19.10.1966
Sameinað þing: 5. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í D-deild Alþingistíðinda. (2254)
13. mál, hlutverk Seðlabankans að tryggja atvinnuvegunum lánsfé
Flm. (Þórarinn Þórarinsson):
Herra forseti. Þessi till. fjallar um það, að Alþ. skori á ríkisstj. að hlutast til um, að Seðlabanki Íslands kappkosti að fullnægja því hlutverki, sem honum er ætlað í lögum frá 3. marz 1961, að vinna að því, að framboð lánsfjár sé hæfilegt miðað við það, að framleiðslugeta atvinnuveganna sé hagnýtt á sem fyllstan og hagkvæmastan hátt.
Ég held, að öllum hv. þm. hljóti að vera það kunnugt, að landssamtök atvinnuveganna hafa tæpast haldið svo fundi að undanförnu, að ekki hafi verið kvartað undan því, að stórkostlega hafi dregið úr lánveitingum til atvinnuveganna á undanförnum árum. Og það þarf ekki annað en líta á nokkrar tölur, sem birtar eru í Fjármálatíðindum, til þess að gera sér grein fyrir því, að þetta er ekki að ástæðulausu. Í því sambandi er fyrst rétt að athuga þá hækkun á rekstrarkostnaði atvinnuveganna, sem orðið hefur á undanförnum árum. Eftir þeim skýrslum, sem fyrir liggja, mun ekki fjarri lagi að gera ráð fyrir því, að síðan 1959 hafi launagreiðslur fyrirtækja alltaf hækkað um 150% eða jafnvel meira. Þetta þýðir hins vegar ekki það, að dagkaup launastéttanna hafi hækkað, heldur hefur komið hér til viðbótar aukin eftirvinna og svokallað launaskrið og margt fleira, sem hefur átt þátt í því, að launagreiðslur fyrirtækjanna hafa hækkað sem þessu svaraði. Þá hefur annar rekstrarkostnaður fyrirtækja ekki síður hækkað á þessu tímabili, og við hafa svo bætzt alls konar nýjar álögur, sem Alþ. og ríkisstjórn hafa lagt á fyrirtækin á þessu tímabili. Að sjálfsögðu hefur svo orðið nokkur fjölgun á fyrirtækjum, m. a vegna aukins fólksfjölda í landinu á þessum tíma. Af öllum þessum ástæðum er ekki fjarri lagi að gera ráð fyrir því, að rekstrarkostnaður fyrirtækja frá 1959 hafi alltaf aukizt um 160—170%, þegar öll kurl eru komin til grafar. Ef samanburður í þessum efnum er gerður á opinberum fyrirtækjum, kemur í ljós, að rekstrarkostnaður þeirra hefur aukizt miklu meira. T.d. mun ekki fjarri lagi að gera ráð fyrir því, að rekstrarkostnaður ríkisins, þegar frá er búið að draga uppbætur, framlög til trygginga og verklegra framkvæmda, hafi allt þre- til fjórfaldazt á þessu tímabili, og hefur rekstrarkostnaðurinn samkv. þessari niðurstöðu aukizt miklu minna hjá hinum almennu atvinnufyrirtækjum í landinu, en fjarri lagi mun þó ekki vera að gera ráð fyrir því, að hann hafi alltaf aukizt um 160—170% á þessu tímabili.
Ef allt hefði verið með felldu og fyrirtækin hefðu búið við sams konar aðstöðu og áður, hefðu að sjálfsögðu rekstrarlánin til atvinnuveganna átt að aukast á nokkuð tilsvarandi hátt. En hvað segja svo skýrslur Fjármálatíðindanna um það, hvernig séð hefur verið fyrir þessari auknu þörf atvinnuveganna? Í síðustu Fjármálatíðindum er að finna yfirlit um það, hvernig háttað hefur verið um endurkeypta víxla hjá Seðlabankanum. Samkv. því námu endurkeyptir víxlar hjá Seðlabankanum í árslok 1959 um 857 millj. kr., en í síðustu árslok nam þessi upphæð 1164 millj. kr., eða m.ö.o. hækkun á endurkeyptum víxlum hjá Seðlabankanum hefur ekki orðið nema 38% á þessum tíma, á þeim tíma, sem rekstrarkostnaður fyrirtækja í landinu hefur sennilega alltaf aukizt um 160—170%. Þetta sýnir ljóslega, hve miklu minni fyrirgreiðslu Seðlabankinn veitir nú atvinnuvegunum í þessum efnum en hann gerði fyrir 6 árum.
