18.04.1967
Sameinað þing: 37. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í D-deild Alþingistíðinda. (2232)

184. mál, vegáætlun fyrir árin 1967 og 1968

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt þremum öðrum þm. úr Norðurl. e. að flytja eina brtt. við endurskoðun vegáætlunarinnar. Þessi tillaga er um það, að vegurinn, sem liggja á milli Árgerðis og Karlsár í Dalvíkurhreppi, verði lagður á þessu ári. Eins og mönnum er kunnugt, er nú búið að opna akvegasamband milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur um Ólafsfjarðarmúla, en þetta hefur það í för með sér, að það er mjög aukinn umferðarþungi um Dalvík, og kemur þannig út, að þetta bæði eykur slysahættu þar í. kauptúninu og eins er það mikið álag á vegina eða götur kauptúnsins, þar sem umferðin liggur nú í gegn. En framtíðarvegurinn á að liggja á nýju vegarstæði ofan við meginbyggðina á Dalvík, frá brúnni hjá Árgerði og þar norður um að bænum Karlsá yzt í kauptúninu. Nú var það till. okkar fjórmenninganna, að þessi vegur yrði lagður í sumar, og við lögðum því til, að það yrðu veittar 2 millj. kr. til þessa vegar. Nú sé ég, eftir að við höfum lagt fram okkar till., að fjvn. hefur tekið upp þennan sama veg í till. sínar. Að vísu er sá munur á till., að við leggjum til, að veginum verði lokið á þessu ári, 1967, og þá veittar 2 millj. kr. á þessu ári. En fjvn. leggur aftur til, að veginum verði lokið á tveimur árum, á árunum 1967 og 1968. Ég. get vel fallizt á, að vinna megi verkið með þessum hætti, og vil í því sambandi taka það fram, að ég tel ekki ástæðu til fyrir okkur að halda okkar till. til streitu, og mun því leggja til, að hún verði tekin aftur.