18.04.1967
Sameinað þing: 37. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í D-deild Alþingistíðinda. (2213)
177. mál, ellefu hundruð ára afmæli byggðar á Íslandi
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég held, að það hljóti að standa þannig á, að hv. 3. þm. Vesturl. hafi ekki verið í salnum, þegar ég talaði hér áðan, og að einhver hafi flutt honum eitthvað brenglaða frétt af því, sem ég sagði um þetta mál, því að annars mundi hann ekki hafa sagt, að ég hefði farið með útúrsnúninga í mínu máli. Það gerði ég svo sannarlega ekki. Og ef einhver er þeirrar skoðunar og hefur sagt hv. þm. slíkt, þá vil ég algerlega mótmæla því, að ég hafi verið með nokkra útúrsnúninga í þessu máli. Ég tel mig hafa rætt það algerlega málefnalega og hef enga ástæðu til annars og ekki ástæðu til þess að snúa út úr fyrir neinum. Hins vegar vil ég segja það, að mér finnst, að það hafi verið dálítið misheppnað, ef hv. fjvn. hefur farið að líta á sig þennan hálftíma eða svo, sem hún var að athuga þetta mál, sem eins konar þjóðhátíðarnefnd, sem ætti að fara að gera sundurliðaðar till. um, hvað gera skyldi og ekki mætti gera í samþandi við hátíðina.