26.10.1966
Sameinað þing: 6. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í D-deild Alþingistíðinda. (2269)
12. mál, endurkaup Seðlabankans á framleiðslu- og hráefnavíxlum iðnaðarins
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns leiðrétta fullkominn útúrsnúning úr efni ræðu hæstv. forsrh., sem hv. 5. þm. Reykv. fór hér með áðan. Þessum hv. þm. er orðið svo gjarnt að snúa út úr ræðum og skrifum manna í blaði sínu, Tímanum, sem hann er þjóðfrægur fyrir, að hann kemst ekki úr þessum ham, þótt hann komi hér upp í ræðustólinn í þinginu og viti þó, að þm. gera meiri kröfur til málflutnings en svo.
Hann segir, að það sé úrskurður forsrh. í þessari ræðu og þar með úrskurður ríkisstj., að það sé ekki hægt að halda við iðnaði á Íslandi nema með hærra verði en annars staðar. Þetta er rangt. Það, sem hæstv. forsrh. sagði, var, þegar hann var að tala um verðbólguna innanlands, að þeir menn, sem vilja lækka verðið innanlands, verða að gera sér grein fyrir því, að þeir eru að vissu leyti að vinna á móti þessari löngun sinni til verðlækkunar, ef þeir standa sí og æ gegn því, að við getum flutt inn erlendar vörur, sem eru ódýrari en þær, sem við getum framleitt í landinu. Í þessu felst enginn úrskurður um það, að iðnaðurinn geti ekki á fjölmörgum sviðum og fleiri sviðum en í dag verið samkeppnisfær við erlenda vöru, og sá innflutningur, sem leyfður hefur verið á innlendri iðnaðarvöru á undanförnum árum, er í engum tilfellum, nema þar sem er gífurleg tollvernd á íslenzkum iðnaði. Það er því allt annar úrskurður hæstv. forsrh. og ríkisstj. um afstöðu okkar til iðnaðarins, sem raunverulegur er. En ég get í afskaplega fáum dráttum gert hv. þingheim grein fyrir því með því að vitna til þess, sem ég hef í þessum efnum gert grein fyrir hjá iðnrekendum sjálfum. Á aðalfundi þeirra á s.l. vetri tók ég saman í nokkrum liðum meginefni stefnu ríkisstj. í iðnaðarmálunum, og skal ég lesa, með leyfi hæstv. forseta, þessa fáu liði vegna þessa tilefnis, sem gafst í upphafi ræðu hv. 5. þm. Reykv. um þetta mál, en þar er svo:
„1) Stefnt er að því, að ríkja megi jafnrétti milli aðalatvinnuvega landsmanna, og jafnframt að því unnið, að hagsmunir einstakra atvinnugreina séu ekki fyrir borð bornir, ef það samrýmist hagsmunum almennings eða þjóðhagslegri framkvæmd.
2) Stefnt er að því að létta tollum af vélum og hráefnum iðnaðarins, samfara því að tollum sé almennt aflétt, til þess að veita almenningi ódýrara og betra vöruval og draga með því úr dýrtíð í landinu. Séð verður til þess, að iðnaðurinn njóti í þessu sambandi eðlilegs aðlögunartíma, og ráðstafanir gerðar í lánamálum og á annan hátt til að gera honum auðveldara að tileinka sér ýmsa tækni og aukna hagræðingu og framleiðni til eflingar þessari atvinnugrein í frjálsari viðskiptum.
3) Haldið verði áfram að efla iðnlánasjóð, svo að iðnaðinum skapist viðunandi stofnlánaaðstaða, jafnframt því sem gert er ráð fyrir, að aðstaða hans í bankakerfinu haldist til jafns við aðrar atvinnugreinar. Samtímis hefur verið sköpuð aðstaða til umbóta á sviði lánamála með lögum og reglugerð í samráði við bankana til að breyta lausaskuldum iðnaðarins í löng og hagkvæm lán.
4) Ríkisstj. hefur stuðlað að því, að hefjast megi í landinu nýjar atvinnugreinar á sviði iðnaðarins, þar sem horfur ent á, að verð og gæði standist erlenda samkeppni og þjóðhagslega mikilvægt, að slíkar atvinnugreinar eflist, svo sem innlend stálskipasmíði, samfara endurbyggingu gamalla og úreltra dráttarbrauta, og efling fiskiðnaðar, m.a. með niðursuðu og niðurlagningu síldar til útflutnings.
