvæmilegt, að í væntanlegu þjóðarhúsi yrði aðstaða til nokkurrar gistingar og greiðasölu. Það er við skoðun alveg ljóst, að bygging slíks húss á Þingvöllum án þeirrar aðstöðu er algerlega óraunhæf. Og ég held, að menn hafi gert of mikið úr því þjóðarhúsi eða því bákni, sem ætti að fara að byggja á Þingvöllum samkv. þessum hugmyndum, bæði við umr. um málið í n. og eins í blaðaskrifum og manna á meðal. Ég held, að það só alveg ljóst, að nauðsyn er á því að koma upp betri aðstöðu á Þingvöllum, bæði til samkomuhalds og til gistingar, en nú er, og ég tel eðlilegt, að að því verði stefnt, að þetta verði gert fyrir þjóðhátíð 1974, m.a. vegna þess, að ég geri ráð fyrir, að flestir eða allir telji sjálfsagt, að mikill hluti þeirrar hátíðar fyrir landsmenn alla yrði háður á Þingvöllum.

Nú vitum við, að það er að vísu mjög misjafn háttur á slíkum byggingum eftir því, hvar komið er. En víða er það svo, að mikils háttar samkomusalir og möguleikar til fundarhalds eru einmitt reistir í sambandi við gististaði og eru hluti af gististöðum, og ég mundi telja, að það gæti vel komið til álita, að eitthvert einkafjármagn yrði fengið til byggingar viðhlítandi gististaðar á Þingvöllum og í sambandi við það yrði með tilstyrk ríkisvaldsins án óhæfilegs kostnaðar komið upp möguleika til þess að hafa þar bæði íslenzka og alþjóðlega fundi, sem okkur vantar nú rúm til. Ég sé ekki, að þetta þyrfti að vera neitt óviðráðanlegt eða þyrfti að kenna neitt við ævintýrí, eins og gert hefur verið, jafnframt því sem ég vil lýsa þeirri minni skoðun, að ég fellst alls ekki á, að það sé réttnefnt neitt Skálholtsævintýri, sem menn hafi lagt út í af ráðleysu. Ég tel, að það hafi verið þveginn skammarblettur af landinu með þeim byggingum, sem enn hafa verið reistar í Skálholti. Við, sem komum þar fyrir nokkrum árum, blygðuðumst okkar fyrir að koma að Skálholti. Það varð beinlínis að neita gestum um að koma til Skálholts, sem þangað vildu koma, eins og núverandi konungi Noregs, sem óskaði eftir því, þegar hann ferðaðist hér um í sambandi við Snorrahátíðina, að koma í Skálholt. Það voru allir sammála um, að það væri ekki frambærilegt að láta manninn koma að Skálholti, eins og þar var þá umhorfs. Og Skálholtskirkja er vissulega til prýði, ekki einungis fyrir Skálholtsstað, heldur fyrir íslenzku þjóðina í heild og það hús, sem þar hefur verið reist, er kannske óþarflega stórt fyrir prest, en ekki stærra en svo, að annað eins hafa menn séð. Og það er eftirtektarvert, að eftir að þessar umbætur voru gerðar á Skálholti, hafa allir orðið sammála um að byggja óþarflega stór, en sæmilega vegleg prestsseturshús bæði að Borg og í Odda, vegna þess að menn sjá, hvaða niðurlæging það er fyrir landið að hafa þá kofa, sem á þessum stöðum voru áður, á þeim stöðum, sem erlenda menn helzt fýsir að koma á, þegar þeir vilja fara á íslenzka sögustaði. Hitt er svo allt annað mál, að menn geta verið ósammála því, að það hafi verið keypt bókasafn til Skálholts og hvort þar á að verða lýðháskóli eða ekki. Það kemur ekki við þeim mannvirkjum, sem enn hafa verið reist í Skálholti, sem ég tel vera hófleg, staðnum til prýði og Íslendingum til sæmdar.

