16.11.1966
Sameinað þing: 10. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í D-deild Alþingistíðinda. (2278)
12. mál, endurkaup Seðlabankans á framleiðslu- og hráefnavíxlum iðnaðarins
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Við, sem þekkjum hv. þm., sem nú var að ljúka máli sínu, af samstarfi hér á Alþingi, vitum, að hann er greindur maður, og þegar maður talar við hann, verður maður þess oft var, að hann er víðsýnn og vel lesinn, eins og hann staðfesti nú einnig sinn lestur og söguþekkingu í síðustu orðum sinnar ræðu. En þau kynni, sem menn þannig fá af hv. þm., verða manni sannast sagt þeim mun ánægjulegri sem þau eru ólíkari því, sem oft má ætla um hans eðli af hans ræðumennsku og skrifum. Ræðumennskan og skrifin auðkennast allt of mikið af þýðingarlausu pexi; af því að hann ímyndar sér, að hann hafi rétt fyrir sér eða sanni sitt mál með því að taka upp hálfar setningar af því, sem andstæðingarnir hafa sagt, fella hitt niður, túlka það svo sem þeirra skoðun og slá sig síðan til riddara á því að afsanna þá vitleysu, sem þannig hafi verið haldið fram. Þetta gæti verið skemmtileg iðja út af fyrir sig fyrir þann, sem hefur smekk fyrir það, en þetta er ósköp leiðigjarn málflutningur til lengdar og sannast sagt hv. Alþingi algerlega ósamboðinn og raunar hinum góðu hæfileikum þm. gersamlega ósamboðinn líka, vegna þess að hann getur gert miklu betur, eins og við vitum, ef hann vill leggja sína góðu greind fram. En þetta er ávani, sem færi miklu betur að hann vendi sig af, ekki einungis vegna þingsins, vegna þess, að menn eru orðnir leiðir á að hlusta á þetta hans stagl og lesa hans endurteknu blekkingar í blöðum, heldur vegna þess, að hann hefur hæfileika til þess að leggja miklu betur til mála en ætla mætti af þessum hans ummælum og verða að miklu meira gagni bæði fyrir alþjóð og raunar sinn málstað, sem vafalaust má færa ýmis rök fyrir, og ég trúi ekki öðru, — betri rök en hv. þm. gerir í þessum sínum pex og staglræðum og ritum.
Hv. þm. var t.d. í orðaskiptum við hæstv. iðnmrh. að segja, að það væri nú síður en svo, að sín till. væri nokkur sýndartill., og vitnaði um það í 9 ára gömul ummæli hv. 10. þm. Reykv. Það er auðvitað töluvert annað, hvort till, var sýndartill., þegar hún var fyrst borin fram fyrir 9 árum og þá samþ. Síðan hefur hún fengið lögmæta meðferð hjá Seðlabankanum, og það hefur komið á daginn, að hún verður ekki, — við skulum segja því miður, — að því gagni, sem upphaflega var að stefnt. En þá segir hv. þm.: Við skulum líta á það, sem málgagn iðnrekenda segir um þetta nú. Nú vitum við, að það á jafnt við um málgagn iðnrekenda eins og annarra, að slík einhliða málflutningsgögn eru nú ekki ætluð til þess að segja endanlega, hvað rétt er í öllum málum, heldur skýra þau frá hálfu málflytjandans. Það er eðli málsins, þó að þau að sjálfsögðu vilji hafa það eitt, sem er satt og rétt. En þá kom það einnig fram hjá hv. þm., að í þessu málgagni iðnrekenda eru a.m.k. einungis lin mótmæli gegn því, að till. sé ekki að öllu leyti framkvæmanleg á þann veg, sem til hafði verið ætlazt. Og þeir segja: Ef það er svo, eins og haldið er fram, ekki sízt af Seðlabankanum, á að leita annarra úrræða. Og það er elnmitt það, sem gera þarf Það þarf að leita annarra úrræða, og það er merkilegt, að hv. þm. skuli ekki viðurkenna, að það er verið að reyna að leita annarra úrræða. Ég hygg, að einmitt í þerri ræðu, sem hv, þm. vitnaði í, og sýndi þess vegna, að hann hafði lesið, eftir seðlabankastjórann Jóhannes Nordal, lýsir hann því berum orðum yfir, að nú sé verið að reyna að leita annarra úrræða, sem komi iðnaðinum að raunhæfara og almennara gagni en framkvæmd þeirrar till., sem var borin fram í góðum tilgangi og reynslan sýndi að leysti ekki allt þetta vandamál. Það má svo alltaf segja, að lausn málsins hafi tekið langan tíma, en að því hefur verið unnið og að því er unnið, og hv. þm. veit og felldi það undan, að það er verið að leita að raunhæfari lausn þessa máls en hér liggur fyrir í þeirri till., sem hann er nú að flytja. Hann sjálfur og við allir vitum, að endurtekinn flutningur hans á þessari till. er ekkert annað en sýndarmennska og leikur. Ég veit ekki, á hvern hann ætlar að leika með þessu, því að niðurstaðan verður sú, að hann leikur einungis á sjálfan sig. Þetta á hann að skilja.