5) Sett hafa verið lög um rannsóknir í þágu atvinnuveganna og þar með stórefldar rannsóknir á sviði iðnaðarins og á vegum tveggja stofnana hans: Í fyrsta lagi Rannsóknastofnun iðnaðarins, sem vinnur að rannsóknum til eflingar og hagsbóta fyrir iðnaðinn í landinu og rannsóknum vegna nýjunga á sviði iðnaðar og annarrar framleiðslu, rannsóknum á nýtingu náttúruauðlinda landsins í þágu iðnaðarins og veiti nauðsynlega þjónustu og kynni niðurstöður rannsókna í vísinda- og fræðiritum. Þetta er verkefni hinnar almennu stofnunar, en síðan er Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, sem vinnur að endurbótum í byggingariðnaði og lækkun á kostnaði við mannvirkjagerð, hagnýtum jarðfræðirannsóknum og vatnsvirkjunarrannsóknum, kynni niðurstöður rannsókna, velti upplýsingar um byggingarfræðileg efni og aðstoði við eftirlit með byggingarefni og byggingarframkvæmdum.
6) Stefnt er að virkjun stórfljóta landsins, byggingu stórra raforkuvera, sem verði grundvöllur og orkugjafi fjölþættrar iðnvæðingar í landinu. Orkuver landsins séu eign Íslendinga, en til þess að virkja megi í stórum stíl og undir lántöku verði risið á sem hagkvæmastan hátt, er tryggi ódýrari raforku, og til þess að styrkari stoðum sé rennt undir atvinnulíf landsmanna, verði erlendu áhættufjármagni veitt aðild að stóriðju, ef hagkvæmt þykir skv. mati hverju sinni og landsmenn skortir fjárhagslegt bolmagn eða aðstöðu.
7) Ríkisstj. hefur leitað og mun leita samráðs og samvinnu við samtök iðnaðarmanna, Félag íslenzkra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna um hagsmunamál iðnaðarins og stefnir að því að efla samstarf þessara aðila við iðnmrn. og þær stofnanir iðnaðarins, sem undir það heyra, svo sem rannsóknastofnanir iðnaðarins og Iðnaðarmálastofnun Íslands.“
Í þessum 7 liðum er mörkuð meginstefna ríkisstj. í iðnaðarmálum.
Ég skal svo víkja nokkuð að þeirri till., sem hér liggur fyrir, um endurkaup Seðlabankans á framleiðslu- og hráefnavíxlum iðnaðarins, og öðrum skyldum málum, sem fyrst og fremst snerta fjármál iðnaðarins.
Hv. þm. kemur ekki þessi till. ókunnuglega fyrir sjónir, og mikið á íslenzkur iðnaður gott að eiga svona góðan vin, sem ár eftir ár talar jafnhjartnæmum orðum um löngun sína til að styðja hann og efla eins og hv. 5. þm. Reykv. Einu sinni var hann að tala um, að hann ætti að njóta jafnréttis við landbúnaðinn, en mér heyrðist á honum áðan, að nú ætti iðnaðurinn að njóta miklu betri kjara en jafnvel landbúnaðurinn, og hefur hann ekki verið vændur um eða hans flokkur, að hann vildi ekki styðja þá atvinnugrein.
Þessi mál hafa áður verið rædd hér á þingi, að styrkja íslenzkan iðnað og draga úr lánsfjárörðugleikum hans eins og annarra atvinnugreina með endurkaupum á hráefnavíxlum. Það var, eins og fram kemur í grg., samþ. hér á Alþingi till, á sínum tíma frá Sveini Guðmundssyni alþm. um það að fela ríkisstj. að hlutast til um við Seðlabankann, að slík endurkaup geti komizt á á framleiðslu- og hráefnavíxlum iðnfyrirtækja eftir ákveðnum reglum, er settar verða, eins og þar stendur, með svipuðu sniði og reglur þær, sem nú gilda um endurkaup framleiðsluvíxla sjávarútvegs og landbúnaðar. Að þessu hefur verið unnið á undanförnum árum. En sannleikurinn er sá, sem oft hefur verið bent á og komið hefur fram hér í þingsölunum, að það er ekki mögulegt að setja slíkar endurkaupareglur með svipuðu sniði og á sér stað á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar, þannig að það komi iðnaðinum að verulegu gagni almennt. Þetta hef ég hiklaust sagt, bæði hér á þingi og í hópi iðnrekenda og iðnaðarmanna. En það er hægt fyrst og fremst með því að stuðla að og styrkja vissan stóriðnað á okkar mælikvarða í landinu. Þar sem er iðnaður, sem hefur mikla framleiðslu og dýra framleiðslu og safnar henni á dýra lagera og hefur einnig miklar vörubirgðir, annaðhvort í framleiðsluvörum eða í hráefnum til framleiðslu í landinu, þá er þetta að sjálfsögðu hægt, og að sjálfsögðu er þetta mjög auðvelt með iðnað, sem framleiðir til útflutnings, því að einn meginmismunurinn á sjávarútvegi í þessu sambandi og iðnaði er sá, að viðskiptabankarnir hafa eftir gömlum og grónum reglum veð í stórum birgðum sjávarútvegsins, í frystihúsunum í fiskvinnslustöðvunum og þar sem skreið er verkuð, og birgðir þessa fisks hafa verið seldar á ákveðnu verði fyrir fram yfirleitt til annarra landa, svo að þegar lánið fer fram af hálfu viðskiptabankanna og endurkeyptur er víxillinn af hálfu Seðlabankans, er vitað, að á tilteknum tíma er ákveðið verðmæti í þessari vöru, og þegar varan er greidd, greiðist hún öll í gegnum bankana. Þeir hafa þess vegna aðstöðu til þess. Þeir taka á móti andvirðinu og gera upp víxlana, viðskiptabankarnir, sem hafa lánað út á þessa vöru í formi endurkeyptra víxla Seðlabankans.