Það munu kannske einhverjir svara því til, að þetta segi ekki allan sannleikann, vegna þess að útlán viðskiptabankanna hafi aukizt miklu meira en Seðlabankans á þessu tímabili og viðskiptabankarnir hafi því að einhverju leyti tekið að sér að sjá fyrir því hlutverki, sem Seðlabankinn gegndi áður. En hvað segja þá tölur Fjármálatíðinda um þetta atriði? Í árslok 1959 nema heildarútlán banka og sparisjóða 3899 millj. kr. Í árslok 1965 nema þessi sömu útlán 8242 millj. kr. Hér er um aukningu að ræða, sem er um 111%.
Niðurstaðan er m.ö.o. sú, að á sama tíma og rekstrarkostnaður fyrirtækjanna hefur aukizt um 180—170% að öllum líkindum, hafa útlán bankanna ekki aukizt nema um 111%. Á þessu má glögglega marka, hve mjög hefur dregið úr þjónustu bankanna í þessum efnum við fyrirtækin í landinu. Afleiðingin hefur sagt til sín á margan hátt. Hún hefur ekki sagt sízt til sín á þann hátt, að framleiðniaukning í atvinnurekstrinum hefur orðið miklu minni en ella hefði getað átt sér stað, því að það fjármagn, sem fyrirtækin hefðu getað notað til framleiðniaukningar, hafa þau orðið að taka inn í reksturinn; og lánaskorturinn, sem af þessu hefur hlotizt, hefur að sjálfsögðu þrengt rekstur þeirra á margvíslegan annan hátt.
Í skýrslu þeirri, sem Efnahagsstofnunin hefur sent hagráði fyrir nokkru, kemur það líka glögglega í ljós, þó að það sé reynt að segja það ekki með sterkum orðum, að framleiðniaukning hefur orðið tiltölulega lítil hér á landi á undanförnum árum. Sá mikli hagvöxtur, sem hér hefur orðið á þessu tímabili, stafar fyrst og fremst af auknum síldveiðum og hækkandi verðlagi innanlands, en að mjög litlu leyti af því, að framleiðniaukning eða hagræðing hafi átt sér stað hjá atvinnurekstrinum í landinu. Ég hygg, að það megi hiklaust fullyrða, að á þessu tímabili hafi orðið mun minni framleiðniaukning hér á landi heldur en í nokkru nágrannalandi okkar og sennilega allri Vestur-Evrópu. Og eins og bent er á í skýrslu Efnahagsstofnunarinnar, kann þetta ekki góðri lukku að stýra til frambúðar, vegna þess að við getum ekki alltaf treyst á það, að síldin veiðist eins vel og átt hefur sér stað á undanförnum árum, og ekki heldur á það, að verð á okkar útflutningsvörum fari stöðugt hækkandi og okkar hagvöxtur geti farið vaxandi af þessum ástæðum. En eina trygga undirstaðan í þessum efnum er vitanlega sú, eins og bent er á í þessari skýrslu, að auka framleiðniaukninguna og styrkja aðstöðu fyrirtækjanna, til þess að svo geti orðið. En það sjá allir, að það er fullkomlega útilokað með þeirri lánastefnu, sem fylgt hefur verið í landinu á undanförnum árum, þar sem rekstrarlán til fyrirtækjanna hafa stórlega dregizt saman eða miklu meira en auknum rekstrarkostnaði svarar.
Ég held, að það verði ekki um það deilt, að ef litið er á lög Seðlabankans og sérstaklega þá grein, sem vitnað er til í grg. fyrir þessari till., brýtur þessi samdráttarstefna algerlega í bág við það verkefni, sem Seðlabankanum er ætlað. Seðlabankanum er ætlað að hlutast til um það, að atvinnuvegirnir búi nokkurn veginn við nægilegt lánsfé og lánsfjárskortur hamli ekki starfsemi þeirra. Þetta hefur hins vegar átt sér stað í ríkum mæli á undanförnum árum vegna þeirrar samdráttarstefnu, sem fylgt hefur verið og ég hef lýst hér með nokkrum tölum. Þetta kynni að vera afsakanlegt, ef það stafaði af því, að meira sparifé eða lánsfé, sem bankinn hefði með höndum, hefði ekki verið til ráðstöfunar og samdrátturinn hefði stafað af þeirri ástæðu. En því er sannarlega ekki að heilsa. Þetta stafar af því, að Seðlabankinn, að sjálfsögðu að fyrirmælum ríkisstj., hefur tekið upp þá aðferð að frysta sparifé í stórum stíl eða kringum 18—25% af öllu því, sem inn hefur komið, og sett það á bundinn reikning í Seðlabankanum. Ef þetta fé hefði verið notað með eðlilegum hætti og samkv. lögum Seðlabankans, hefði vitanlega átt að nota það til að bæta úr lánsfjárþörf atvinnuveganna, en það hefur síður en svo verið gert, eins og ég hef áður rakið.