Varðandi það, sem hv. þm. sagði, að það væri ekki rétt, sem ég hefði haldið fram, að ríkisstj. hefði beitt öllum skynsamlegum úrræðum í baráttunni við verðbólguna, sagði hann: Þetta er bara ekki rétt. Enn fremur segir hann: Ég skal ekki ætlast til þess, að ráðh. taki 5. þm. Reykv. gildan, en hann hlýtur þó að taka Jóhannes Nordal gildan. Nú er það að vísu alveg nýtt fyrir mig, að mér beri skylda til að trúa öllu því, sem Jóhannes Nordal gerir, eða ég hafi hann fyrir minn páfa eða guð. Ég hef aldrei vanizt þeim hugsunarhætti og frábið mér hann. Ég hlusta á það, sem Jóhannes Nordal segir, og les það, sem hann leggur til mála. Ef mér þykir það skynsamlegt, tek ég það til greina, og ég verð að játa, að hann segir óteljandi margt miklu skynsamlegra en hv. 5. þm. Reykv. Þar er mikill munur á. Þar með er ekki sagt, að ég taki allt gilt, sem Jóhannes Nordal segir. En um sumt getur líka verið fróðlegt að heyra, hvað hv. 5. þm. Reykv. segir og álítur. Og ég spyr nú: Álítur hv. 5. þm. Reykv., að þessi hagstjórnarráð, t.d. stórlega aukin frysting sparifjár, sem Jóhannes Nordal nú gerir að till. sinni og ég hef ekki heyrt hann í sama mæli gera að till. sinni áður, — hann hefur hreyft nokkuð svipuðu í minna mæli, en ég hef ekki heyrt hann í svo stórum mæli gera þetta að sinni till., það er sjálfsagt að athuga það betur, — en ég spyr: álítur hv. 5. þm. Reykv., að þessi till. og annað, sem Jóhannes Nordal telur vera ábótavant, sem sagt ekki nógu háa skatta og eitthvað það þriðja, — álítur hv. 5. þm. Reykv. þetta vera skynsamlegt? Já eða nei? (ÞÞ: Á ég að svara strax?) Já, já eða nei? (ÞÞ: Það er hiklaust nei.) Já, alveg hiklaust nei. En er það þá ekki rétt, sem ég hafði sagt, að við hefðum beitt öllum skynsamlegum ráðum? Það var einmitt það, sem ég sagði. Ég sagði, að við hefðum beitt öllum skynsamlegum hagstjórnarráðum, en ég hef ekki sagt, að við höfum beitt öllum hagstjórnarráðum, líka þeim óskynsamlegu. Ég læt hv. 5. þm. Reykv. eftir að beita þeim óskynsamlegu. Svona lenda menn strax í rökþrotum og andstöðu við sjálfa sig, þegar þeir eru að leika sér að blekkingum, eins og hv. 5. þm. Reykv. er að gera. Hann hefði ekki þurft að lenda í því að svara þessu svona og hrekja þar með sjálfur allt það, sem hann hafði verið að segja, ef hann hefði ekki ætlað að leika hér á þm., en eins og ég sagði áðan, hann bara endar með því að leika á sjálfan sig. Þetta er enginn málflutningur. Þetta er ekki hv. þm. samboðið. Hann á að skilja það, að hann skaðar sjálfan sig, hann skaðar sinn eigin málstað með því að standa stöðugt hér upp í Alþ. og vera með þennan leikaraskap.