Hér er ekki neinu svipuðu saman að jafna á sviði iðnaðarins, eins og okkar iðnaður er byggður upp, að verulegu leyti sem smáiðnaður í fjölmörgum greinum, og þess vegna ekki á færi viðskiptabankanna að lána með þeim hætti að taka veð í framleiðslu, sem er ekki nema í smáum stíl, situr skamman tíma hjá fyrirtækinu og hráefni aldrei nema í litlu magni, sem fljótt er unnið úr og selt út um hvippinn og hvappinn.
Það, sem ég nú hef sagt, má ekki skilja svo, að ég telji ekki, að iðnaðurinn þurfi á betri rekstrarlánum að halda og meira rekstrarfé en hann hefur nú. Ég skal víkja að því seinna. Það þarf hann, og að því ber að vinna. Hins vegar hefur og ekki sízt nokkuð fyrir tilverknað ríkisstj. verið unnið að því af hálfu bankanna að koma á endurkaupum, þar sem þeim mætti við koma. Ég gerði grein fyrir þessu fyrir áramótin í fyrra hér í sölum Alþingis, og ég sagði þá frá meginreglum, sem Seðlabankinn var þá með í athugun og vildi fylgja við endurkaup á hráefnavíxlum og framleiðsluvíxlum iðnaðarins og hafði gert bönkunum grein fyrir. Það kom í ljós, að þessar reglur þóttu nokkuð þröngar, og Seðlabankinn lagði sig fram um að rýmka þessar reglur og gaf svo út til bankanna, þannig að þeim væri um það kunnugt, hvaða víxla af þessu tagi væri líklegt að hann vildi endurkaupa, — reglur, sem dags. eru 28. marz 1966. Það er ekki ástæða til þess fyrir mig hér á þessari stundu að lesa þessar reglur, en það eru meginreglur þess, sem Seðlabankinn vili framfylgja í sambandi við endurkaupin, og viðskiptabankarnir hafa átt ýtarlegar viðræður, — og þar get ég fyrst og fremst talað fyrir hönd Iðnaðarbankans, sem ég hef haft hönd í bagga með, — við Seðlabankann um að koma í kring endurkaupum á grundvelli þessara reglna. Þegar það liggur fyrir nú, að þær eru kannske í miklu minna mæli komnar í kring heldur en ég fyrir mitt leyti vildi gjarnan óska, er það vegna þess, að viðskiptabankinn hefur ekki getað lánað slíka víxla, sem uppfylla þetta form. Það eru þó, eins og ég segi, nokkur endurkaup komin á stað, og þau ættu að geta aukizt, a.m.k. á vissum sviðum og sums staðar verulega í framtíðinni, þó að það sé mín skoðun, að okkar íslenzka iðnaði, sérstaklega smáiðnaði, verði þetta ekki að verulegu gagni.
Til viðbótar við þessi endurkaup Seðlabankans, sem reglur voru settar um í marzmánuði s.l., þær seinustu, sem farið er eftir, hefur Seðlabankinn endurkeypt framleiðsluvíxla iðnaðarins, þegar Framkvæmdabankinn hefur lánað iðnfyrirtækjum, vegna þess að til stóð að leggja bankann niður og hann af öðrum ástæðum hafði ekki fjárreiður til öðruvísi en Seðlabankinn hlypi þar undir bagga. Mér þykir rétt að gera hv. þingi grein fyrir því, að það var í árslok 1964 samþykkt í bankaráði Framkvæmdabankans fyrir tilmæli ríkisstj. að heimila, að bankinn veitti stutt 1án, eftir því sem aðstaða bankans leyfði, til þess að leysa úr lánsfjárskorti vélaiðnaðarins við framleiðslu frystivéla, véla og tækja í síldar- og fiskimjölsverksmiðjur og annarra hliðstæðra véla, þannig að íslenzki vélaiðnaðurinn gæti að þessu leyti talizt í eðlilegri samkeppnisaðstöðu við erlendan vélaiðnað; þar sem innflytjendum er heimilað að kaupa framangreindar vélar með gjaldfresti. Þá heimilaði bankaráðið bankastjóranum að lána slík lán, allt að 5 millj. kr., án afskipta bankaráðsins, svo að þetta gæti gengið fljótar fyrir sig. Seðlabankinn hafði svo, þegar til átti að taka, ekki fjárreiður til þess, er viðræður fóru fram um það, að