Ég tel, að það sé eðlilegur þáttur hátíðarhalds til minningar um ellefu hundruð ára byggð á Íslandi, að það verði komið upp sæmilegum gististað á Þingvöllum og í því sambandi verði séð til þess, að hægt sé að hafa þar bæði mannfundi í húsum, ætlað rúm til þess, og þá einnig verði það byggt með þeim hætti, að hægt sé að hafa sæmilega útifundi. Ég held, að þetta eigi ekki að þurfa að kosta neitt of fjár, ef skynsamlega er að farið, auk þess sem ég er alveg sannfærður um af þekkingu minni og vist á Þingvöllum nokkur sumur og hafandi komið þar að vetrarlagi, að það á að vera vel hægt að reka þar sæmilegan gististað án nokkurra spjalla fyrir staðinn, þannig að ekki þurfi að verða stórtap á, ef það er hóflega farið í sakir og sæmilega skoðað. Ég held þess vegna, að menn hafi hér vexið að búa sér til grýlu og það sé eðlilegt, að n. sé ætlað að skoða þetta mál nokkru betur. Hitt skaðar ekkert, að það komi alveg skýrt fram, að menn hugsa sér ekki þarna neina milljónatugabyggingu, enda held ég, að það hafi ekki vakað fyrir mönnum, — byggingu, sem síðan stæði auð mestan hluta ársins og væri einungis til skrauts eða tildurs. Ég held, að það hafi verið utan við hugmyndir n. En annars veit ég lítið meira um þær en þm. almennt, vegna þess að n. starfaði alveg sjálfstætt og án leiðbeininga eða samráðs við ríkisstj. En úr því að n. þykir betra að hafa ályktunina í því formi, sem hún gerir till. um, hef ég ekkert við það að athuga.

En ég tek alveg skýrt fram út af brtt. hv. 3. þm. Norðurl. e., að ég tel hana óþarfa. Það getur ekki komið til greina, að n. verði falið ótakmarkað fjárveitingavald eða ákvörðunarvald, hvorki um stórbyggingar á Þingvöllum, um þinghúsbyggingu né neitt slíkt. Þessar ákvarðanir hlýtur Alþ. að taka með fjárveitingum, eftir atvikum samkv. till. ríkisstj., eftir atvikum að eigin frumkvæði, og meðan ég hef um þessi mál að fjalla, samþykki ég ekki, að það verði ráðizt í neinar slíkar framkvæmdir, sem eðli málsins samkv. heyra undir ríkisstj. og Alþ. Mér finnst það vera eðlilegt, að n. sé falið nokkurt framkvæmdavald, henni sé falið að annast nánari undirbúning að þeim hugmyndum, sem hún setur fram. Nál. gefur henni vissar leiðbeiningar, sem við erum allir sammála um, að ekki eigi að fara að ráðast í neinar stórkostlegar hallarbyggingar á Þingvöllum, sem ekki koma að neinu almennu gagni. Ég geri ráð fyrir því, að að athuguðu máli finnist okkur 50—60 binda útgáfa vera nokkur ofrausn. Nú segir n. það, að hún hugsi sér, að um þetta verði haft samráð við fleiri útgáfufyrirtæki og þá að menn réðu því, hvað þeir keyptu af þessu, og ég held, að menn mikli þetta líka í sínum huga. Hér er gefinn út fjöldi bóka og bókasafna á hverju einasta ári, án þess að menn kippi sér nokkuð upp við það, og víst getur það hvort tveggja farið saman að gefa út nokkur úrvalsrit bókmennta Íslendinga um mörg hundruð ára bil og það sé lokið við Íslandssögu. Og ég á eftir að sjá, að útgáfa slíks safnrits, sem hér er talað um, yrði nokkur kvöð á ríkissjóði eða þeim, sem þar kæmu nærri. Við vitum, að það er gróðavegur að selja hér erlendar alfræðiorðabækur fyrir mikið fé. Erlendir bókaútgefendur mér kunnugir hafa sagt, að þeirra helzti gróði væri einmitt af sölu slíkra safnrita, miklu meiri en gróði af venjulegri bókaútgáfu, sem þeir teldu yfirleitt sáralítinn.

Ég held, að menn þurfi þess vegna ekki að mikla það fyrir sér, sem hér sé í hugum n., og það sé eðlilegt, að hún haldi athugun málsins áfram og semji um það nánari grg., láti sínar hugmyndir koma fram, hafi eðlilegt samráð við ríkisstj. og ríkisstj. aftur við Alþ., eins og ég skil till. fjvn. vera, og úr því að henni er rórra að hafa það form á, sem í till. segir, set ég mig sízt á móti því. En ég get nú ekki stillt mig um að spyrja að gefnu tilefni, vegna þess að n. hefur talið, að Alþ. yrði of ánetjað, ef hin upphaflega till. yrði samþ., hvort í þessum orðum, sem segir í nál.: „Að öðru leyti en hér hefur verið nefnt er fjvn. yfirleitt hlynnt till. landnámshátíðarnefndar, þ. á m. till. um byggingu á eftirlíkingu af sögualdarbæ,“ — nær þetta líka til þess, að það eigi að smíða víkingaskip og sigla því um heimshöfin?