Ég spyr enn og aftur: Hver eru þau skynsamlegu hagstjórnarráð, sem ríkisstj. hefur ekki beitt? Hv. þm. þarf ekki að svara því í dag, enda er hans ræðutími nú búinn, við höfum nógan tíma til að ræða þessi mál síðar í vetur. Ég óska einmitt eftir því, að hann athugi þetta og kynni sér málið. Það kom fram, að hann hafði verið að lesa um þessi mál og vill kynna sér þau. Ef hann lætur okkur fá óbjagað það, sem hann les og kynnir sér, er fróðleikur í því. Nú spyr ég hann: Hvað af skynsamlegum hagstjórnarráðum hefur ríkisstj. látið ónotuð til þess að berjast á móti verðbólgunni? Hvað af skynsamlegum hagstjórnarráðum? Um að gera fyrir hv. þm. að ætla sér nægan tíma til þess að lesa, og þá skulum við athuga það og íhuga, hvort þarna má betur gera. Ég er mjög fús til þess að gera það, ef á það er bent.
En hv. þm. segir, að ég bindi mig við það, að öll verðbólgan sé að kenna kaupgjaldshækkun og hækkun á landbúnaðarafurðum. Nú hef ég í sjálfu sér ekki færi á því eða næga starfsorku til þess að kanna þetta til hlítar. En ég eins og fleiri hv. þm. hef lesið skýrslu Efnahagsstofnunarinnar til Hagráðs, og ég hef ekki séð því mótmælt með rökum, sem þar er sagt. Og þar er rækilega borið saman eða skýrt frá niðurstöðu á samanburði á vísitöluhækkunum eftir því, hvort fylgt væri núgildandi reglu eða hinni nýju vísitölu, sem till. komu fram um, og þar borin saman áhrif hækkana hvorrar um sig frá því í maí, hygg ég, 1964 til jafnlengdar 1966. Niðurstaðan af þessari rækilegu grg., sem samin hefur verið, er sú, að það sé hækkun á landbúnaðarvörum og ýmiss konar þjónustu, en þar í leynist fyrst og fremst kaupgjald, sem er orsök þeirrar hækkunar, sem á vísitölunni hefur orðið þetta tímabil. Ef þetta er rangt, er sjálfsagt að sýna fram á það, og þá verður að sýna fram á það. En meðan ekki er sýnt fram á, að þetta sé rangt, verðum við að hafa þetta fyrir satt. Það kemur ekkert við málinu, hvort við teljum landbúnað vera góðan eða ekki góðan, viljum standa með verkamönnum eða ekki standa með verkamönnum. Tölurnar, rökin, sem fyrir okkur eru lögð og ekki hefur verið hnekkt af neinum, segja, að þetta séu orsakirnar fyrir hækkuninni þetta tímabil. Það er annars vegar hækkunin á landbúnaðarvörum og hins vegar hækkanir á þjónustu, þar sem meginuppistaðan er kaupgjald. Gegn þessu þýðir ekkert að vera að halda fram, að spákaupmennsku hafi verið sleppt lausri og ríkisstj. hafi ekki barizt nóg gegn henni. Hvernig kemst vanræksla ríkisstj. í þeirri baráttu inn í þetta reikningsyfirlit, sem þarna liggur fyrir og allir þm. geta kynnt sér? Ef þeir telja þetta ótrúlegt, ber þeim skylda til þess með sérfræðingum að sýna fram á, í hverju það er rangt. En þeir verða þá að sýna, í hverju það er rangt, hvað það er, sem þarna ber á milli.