Seðlabankinn endurkeypti þessa víxla. Hvernig átti hann að endurkaupa þessa víxla? Vélsmiðja hér smíðar frystivél, selur hana með jafnmiklum gæðum og erlent fyrirtæki og með samkeppnisfæru verði, en hún getur ekki lánað kaupandanum. Kaupandinn getur hins vegar keypt þessa vél frá. einhverjum erlendum aðila og fengið svo og svo mikið lán. Hvernig átti nú að útbúa þessa víxla? Átti að taka veð í þessum vélum, — vélum, sem eru hér og hvar á landinu, keyptar í dag af einum manni, seldar til annars næsta dag, fluttar á milli frystihúsa jafnvel eða annarra atvinnustöðva á landinu? Til þess að koma þessu í kring undirbjó Framkvæmdabankinn sérstakt kerfi, tryggingakerfi á þessum víxlum, í samningi við tryggingarfélögin í landinu, og þannig skapaðist grundvöllur til þess að hafa þessa víxla nægjanlega tryggða Það má vel vera, að sú reynsla, sem þarna hefur fengizt, geti gefið einhverja vísbendingu um tryggða víxla. iðnaðarins, hráefnaiðnaðarins líka, með þessu formi hjá tryggingarfélögunum, sem gætu aukið möguleikana til endurkaupa hjá Seðlabankanum. Síðan hefur þessi heimild bankaráðsins til bankastjórans um þessi lán verið aukin upp í 10 millj. kr. lán í slíku sambandi án þess að fá heimild bankaráðsins, og það mun núna vera búið að lána um 7 millj. kr. Og Seðlabankinn hefur tekið vel í það að auka endurkaupin þannig, að í veltunni geti verið þessar 10 millj. kr., til þess að skapa betri jafnréttisaðstöðu íslenzkra framleiðenda á þessu sviði við erlenda, þar sem fjármagnið er meira. En nú er ég ekki að segja, að þessar 10 millj. séu fullnægjandi, en sennilega verða þær að nægja fram að áramótum. Þegar Framkvæmdabankinn verður lagður niður um áramótin, verður að vera búið að mínum dómi að sjá fyrir því, hver á að taka við þessari fyrirgreiðslu og með hverjum hætti á að auka þessa fyrirgreiðslu, og að því verður að sjálfsögðu unnið.
Ég hef nú rétt vikið að tveimur þáttum endurkaupa Seðlabankans á afurða- og framleiðsluvíxlum iðnaðarins, sem auðvitað sanna það, að það fær engan veginn staðizt, þegar verið er að halda því fram, að ekkert hafi verið gert í þessum efnum. Nú geta menn sagt: Ósköp hefur þetta tekið langan tíma. — En þá verða menn einnig að hafa í huga, að á meðan á þessu hefur staðið, hafa verið gerðar stórkostlegar ráðstafanir aðrar á sviði lánsfjármála til iðnaðarins. En áður en ég vík að þeim, vil ég taka fram, að það eru þegar hafnar viðræður innan Seðlabankans og ég sem iðnmrh. hef átt viðræður við bankastjóra Seðlabankans um það, að vegna þess, hvað endurkaupaformið hentar illa þessari atvinnugrein, hefur verið reynt að finna nýtt form, þannig að Seðlabankinn geti í miklu ríkara mæli en fram að þessu stutt iðnaðinn með rekstrarlánum. Ég vænti þess, að þess sé skammt að bíða, að árangur náist af því, og það er auðvitað rétt, að Iðnaðarbankinn einn hefur, held ég, ef ég man rétt, eitthvað um 90 millj. kr. núna af bundnu fé i Seðlabankanum, og margir aðrir bankar hafa bundið fé, sem er líka frá iðnaðinum, og það er eðlilegt að hluti af þessu fé sé hagnýttur til aukinna og nýrra lána, sem ekki hafa fram að þessu verið fyrir hendi, og þá á ég við: nýrra lána einmitt með tilstuðlan Seðlabankans sjálfs. Á þetta legg ég áherzlu, að það takist að finna nýtt lánaform af þeirri reynslu af tilraunum til að koma á endurkaupum frá Seðlabankanum, nýtt lánaform, sem veiti iðnaðinum verulegan styrk af lánsfé, sem á einn eða annan hátt er fengið frá Seðlabankanum sjálfum.
