19.10.1966
Sameinað þing: 5. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í D-deild Alþingistíðinda. (2258)
13. mál, hlutverk Seðlabankans að tryggja atvinnuvegunum lánsfé
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Mér heyrðist á ræðu hv. þm., að hann mundi vera að hugsa um að láta einhvern af sínum undirmönnum við blað sitt, Tímann, setja um það fyrirsögn í blaðið á morgun, að nú hefði fyrrv. prófessor í hagfræði við háskólann og núv. viðskmrh. gert sig að algeru viðundri á Alþ. með því að halda því fram, að á Íslandi væri enginn lánfjárskortur. Það verður gaman fyrir lesendur Tímans að sjá í fyrramálið, hvernig blaðið stenzt þessa samvizkuraun, því að allir hv. þm., aðrir en sá, sem var að tala, hljóta að hafa heyrt, að ég sagði ekki í ræðu minni orð um það, að hér á Íslandi væri ekki lánsfjárakortur. Það, sem ég var að andmæla, var setning í framsöguræðu hans, setning í grg. hans og setning, sem hann endurtók í ræðu sinni núna, að hér væri lánsfjárskortur skapaður af Seðlabankanum, bankakerfinu og stefnu ríkisstj. Hann var að fullyrða, að Seðlabankinn og bankakerfið og yfirstjórn peningamálanna hafi skapað lánafjárskort á Íslandi. Það var þetta, sem ég var að andmæla og taldi mig sýna fram á með fullum rökum, sem ég nenni ekki að endurtaka, að þessi staðhæfing er algerlega út í bláinn. Hvernig er hægt að segja, að Seðlabankinn eða bankakerfið skapi lánsfjárskort, þegar ég nefndi tölur um, að á síðustu 12 mánuðum hefur útlánaaukning bankakerfisins verið 1716 millj. kr., aukizt um 23%, og útlánaaukningin er helmingi meiri en hún var á 12 mánuðum áður, og svo í öðru lagi, þegar útiánaaukningin er ekki aðeins öll sparifjáraukningin, heldur 500 millj. kr. meiri en sparifjáraukningin, og þegar ég í þriðja lagi sýndi fram á, að allar höfuðatvinnugreinar landsmanna hafa fengið í hendur sínar úr sameiginlega bankakerfinu hlutfallslega meiri útlánaaukningu en nemur hækkun framfærsluvísitölunnar? Ég hélt, að það ætti ekki að þurfa að segja þessa hluti oft, til þess að menn skildu kjarna þeirra. Það er fjarstæða að tala um, að Seðlabankinn og bankakerfið stuðli að lánsfjárskorti, þegar þeir lána út ekki aðeins allt fé, sem þeir fá til útlána, heldur 500 millj. kr. meira, og þegar þessi útlánaaukning er mun meiri en aukning verðlagsins a sama tíma.
Um notkun hv. þm. á orðinu lánsfjárskortur hafði, raunar hv. þm. Ólafur Björnsson rætt í ræðu sinni, svo að ég sé ekki ástæðu til að ræða það frekar. Þó vildi ég aðeins benda á, að lánsfjárskortur frá sjónarmiði lántakenda og lánbeiðenda hlýtur auðvitað að miðast við þeirra fyrirætlanir. Ef menn hafa mikið í huga, ef framkvæmdahugur er mikill, er auðvitað mjög vel hugsanlegt, að ekki séu tök á því fyrir þá menn að fá allt það fjármagn, sem þeir óska eftir, án þess beinlínis að frá almennu sjónarmiði sé hægt að tala um lánsfjárskort. Það getur verið um lánsfjárskort að ræða frá lánbeiðendanna hálfu. En það vildi ég benda á, að það ar ekki mjög gott samræmi í því hjá hv. þm. að vera stöðugt að undirstrika þennan, eins og mætti segja, „subjektíva“ lánsfjárskort lánbeiðendanna annars vegar og svo hitt, að allt sé að fara í kaldakol hins vegar. Venjulega er ekki sérlega mikill framkvæmdahugur í mönnum, ef horfur í atvinnulífinu eru afskaplega dökkar og allt er að fara í kaldakol. Þá draga menn yfirleitt saman seglin. Þá hafa menn ekki trú á framtíðinni. Þá er ekki framkvæmdahugur í mönnum. En ef hann leggur sérstaka áherzlu á að segja, að framkvæmdahugur í mönnum almennt séð sé svo mikill, að því fari víðs fjarri, að menn eigi kost á nægilegu lánsfé til sinna framkvæmda, er það í ósamræmi við hina staðreyndina, sem hann hampar í öðrum ræðum og í öðrum greinum, að hér sé allt í kaldakoli. Hitt er rétt, að hér hefur verið mikið góðæri undanfarið og þess vegna mikill framkvæmdahugur í mönnum, stundum meiri framkvæmdahugur en svo, að hægt hafi verið að fullnægja eftirspurn eftir lánsfé með heilbrigðum hætti, þ.e. sparifjármyndun hafi verið nægileg til að fullnægja óskum allra þeirra, sem vegna bjartsýni, sem vegna góðra tíma hafa viljað leggja í nýjar framkvæmdir.
Hin meginástæða mikillar eftirspurnar eftir lánsfé er svo sú verðbólga, sem við eigum við að búa. Það eru víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags, sem því miður hefur ekki tekizt að koma í veg fyrir. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þegar verðbólga er og kaupgjald og verðlag hækkar á víxl, er ábatasamlegt að festa fé með lánsfé. Þá er ábatasamlegt að fá lánsfé hjá bönkum og lánastofnunum til þess að festa í fasteignum og birgðum ýmiss konar. Þess vegna er mjög hætt við því einmitt á verðbólgutímum, þetta er fyrirbæri, sem allir þekkja, — að eftirspurn eftir lánsfé sé mun meiri en eðlilegt framboð á lánsfé. Þess vegna er lánsfjárskortur einn af fylgifiskum verðbólgu.
Jafnljóst og mér er það, að hér er um verðbólgu að ræða, því miður, og hefur verið allar götur síðan á stríðsárunum, er mér ljóst, að hér er lánsfjárskortur. Það hefur aldrei hvarflað að mér að segja eitt einasta orð í þá átt, að hér væri ekki lánsfjárskortur, af því að mér er jafnljóst og öðrum, sem um þessi mál hugsa og á þessum málum vonast til að hafa einhverja þekkingu, að verðbólgu fylgir alltaf lánsfjárskortur. Það er eitt af eðliseinkennum verðbólgunnar. Sá maður, sem skilur eðli verðbólgu, orsakir hennar og afleiðingar, gerir sér ljóst, að samfara henni hlýtur að vera lánsfjárskortur.
Eftir þetta verð ég enn forvitnari að vita, hvað hv. þm. lætur undirmenn sína við Tímann segja um þessi ræðuhöld á morgun. Að allra síðustu vildi ég bæta því við, að hann vonaði, að ég áttaði mig vel á því, hvernig ástandið væri hér, fyrst ég væri á annað borð kominn heim. En ég vildi aðeins bæta því við í því sambandi, að ég hef verið skemur utanlands á þessu ári en hann sjálfur.