Í upphafi þings spurði ég þá hv. þm., 3. þm. Reykv. og 1. þm. Austf, að því, vegna þess að þeir vildu halda því fram, að það væri verzlunargróði, sem aðallega væri orsök verðbólgunnar, og einkanlega er það hv. 3. þm. Reykv., sem stöðugt heldur því fram, ég spurði: Sýnir útkoma KRON það, að verzlunargróðinn sé svo mikill hér hjá smákaupmönnum, að hann verki á þetta dæmi? Ég spurði hv. 1. þm. Austf. varaformann SÍS: Hefur stærsti innflytjandi landsins, SÍS, haft svo mikinn gróða s.l. ár, að það sé líklegt eða rök fyrir því, að gróðinn hjá heildsölum hafi orðið til þess að sprengja upp verðlagið? Hv. 3. þm. Reykv. leitaðist þó við að svara þessu, skýra málið frá sínu sjónarmiði, á þann veg nánast, að KRON væri rekið sem góðgerðarfyrirtæki, en ekki sem verzlun, og væri þess vegna ekki von, að það hefði grætt. En ég spyr þá: Selur KRON ódýrara en aðrir smákaupmenn hér í Reykjavík? (EOI: Já.) Selur það ódýrara? Af hverju hefur það þá ekki meiri viðskipti, og kemur þá ekki verðlag KRON fram í vísitölunni eða er það bara verðlagið hjá smákaupmönnunum, sem kemur fram í vísitölunni? Hv. þm. verður að svara þessu.
Hv. 1. þm. Austf. leitaðist ekki við að svara minni spurningu. Hann sagði, að ég hefði engan rétt til þess að krefja sig sagna um þessi efni, það var efni þess, sem hann sagði. En hv. 5. þm. Reykv. sagði skömmu síðar, ég held hér í þinginu frekar en í blaði sínu, og gaf með því vissar upplýsingar, að ég hefði verið að gotta mér yfir því, að SÍS væri illa statt og gengi illa, og verið með augljósan ánægjusvip af því tilefni. Hann er þá meiri sálnanna lesari en ég hefði ætlað, ef hann hefur séð ánægjusvip minn af þessu. Ég sagði ekkert um, að SÍS væri illa statt. Ég spurði bara: Er hagur þess þannig, að hann sýni, að það sé mikill gróði hjá stærsta heildsalanum og innflytjandanum í landinu? En hv. 5. þm. Reykv. svarar: Andstæðingur SÍS er að gotta sér yfir því, að það sé illa statt — Er það þá ekki þannig, að SÍS sé illa statt, af því að það hefur ekki haft þann gróða af verzluninni, sem látið er? En hvernig stendur á því, ef bæði stærsti smásalinn í Reykjavík er illa staddur og stærsti heildsalinn er illa staddur, að allir hinir stórgræði og hleypi hér upp verðbólgunni? Þessir hv. þm. eiga eftir að standa reikningsskil á þessu, þeir eiga eftir að koma saman sínum rökstuðningi, þannig að þetta liggi ekki allt saman eins og hráviði, þegar þeir eru búnir að reyna að byggja upp það, sem þeir ætla fólkinu að trúa. En ég segi: Ef það væri verzlunargróðinn, — sem hv. þm. hafa ekki sýnt minnstu viðleitni með öðru en innantómum fullyrðingum að halda fram, — sem hefði sprengt upp verðlagið, af hverju kemur það þá ekki fram í þessum reikningi Efnahagsstofnunarinnar? Af hverju fá ekki þessir hv. þm. sína sérfræðinga til þess að leiðrétta reikninga stofnunarinnar og sýna, að þarna vanti inn í verzlunargróðann, það sé hann, sem hafi hækkað verðlagið, en ekki kaupgjaldið og landbúnaðarvörurnar, um 40—50%?
Það er mjög ánægjulegt, að hv. 3. þm. Reykv. er hér viðstaddur og hlustar á mál mitt. Vonandi gerir hann betur grein fyrir þessu á eftir. Við sjáum, að hann metur Alþ. þó meira en stofnfund Alþb., þar sem hann hafði ekki tíma til þess að vera viðstaddur.
Svo segir hv. 5. þm. Reykv., að það sé algerlega rangt, sem honum sé borið á brýn af mér, að hann hafi sjálfur verið að ýta undir verðbólguvöxtinn. Hitt sé rétt, að hann hafi talið, að bæði verkamenn og bændur fengju of lítið í sinn hlut. Nú segi ég: Hann verður þá fyrst að sanna, að þessar skýrslur, bæði Efnahagsstofnunarinnar og allar aðrar skýrslur um áhrif kaupgjalds og landbúnaðarvöru, séu rangar, úr því að hann viðurkennir, að hann sjálfur hafi ýtt undir frekari kröfugerð, bæði af hálfu bænda og verkalýðs. Meðan þessi gögn eru óhögguð, sem ég hef vitnað til, er þar með sannað það, sem ég sagði. Hv. þm. verður að koma með gagnrök, en ekki innantómar fullyrðingar.