Ég sagði: Það hefur margt skeð í lánamálum iðnaðarins á undanförnum árum, og menn mega ekki gleyma því, að fjárfestingarlánaaðstaða iðnaðarins hefur auðvitað tekið algerum stakkaskiptum á undanförnum árum. 1962 mun það hafa verið, að þáverandi iðnmrh. skipaði nefnd til þess að endurskoða lögin um iðnlánasjóð, og þá voru samþykkt ný lög til breyt. á iðnlánasjóðslögunum, sem ég held að hafi upphaflega verið frá 1936, og gott ef þau eru ekki endurskoðuð 1952. En þá hefjast þáttaskipti í sögu iðnlánasjóðs, og það er þá fyrst og fremst iðnlánasjóðsgjaldið sjálft, sem veldur því, að hann fer að fá verulegar tekjur. Samhliða stuðlar ríkisstj. að því að veita iðnlánasjóði mjög verulegt lánsfé til þess að auka ráðstöfunarfé hans, og á þessu sviði eru svo mikil umskipti, að þegar hv. 5. þm. Reykv. var áðan að tala um það, að á tímum vinstri stjórnarinnar hefði verið mörkuð sú stefna, að iðnaðurinn skyldi njóta jafnréttis við aðrar atvinnugreinar, þá varð ég svolítið hissa, því að ég mundi eftir því og sé það af tölum, sem ég hef fyrir framan mig, að þá var ráðstöfunarfé iðnlánasjóðs eitthvað um 2 millj. kr. á ári. Ég held það hafi aukizt um 3500% síðan. Ráðstöfunarfé iðnlánasjóðs nú á þessu ári mun vera eitthvað nálægt 70 millj. kr. Það var á árunum 1956—59 2.2 millj. að meðaltali á ári, á árinu 1960 4.4 millj., 1961 9.7 millj., 1962 13.9 millj., 1963 38.8 millj., 1964 50.6 millj., 1965 58.3 millj. og eins og ég sagði áðan væntanlega eitthvað um 70 millj. á þessu ári. Á sama tíma hefur það einnig skeð, að Framkvæmdabankinn stórjók lánsfé sitt til iðnaðarins, vegna þess að mönnum var ljóst, að það þurfti að gera, vegna þess að iðnaðurinn stóð höllum fæti, og þar hafa verið veittar á undanförnum árum frá 25–40 millj. kr. á ári til iðnaðarlána, og meginhlutinn af öllu lánsfé Framkvæmdabankans til iðnaðarins er veittur á þessum árum, en eins og hv. þm. vita, var hann stofnaður 1952.
Það hefur einnig gerzt í þessu síðan, að á síðasta þingi voru samþ. ný lög um breytingar á iðnlánasjóði, þar sem ríkisframlagið var fimmfaldað, úr 2 millj. kr. upp í 10 millj. kr. árlega til iðnlánasjóðs, og það var fyrst og fremst gert til þess að gera honum fært að hagnýta sér ákvæði, sem þá voru sett inn í iðnlánasjóðslögin um, að sjóðnum var veitt lánsheimild allt að 100 millj. kr. til þess að mynda nýjan lánaflokk í því skyni að veita sérstök hagræðingarlán til viðbótar almennum lánum, er að mati sjóðsstjórnarinnar teldust stuðla verulega að því að auka framleiðni og bæta aðstöðu iðnfyrirtækis til að aðlaga sig nýjum viðhorfum vegna breyttra viðskiptahátta, svo sem tollabreytinga og fríverzlunar. Þá var það auðvitað alveg ljóst, að ef átti að lána iðnaðinum þessi hagræðingarlán og framleiðnilán, sem ég tel mjög mikils virði, og þau urðu að vera með betri kjörum en almennt gengur og gerist, hlaut að verða mismunur á því fé, sem iðnlánasjóður gat útvegað sér, og því, sem hann þurfti að lána út, og þennan mismun eða undirballans var iðnlánasjóði gert kleift að taka m.a. með því að auka beina ríkissjóðsframlagið upp í 10 millj. kr.
Reglugerð um hagræðingarlán iðnlánasjóðs var gefin út 7. júlí s.l., og iðnrekendum hefur verið kunnugt um þessa reglugerð að sjálfsögðu síðan. Það hafa enn þá fáar umsóknir borizt um hagræðingarlán. En það er ósköp eðlilegt, það tekur iðnfyrirtæki nokkurn tíma að átta sig á því og gera sér grein fyrir því, með hvaða hætti þau geta hagnýtt sér þetta, en það mun, að mínum dómi, að sjálfsögðu ekki lengi á slíku standa.