Það má hiklaust fullyrða, að það er ekki hægt að benda á neitt land vestan járntjalds, þar sem beitt hefur verið jafnstórkostlegum og þvingandi lánsfjárhöftum og þeim, sem hefur leitt af þessari sparifjárfrystingu Seðlabankans. Þess vegna er það hið furðulegasta skrum og hin mesta blekking, ég vil segja, sem nokkru sinni hefur verið viðhöfð í íslenzkum stjórnmálum, þegar núv. ríkisstj. er að lýsa því yfir, að hún hafi afnumið höft og hún sé á móti höftum. Og þessu er t.d. sérstaklega hampað í einhverri flokksráðssamþykkt, sem Sjálfstfl. hefur nýlega gert. Staðreyndin er einmitt sú, að hér hafa verið tekin upp miklu strangari og erfiðari höft fyrir atvinnuvegina, lánsfjárhöftin, heldur en þeir hafa nokkurn tíma áður þurft að búa við, og vegna þess blasir líka við sú staðreynd, að á þeim mestu góðæristímum, sem yfir þetta land hafa gengið, hefur framleiðniaukning atvinnuveganna orðið minni en í nálægum löndum og sennilega í öllum löndum Vestur-Evrópu. Þetta er afleiðingin af því, að ekki hafur verið framfylgt þeim skýlausu fyrirmælum um starfsemi Seðlabankans, sem greind eru í 1. gr. laga um hann og tekin eru fram í grg. fyrir þessari till.
Ég held, að það sé þess vegna meira en tímabært fyrir Alþ. að grípa hér í taumana og sjá til þess, að frá þessari haftastefnu verði horfið, þessum höftum á starfsemi atvinnufyrirtækjanna og þessum höftum til hindrunar því, að veruleg framleiðniaukning geti átt sér stað í landinu. Þessi till. er því áreiðanlega miklu meira en tímabær.
Mér finnst rétt að geta þess, að sú afsökun er stundum höfð fyrir sparifjárfrystingunni, að hún verði til þess að draga úr verðbólgu í landinu. Ég held, að þeir menn séu með fullkomlega lokuð augu, sem leyfa sér að halda slíku fram eftir þá reynslu, sem af þessu hefur fengizt á undanförnum árum, því að þessar ráðstafanir hafa síður en svo orðið til þess að draga úr verðbólgunni, heldur hefur hún þvert á móti orðið stórvaxnari hér á landi seinustu árin heldur en nokkru sinni fyrr og miklu meiri en í nokkru öðru vestrænu landi, a.m.k. í Evrópu og Norður-Ameríku. Það eru því hrein falsrök, og ég held, að þeir, sem hafa haldið þeim fram áður, hljóti að hætta að halda þeim fram, að sparifjárfrystingin sé nokkur leið til þess að draga úr verðbólgunni eða framkvæmdakapphlaupinu í landinu. Þar þarf allt annað úrræði og fyrst og fremst skipulega áætlun um það, hvernig eigi að nota það vinnuafi og fjármagn, sem við höfum yfir að ráða. En það er útilokað, að það sé hægt að gera það með algeru handahófi, eins og reynt hefur verið með þessum aðgerðum Seðlabankans, eins og líka glöggt kemur fram í hinni stórfelldu verðbólgu, sem átt hefur sér stað í landinu á undanförnum árum.
Ég treysti því eða vil treysta því, að þm. allir séu nokkurn veginn sammála um það, að við eigum að keppa að því í framtíðinni að auka sem mest framleiðni atvinnuveganna. En það er alveg víst, að með þeim aðferðum, sem nú eru viðhafðar, og með þessum frystingaraðgerðum Seðlabankans er fullkomlega útilokað, að það sé hægt. Það verður, ef þetta á að geta gerzt, að draga stórkostlega úr lánsfjárhöftum, sem nú er beitt, og sennilega að afnema þau að mestu, þó að það sé kannske ekki gert allt í einu. Það væri líka ekki úr vegi, ef hæstv. ríkisstj. meinar það, að hún sé á móti höftum, að hún sýndi það í verki með því að draga úr þessum stórfelldu höftum, sem hún hefur tekið upp, og þó ekki sízt eftir að þær afleiðingar eru komnar í ljós, sem af þessu hafa orðið.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar um þessa till. að sinni, en vil leyfa mér að leggja til, að umr. verði frestað og till. vísað til allshn.