En er það þá rétt, sem hv. þm. segir, að hann hafi í raun og veru einungis verið hér óeigingjarn málsvari verkalýðs og bænda og viljað láta þá fá meiri hlut úr þjóðartekjum en við hinir? Hv. þm. vitnar í ýmsar tölur máli sínu til stuðnings. Nú veit hann að vísu ósköp vel, að þessar tölur um lífskostnað eða uppihaldskostnað fjögurra manna fjölskyldu
eru viðmiðunartölur, en ekki raunverulegar tölur. Þetta veit hann eins vel og ég, því að hann er áreiðanlega ekki, ef hann vili það viðhafa, minni hagfræðingur en ég, enda fór hann mörgum orðum um mína fákænsku. Jafnvel ég veit þetta, og hann hlýtur þá að vita það þeim mun betur. Látum það eiga sig. Auðvitað er það margt fleira, sem verkar á raunverulega afkomu almennings í landinu heldur en tímakaupið eitt. Og alveg óyggjandi gögn eru til fyrir því, að á tímabilinu frá 1958 og hvaða tíma sem tekinn er til síðar, — en við skulum taka tímabilið frá 1960 —1965, — að á því tímabili eykst hlutur hinna svokölluðu verkalýðsstétta og þar með bænda í þjóðartekjunum frá því, sem áður hafði verið. Á þessu tímabili er talið, að þjóðartekjur á mann hafi vaxið um kringum eða allt að því 33%, einn þriðja. En þessar stéttir hafa bætt sinn hag á mann sem nemur 33—44%. Jafnvel þótt gert sé ráð fyrir einhverri afdrift í því, er það engu að síður öruggt, enda óhagganlegt, að þessar stéttir hafa raunveruleg nú meira í sinn hlut af þjóðartekjunum en áður var. Auðvitað verður þá að taka tillit til alls. Það verður að taka tillit til skatta, það verður að taka tillit til fjölskyldubóta, það verður að taka tillit til almannatrygginga og alls annars, sem inn í dæmið fellur. Gegn þessu stoðar ekki að vitna eingöngu í það, að kaupmáttur tímakaups sé eitthvað minni, a.m.k. á vissum tímabilum, heldur en áður var, og menn geti ekki lifað á dagvinnutímanum einum. Hv. 5. þm. Reykv. þarf ekki annað en hvísla að sessunaut sínum, mínum góða vini, 3. þm. Vestf., og spyrja hann að því, hvaða álit hann hafi haft á því á sínum tíma hér á þinginu 1960, ef verkalýðurinn missti eftirvinnu. Þá taldi hv. 3. þm. Vestf. það eitt höfuðtilræði við verkalýðinn, sem ríkisstj. væri að gera, að við ætluðum að fara að hafa eftirvinnuna af verkalýðnum. Það yrði nú fyrst til þess að drepa hann alveg. Þá var eftir stjórnartíma vinstri herranna viðurkennt af okkar hreinskilna vini og mikla reiknimeistara, hv. 3. þm. Vestf., að það væri ómögulegt fyrir verkalýðinn að lifa án eftirvinnu, svo að það er ekkert nýtt. En síðan hefur stórbatnað hagur verkalýðsins eins og alls almennings í þessu landi. Það er með öllu óhnekkjanlegt, um það þarf ekki að deila. Eins og ég segi, það liggur nærri, að það sé 40% að meðaltali, sem hagur þessara stétta á mann hefur batnað á þessum fáu árum.