En hefur þá ekkert verið gert, til að koma þessum hagræðinganlánum í framkvæmd? Ég verð að segja það, að á s.l. þingi gerði ég ekki ráð fyrir því, að þetta gæti gengið betur en svo, að það yrði fyrst á næsta ári, eftir að framlagið til iðnlánasjóðs væri aukið, sem þetta kæmist í framkvæmd. En ríkisstj. hefur viljað á þessu hausti stuðla að því, að þessar lánveitingar geti hafizt þegar í ár, og 14. okt. skrifaði ég Seðlabanka Íslands fyrir hönd ríkisstj. sem iðnmrh. eftirfarandi bréf, sem ég held að væri fljótlegast að lesa, með leyfi hæstv. forseta, en það er svo hljóðandi:
„Með lögum nr. 25 22. apríl 1966, um breyt. á l. nr. 45 frá 3. apríl 1963, um iðnlánasjóð, var sjóðnum heimilað, að fengnu samþykki ríkisstj., að taka allt að 100 millj. kr. lán til þess að mynda nýjan lánaflokk í því skyni að veita sérstök hagræðingarlán til viðbótar almennum lánum, er að mati sjóðsstjórnarinnar teldust stuðla verulega að því að auka framleiðni og bæta aðstöðu iðnfyrirtækis til þess að aðlaga sig nýjum viðhorfum vegna breyttra viðskiptahátta, svo sem tollabreytinga og fríverzlunar. Mega lán þessi vera með betri kjörum en lán sjóðsins almennt, svo sem lægri vöxtum og lengri lánstíma eða afborgunarlaus fyrst í stað, allt eftir því sem nánar er ákveðið í reglugerð. Jafnframt var árlegt framlag ríkissjóðs til iðnlánasjóðs hækkað úr 2 millj. kr. í 10 millj. kr., m.a. til þess að mæta halla, sem sjóðurinn kynni að bíða af slíkum lánveitingum. Reglugerð um hagræðingarlán var gefin út 7. júlí þetta ár. Á fundi ríkisstj. þann 6. sept. s.l. var samþykkt, að iðnlánasjóður mætti byrja að nota heimild 2. gr. I. nr. 25 22. apríl 1966 nú á þessu hausti, og iðnmrh. og fjmrh. falið að taka málið upp við Seðlabankann í því skyni að aðstoða iðnlánasjóð við fjáröflun eða lánsútboð. Einn viðræðufundur befur verið haldinn með ráðh. og dr. Jóhannesi Nordal seðlabankastjóra. Stjórn iðnlánasjóðs hefur að fyrirlagi iðnmrh. undirbúið frumtill. um kjör á skuldabréfum, ef lán yrði boðið út. Það er nú orðið mjög aðkallandi, að þetta mál komist til framkvæmda, og er því Seðlabanki Íslands hér með beðinn að veita stjórn iðnlánasjóðs þá aðstoð, sem verða má, við lánsfjáröflun og ákvarða þau kjör á væntanlegu skuldabréfaláni, sem heppilegust þættu, t.d. að heildarupphæð 25 millj. kr. að þessu sinni“.
Að þessu hefur svo verið unnið í Seðla bankanum í samvinnu við stjórn iðnlánasjóðsins, og ég geri mér vonir um, að mjög fljótlega geti slíkt lánsútboð farið fram, og tel mig hafa ástæðu til þess að ætla, að verulegt lánsfé sé reyndar tryggt í þessu sambandi á þessu ári. Hér hefur þess vegna verið opnuð ný hagræðingarlánadeild, framleiðnilánadeild í iðnlánasjóði, og gerðar ráðstafanir til þess að afla henni fjár til þess að gera íslenzkan iðnað samkeppnisfærari við erlendar iðnaðarvörur, sem kynnu að verða fluttar til landsins.
Við það, sem ég nú hef sagt, get ég svo bætt því, að það var ákveðið hér á þingi á sínum tíma, og hv. þm. Sveinn Guðmundsson ásamt fleirum, sem ég man nú ekki, hverjir voru, var flm. að því máli, að breyta lausaskuldum iðnaðarins í löng og umsamin lán. Það var 1964. Það var svo gefin út reglugerð um það atriði 10. maí 1965, og þótti dragast lengi að koma út þessari reglugerð. En löggjöfin, sem var flutt af þm., var eðlilega rammalöggjöf, sem þurfti mikilla útfyllinga í reglugerð, til þess að ætla mætti, að hún gæti orðið raunhæf. Og ég þurfti að hafa um það sem iðnmrh. ýtarlegar viðræður við bankana og vildi hafa samráð við þá, bæði Seðlabankann og viðskiptabankana, áður en reglugerðin yrði gefin út, til þess að tryggja kaup þessara banka með eðlilegum hætti as þeim vaxtabréfalánum, sem iðnlánasjóður í þessu sambandi kynni að þurfa á að halda. Þetta mál er nú í fullum gangi. Mér er ekki kunnugt um í dag, hve miklu af lausaskuldum hefur verið breytt í föst lán, en þó er það verulegt, og held ég, að mér sé óhætt að segja, að þess má vænta, að veruleg aukning geti orðið á því á næstunni, en allt hefur málið þurft nokkurn undirbúning. Þetta hefur óneitanlega bætt rekstraraðstöðu iðnaðarins.
