06.12.1966
Efri deild: 21. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í B-deild Alþingistíðinda. (225)

66. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Þorvaldur G. Kristjánsson:

Herra forseti. Ég hef í rauninni litlar aths. að gera við ræðu hv. síðasta ræðumanns, en þó vil ég aðeins í örfáum orðum víkja að því, sem hann sagði. Hann sagði, að ég hefði miðað við 5 ára áætlun sjónvarpsnefndar. Þetta er rétt. Og ég sagði líka, að ég hefði ekki á móti því, að þetta sé gert á skemmri tíma. .Ég held, að það sé ákaflega litið, ef það er eitthvað, sem skilur á milli okkar hv. 4. þm. Austf. um, hvenær það eigi að vera búið að dreifa sjónvarpinu. Ég held, að við séum báðir sammála um, að það sé gert eins fljótt og hægt er. En ég lagði áherzlu á það, að eftir því sem meiri hraði er á framkvæmdum, eftir því þarf meira lánsfjármagn. Þess vegna tel ég mána till. raunhæfari en hans, þegar litið er á verkið í heild. En ég ætla ekkert að fara að deila við hann um það. En til þess að skýra, hvað það þýðir í þessu sambandi, ef farið er eftir áætlun sjónvarpsnefndar, þá yrði eftir að dreifa sjónvarpinu til ca. 5% af þjóðinni árið 1969. Ég hef, eins og ég hef áður sagt, ekki verið á móti því, að það sé á skemmri tíma hægt að ljúka dreifingu til þessara 5%, og ekki gefið neitt tilefni til, að menn haldi það.

Hv. þm. fannst, að það væri einhver goðgá, að ég hefði sagt svo í minni ræðu, að ég gæti ekki fullyrt um það, hvað þyrfti að nota mikið af þessari 100 millj. kr. lánsheimild. Ég viðurkenni það alveg fúslega, að ég hef ekki fullvissu um það. En mér finnst, að það minnki ekki gildi minnar till. og ég hafði hana einmitt rúma vegna þess, að það er mjög erfitt að segja um þetta. Ég tel, að till. hv. 4. þm. Austf. sé of þröng. Og hverjar sem lyktir þessa máls verða á þessu þingi, hygg ég, að það þurfi ekki minni fjárhæðir að láni en ég hef látið mér til hugar koma og gert ráð fyrir í þessum umr.

Það má kannske segja, að það sé ekki aðalatriðið, hvað lánsheimildin er samþ. há núna, því að það kemur þing eftir þetta þing, og það má að sjálfsögðu alltaf breyta þessum lögum.