Hv. 3. þm. Reykv. hefur hvað eftir annað sagt í sínu blaði og hv. 5. þm. Reykv. hefur hvað eftir annað sagt í sínu blaði og raunar einnig hér á Alþ., að verkalýðurinn hafi fært einhverja mikla fórn 1964, fórn, sem hafi orðið til einskis og farið út um þúfur vegna svika ríkisstj. um það að halda niðri verðlagi. Í fyrsta lagi vil ég taka fram, — og þar um skiptir engu máli, þótt einstakir stjórnarstuðningsmenn hafi skammað ríkisstj. fyrir það að halda ekki niðri verðlaginu, þeir geta haft rangt fyrir sér í því eins og aðrir, ég vil taka fram, að ríkisstj. hefur aldrei lofað að halda niðri verðlagi eða halda verðlagi föstu. Í samningunum 1964 var ekkert slíkt loforð gefið, og einmitt vegna þess, að ríkisstj. treysti sér ekki til þess að halda föstu verðlagi, var fallizt á að taka upp verðlagsvísitölu að nýju. Ef verkalýðurinn hefði þá samið um, að verðlagi skyldi haldið föstu, var alveg út í bláinn að heimta verðlagsvísitöluna. Það var vegna þess, að menn sáu fyrir, að vissar verðlagshækkanir voru óhjákvæmilegar, sem verðlagsvísitalan var tekin upp aftur. Það er og síður en svo, að verkalýðurinn hafi fært nokkra fórn 1964. Það er öruggt og um það eru, alveg óhrekjanlegar skýrslur og gögn fyrir hendi, að verkalýðurinn hefur aldrei gert sér hagkvæmari samninga en júní-samkomulagið 1964, — aldrei. Og þeir voru svo hagkvæmir sem raun bar vitni vegna þess, að þeir voru raunsærri en aðrir samningar, sem gerðir höfðu verið. Þeir miðuðu frekar en aðrir samningar við það, hvað væri framkvæmanlegt, undir hverju efnahagskerfið í landinu raunverulega gæti staðið. Þess vegna hafa þessir samningar orðið verkalýðnum heillaríkari, hagsmunaávimningsmeiri en nokkrir aðrir samningar, sem gerðir hafa verið. Þegar hv. þm. er að tala um minnkun á kaupmætti tímakaups og hefur borið hér fram aðra þáltill. um rannsókn þess máls, er mjög fróðlegt fyrir hv. þm. að athuga það, að á tímabilinu frá 1964 þangað til í vor hefur kaupmáttur tímakaups hjá lægri flokkum Dagsbrúnar hækkað um 15, 17, 20 og yfir 20% á þessu stutta tímabili. Segja má, að það verði í raun og veru alger þáttaskil í þessum efnum 1964, vegna þess að þá er litið á þessi mál með meiri raunsýni en áður. En það voru vissir aðilar, sem voru algerlega andstæðir þessari samningsgerð, reyndu þá þegar og hafa reynt ætíð síðan að gera hana og aðra slíka samningsgerð sem allra tortryggilegasta. Þeir sitja þarna með einn ekki ræningja á milli sín og ekki heldur heilagan mann, en með hv. 3. þm. Vestf. sín á milli, þeir 3. og 5. þm. Reykv. Það eru þessir menn og þeirra fylgisveinar, sem hafa á allan veg reynt að gera samningsgerðina frá 1964 tortryggilega, telja verkalýðnum trú um, að þá hafi verið allt of linlega á málum haldið. Strax haustið 1964 byrjaði hv. 5. þm. Reykv. að ögra hv. 5, þm. Vestf hér á þingi með því, að hann hefði samið af sér í júnísamkomulaginu. Hann hefur haldið þessu fram ætíð síðan. Eins og ég segi, hann hefur nú undanfarna mánuði hvað eftir annað látið segja og sagt í sínu blaði, að verkalýðurinn hafi þá fært einhverja fórn. Hv. 3. þm. Reykv. stóð að því, að það var gerð bein árás á þessa samningsgerð í Þjóðviljanum, með mildari orðum á árinu 1964, en enn hvatvíslegri á árinu 1965, þegar leitað var eftir að gera slíkan samning að nýju. Það eru þessir þm., sem hafa þarna beinlínis verið að berjast á móti hagsmunum verkalýðsins, sem vilja nota verkalýðsfélögin til einhliða pólitískrar baráttu gegn stjórnmálaflokkunum án tillits til hagsmuna verkalýðsins.