Svo er hv. þm. einnig kunnugt um það, úr því að ég minntist á hagræðingarlán og framleiðnilán áðan, að hér á Alþ. hafa verið teknar ákvarðanir um hagræðingarstarfsemi í þágu íslenzkra atvinnuvega og ekki sízt iðnaðarins, og það hafa verið útskrifaðir fyrstu hagræðingarráðunautarnir, en Iðnaðarmálastofnun Íslands hefur haft forgöngu um námskeið í hagræðingarmálum á undanförnum árum, sem ég hygg að hv. þm. sé fullljóst um, en á fjárl. á undanförnum árum hefur verið varið til þess að halda þessi hagræðingarnámskeið, kosta þessa hagræðingarráðunauta eða nám þeirra fyrir atvinnuvegina, 1964 2.2 millj. kr., 1965 2.4 millj. kr. og 1966 2.4 millj. kr., eða um 7 millj. kr. á þessum árum.
Ég hef ekki tíundað neitt af þessu til þess að gera mikið úr þeirri aðstöðu, sem iðnaðurinn hefur til fjárfestingarlána og rekstrarlána, en ég hef viljað segja þetta nú, og sumt af því hef ég sagt áður, til þess að kveða niður þann barlóm, að ekkert sé gert fyrir íslenzkan iðnað og íslenzka ríkisstj. vilji draga skóinn niður af fótum þessarar atvinnugreinar, því að það fær með engu móti staðizt.
Það er margoft sagt hér, að það sé hvert iðnfyrirtækið að loka á fætur öðru. Vill ekki hv. 5. þm. Reykv. telja okkur upp þessi fyrirtæki, sem hafa verið að loka og sérstaklega eru að loka vegna illvilja núv. ríkisstj.? Ég veit, að eitthvað hefur dregið úr framleiðslu kexverksmiðjanna hér á landi. Ég veit, að fataiðnaðurinn á í erfiðleikum. Ég veit líka, að það er verið að vinna að því að bæta hag fataiðnaðarins með breytingum á tollum á hráefnum til fataiðnaðarins og með athugun á möguleikum á því að hefta þá óeðlilegu viðskiptahætti, að frá einu landi í Evrópu eru flutt hingað tilbúin föt, sem kosta lítið meira en efnið sjálft frá sama landi. Þarna á að mínum dómi að beita undirboðstolli alveg skilyrðislaust til þess að stöðva þennan óheillainnflutning. Ég veit, að skóverksmiðjur hafa lokazt hér á landi, það er alveg rétt. En er alveg víst, að það sé umfram allt atriði fyrir okkur Íslendinga að framleiða skó? Þetta er afskaplega erfið framleiðsla og í hinum stóru og iðnþróuðu löndum talin vera ein erfiðasta framleiðslan, tízkuframleiðsla að verulegu leyti, öll framleiðsla á kvenskóm, og ég held, að við verðum að gera okkur grein fyrir því, að það geti verið alveg eins heppilegt, að fólk hér á Íslandi sé ekki að vinna í slíkri iðngrein, heldur í fiskiðnaði eða á öðrum sviðum iðnaðarins, sem hagkvæmari eru en slíkt. Við eigum ekki endilega að ganga á verri skóm eða borða lélegt kex, af því bara að það er framleitt í landinu. Við verðum að hafa meiri trú á sjálfum okkur og meta meira gildi iðnaðarins sjálfs, sem hefur sýnt sig, að þegar á þarf að halda, er hann virkilega samkeppnisfær, og það er fjöldamörg vara hér í búðunum í dag frá íslenzkum iðnaði, sem er fullkomlega samkeppnisfær við erlendan iðnað að gæðum og verði. Það sýndi hin merka iðnsýning á þessu hausti alveg greinilega. Og þá voru nógu margir, sem heimsóttu þá iðnsýningu, til þess að gera sér þetta ljóst.
Ég veit líka, að Norðurstjarnan í Hafnarfirði er lokuð, stórt og nýtt iðnfyrirtæki til þess að sjóða niður síld á erlendan markað. Skyldi það vera fyrir illvilja ríkisstj., að þetta fyrirtæki er lokað? Ég skipaði sérstaka n., eftir að ríkisstj. hafði haft málið til meðferðar í vetur, til þess að rannsaka aðstöðu þessa fyrirtækis, og í henni áttu sæti góðir menn: núv. ráðuneytisstjóri fjmrn., fulltrúi úr Seðlabankanum, Björgvin Guðmundsson, ef ég man rétt, og Einar Guðfinnsson útgerðarmaður í Bolungarvík, sem hlaut mikið lof hér áðan, eins og hann átti fyllilega skilið. Og það var þá sýnt, að stöðnuninni ollu ýmsar aðstæður, sem engum voru viðráðanlegar og fyrst og fremst hráefnisskortur, því að engin síld hafði veiðzt hér í Faxaflóa, frá því að fyrirtækið gat byrjað að taka við vöru, svo sem það byggði sínar áætlanir á; svo sem ýmiss konar óhöpp, íkveikja í verksmiðjunni, afköstin í byrjun ekki nógu mikil hjá íslenzku verkafólki, sem vafalaust stafar af óvana og mundi hafa lagazt, og svo getur vel verið, að of mikil bjartsýni hafi í upphafi verið í áætlunum eigenda þessa fyrirtækis.