Hv. 5. þm. Reykv. viðurkennir þetta í raun og veru í sínu blaði. Ég hygg, að það sé í grein, sem þar stóð 25. ágúst s.l., sem hann segir: Það er ekki þess að vænta, að verkalýðsfélögin, stéttarfélögin, sætti sig við að semja um lausn sinna mála við núv. ríkisstj., af því að þessir aðilar eru á móti stjórnarstefnunni. Það er ekki fyrr en stjórnarstefnunni verður breytt, sem hægt er að ætlast til þess, að þessi stóru stéttarfélög semji skynsamlega við ríkisstj. — Með þessu er efnislega sagt — og það er efnið, sem ég hér rek, ég hef ekki tilvitnunina fyrir augunum, en efnislega er það rétt, sem ég segi, — með þessu er efnislega sagt, að það séu stéttarfélögin, sem eigi að ráða hinni pólitísku og efnahagslegu stefnu landsins án tillits til þess, hvað kjósendur ákveða í landinu. Ríkisstj. er ekki að gera annað en framkvæma það, sem kjósendur að meiri hl. hafa lagt fyrir hans að gera. Við lögðum okkar stefnu fyrir kjósendur 1959, hlutum þá góðan meiri hl. Við lögðum hana aftur fyrir kjósendur 1963. Þá var reynsla komin á okkar gerðir. Við hlutum enn ríflegri meiri hl. þá. Sveitarstjórnarkosningarnar í vor sýndu það, eftir því sem hægt er að komast næst, að eins og þá stóð, höfðu stjórnarflokkarnir enn milli 53 og 54% af kjósendum landsins á bak við sig. Við vitum ekki, hvernig fer í vor. En þegar sagt er og því beinlínis haldið fram, að það sé óeðlilegt, að stéttarfélögin semji við slíka stjórn sem nú er, er þar með sagt, að einstakir hópar í landinu eigi að taka völdin af meiri hl. Kjósenda.
Hv. þm. skal ekki ætla, að hann sleppi frá þessum málflutningi. Kjósendum verður gerð grein fyrir honum. Hann sleppur ekki heldur frá því með innantómu hjali um þjóðstjórn nú, þar sem hann er að biðla til samstarfs við þann flokk, sem þeir herrar fyrir nokkrum árum sögðu að æðsta gæfa þjóðarinnar væri undir því komin, að við værum settir til hliðar og gerðir áhrifalausir. Nú geta þeir ekki hugsað sér og dettur ekki einu sinni í hug að halda því fram, að vinstri stjórn geti leyst vandann. Nei, nú á þjóðstjórn ein að geta komið til og leyst þennan vanda. Auðvitað getur vel staðið þannig á í íslenzku þjóðfélagi, að það sé nauðsynlegt að hafa þjóðstjórn. Allra sízt dettur mér í hug að bera á móti því. Það hefur raunar enn aldrei tekizt að skapa möguleika til þess, og þegar mest hefur á riðið og það var næst komið, að slíkt tækist, stóð á Framsfl., að úr þeim möguleika yrði í framkvæmd. En ég hef bent á, að þótt þjóðstjórn geti vel komið til greina í einstökum tilfellum til þess að leysa bráðan vanda, er vandi íslenzks efnahagslífs allt annars eðlis en svo, að það verði ráðið fram úr honum með þjóðstjórn, sem sitji skamma hríð. Þá yrðu menn að sætta sig við og stefna að því, að allra flokka stjórn yrði hér um áratugi, vegna þess, eins og ég sýndi glögglega fram á í þeirri ræðu, sem hv. 5. þm. Reykv. hefur hér hvað eftir annað gert að umræðuefni, — eins og ég sýndi þar glögglega fram á, eru þau vandamál, sem við er að glíma og ýmsir reyna að fela á bak við slagorðið um verðbólgu og skýra allan vandann með því, svo margþætt og langæ, að það tekur áratugi að leysa þau til hlítar. Þar verður engri skyndilækningu komið við. Enda mundi reynslan verða sú, að þeir, sem hefðu þvingað sig inn í ríkisstj. með því, að þeir hefðu gert svo mikið illt fyrir utan ríkisstj., eins og pólitík hv. 5. þm. Reykv. nú stefnir að, mundu auðvitað hafa öxina yfir meiri hl. og segja: Ef þú lætur mig út úr stjórninni, hegða ég mér eins og óþokki aftur, svo að það er betra að hafa mig í ráðherrastólnum. — Ég veit ekki, hvað þjóðin verður hrifin af slíkum tilboðum frá þessum herrum. Við eigum eftir að sjá það.