Ríkisstj. tók þá ákvörðun í sambandi við þetta fyrirtæki, að það skyldi ekki greiða útflutningsgjald, heldur teljast til iðnaðar og greiða þá að vísu gjald til iðnlánasjóðs, sem er miklu lægra. Ríkisstj. hafði verulega hönd í bagga með, að þetta fyrirtæki fékk stofnlán í svo miklum mæli, að það gat ekki og var ekki búizt við af eigendunum, að það gæti fengið meiri stofnlán. Þegar gjaldþrot blasti þess vegna við af þessum óhöppum í sumar, ákvað ríkisstj. að forða þessu fyrirtæki frá gjaldþroti í sumar með það fyrir augum, að það sköpuðust möguleikar á þessu hausti, ef Faxaflóasíld kæmi og veiddist hér síld og aðrar aðstæður væru fyrir hendi, að það gæti haldið áfram rekstri sínum. Þetta varð ekki gert nema útvega því 3 1/2 millj. kr. þegar á stundinni. Ríkisstj. hafði ekki þetta fé milli handanna. Iðnlánasjóður gat ekki lánað þessu fyrirtæki þetta fé, vegna þess að hann gat ekki fengið tryggingar hjá fyrirtækinu. Ég átti viðræður fyrir hönd ríkisstj. við Seðlabankann, sem lánaði iðnlánasjóði þessar 3 1/2 millj. kr., og iðnlánasjóður lánaði þessu fyrirtæki þessar 3 1/2 millj. kr. gegn fyrirheitum ríkisstj. um að afla sér heimildar til þess að ábyrgjast þetta lán fyrir þetta fyrirtæki, sem getur þá alveg eins farið svo, að sé vonarpeningur og tapað fé, ef ríkið tekur ábyrgð á því. En ríkisstj. á eftir að eiga um þetta viðræður við Alþ., að meta þessa aðgerð ríkisstj. Hún mun snúa sér til fjvn. með það og væntir þess, að vel verði undir þetta tekið, þegar að því kemur, bæði í hv. fjvn. og í þinginu, af því að það hefur verið talin viss þjóðarnauðsyn að gera þessa tilraun, til þess að fyrirtækið yrði ekki gert gjaldþrota í vor, og gera enn eina tilraun, til þess að það mætti halda áfram.
Það er alveg undir hælinn lagt, hvort þetta fyrirtæki fer undir hamarinn í dag eða á morgun eða þessa daga. Við sjútvmrh. vorum að ræða við formann fyrirtækisins fyrir nokkrum dögum, og ég veit ekki, hvort okkur tekst í ríkisstj. enn að halda þessu eitthvað gangandi. En ég vil aðeins, að menn geri sér grein fyrir því, að þarna eru miklir erfiðleikar í iðnfyrirtæki, sem menn höfðu tengt miklar vonir við. En að svo miklu leyti sem þetta iðnfyrirtæki kann e.t.v. ekki að komast á legg og þarf að gefast upp, sem væri mikil harmsaga, er það vissulega ekki íslenzkri ríkisstj. eða ráðstöfunum hennar að kenna.
Ég tel þess vegna, að af því, sem ég nú hef sagt, sé alveg tilgangslaus þessi till., sem hér er flutt. Hún hefur verið jafntilgangslaus á síðustu undanförnum árum. Alþ. samþykkti þessa till. á sínum tíma. Eftir henni var unnið. Það væri náttúrlega ágætt, ef hv. 5. þm. Reykv. tæki upp fleiri mál, sem sjálfstæðismenn hafa flutt á þingi, og flytti þau og gerðist talsmaður fyrir þeim. Ég mundi ekki harma það. Till. var flutt á síðasta þingi, fór þá í n., en kom aldrei úr n. Ég veit ekki, hvort þm. Framsfl. í þeirri n., sem hafði málið til meðferðar, höfðu engan áhuga á að koma henni úr n. Það getur vel verið, að það hafi ekki verið hægt að fá meiri hl. fyrir henni, en þeir gátu gefið út minnihlutaálit til þess að marka afstöðu sína til málsins. En það kom ekki minnihlutaálit og ekkert álit. Það þurfti bara að flytja till., segja nokkur falleg orð, eins og hv. 5. þm. Reykv. sagði hér áðan í sambandi við flutning hennar.
Ég vil mega vona, að við getum sameinazt hér á þingi og þá í öllum flokkum um raunhæf úrræði og raunhæfari úrræði heldur en enn hafa verið á boðstólum fyrir hönd iðnaðarins. En ég vil mælast til þess, að við leggjum á hilluna sýndarmennskuna, sem iðnaðinum verður ekki til góðs, og þennan sífellda barlóm um, að þessi atvinnugrein sé á vonarvöl, sem ég hef oft áður sagt, að hefur ekkert gert annað en verða þessari merku og ágætu íslenzku atvinnugrein til stórtjóns.