Hv. þm. sagði, að það væri rétt, að frysting sparifjár væri viða notuð til þess að berjast á móti verðbólgu. Á móti því gat hann ekki borið, en sagði hins vegar, að í þeim löndum stæði allt öðruvísi á en hér, vegna þess að þar væri yfir miklu meira fé að ráða en hér. Nú er út af fyrir sig ekki um það efni að ræða hér, heldur hitt, — og ég játa, að það stendur yfirleitt allt öðruvísi á í þessum löndum en hér, — en munurinn er sá, að frysting sparifjár er fyrst og fremst notuð til þess að standa á móti ofþenslu, til þess að koma í veg fyrir of miklar framkvæmdir, sem keppi um vinnuafl og þar með auki kostnað. Þetta er notað jafnvel í þeim löndum, þar sem er um mikið atvinnuleysi að ræða. Og sannleikurinn er sá, að í þeim nágrannalöndum, þar sem hv. 5. þm. Reykv. hefur nú kynnt sér, að þessu hagstjórnarráði er beitt, þar er um verulegt atvinnuleysi að ræða. Við skulum líta til beggja handa, annars vegar til Englands og hins vegar til Bandaríkjanna. Í Bandaríkjunum er ástandið þannig, að þar eru milli 3 og 4% landsfólksins atvinnulaus. Atvinnuleysið hefur eitthvað minnkað. Sumir hagfræðingar halda því meira að segja fram þar, jafnvel þeir, sem eru í opinberri þjónustu, að það sé ómögulegt að forðast verðbólgu nema 3—4% atvinnuleysi sé fyrir hendi. Það mundi svara til þess, að við hefðum milli 6 og 7 þús. manns atvinnulausa. Í Bretlandi hefur verið atvinnuleysi undanfarið, vegna þess að brezk framleiðsluvara er orðin svo dýr, að þeir telja sig ekki geta keppt. Og af því að þeir hafa misst inneignir erlendis og eru í gjaldeyrisvandræðum, telja þeir sig verða að fá verðlag niður, og til þess að fá verðlagið niður, er markvisst með frystingarráðstöfunum og öðru slíku stefnt að því að auka atvinnuleysi, bæta við í atvinnuleysingjahópinn, að því er ég hygg, sem mundi á Íslandi svara til, að við stefndum að því að skapa 1400—2500 manns atvinnuleysi.
Ég segi það alveg hiklaust, að svo mikils sem ég met fast gildi peninganna og baráttu á móti verðbólgu, met ég meira lífshamingju fólksins, sem býr í landinu. Ég met meira, að almenningur eigi þess kost að vinna fyrir sér og vera ekki háður styrkjum og bónbjörgum, jafnvel þó að atvinnuleysisstyrkir séu kallaðir. Ég met það meira að halda við fullri atvinnu í landinu, þó að einhver hætta sé á verðbólgu, heldur en beita því hagstjórnarráði að skapa vísvitandi atvinnuleysi. En það er einmitt það, sem sósíalistíska stjórnin í Bretlandi gerir. Hún beitir m.a. lánsfjárhömlum og ýmsum öðrum harðræðum til þess að skapa atvinnuleysi, til þess þar með að hafa hemil á kaupgjaldinu, af því að hún veit um áhrif kaupgjaldsins á verðbólgu, eins og auðvitað hv. 8. þm. Reykv. ósköp vel veit, þó að hann láti öðruvísi.
Hér á landi höfum við, sem betur fer, allt aðrar aðstæður, vegna þess að hér er skortur á vinnuafli. Hérna þurfum við þess vegna ekki í náinni framtíð að óttast almennt atvinnuleysi, þó að einhver samdráttur verði, og það er ómögulegt að hafa hemil á verðbólgunni eða koma í veg fyrir, að hún geri stórkostlegan skaða, nema því aðeins að hemill sé á henni hafður m.a. með þessum úrræðum. Auknar lánveitingar mundu óhjákvæmilega og geta ekki verið til annars ætlaðar en að auka á framkvæmdir í landinu, og ég spyr: Hvar á að taka vinnuaflið til þess að standa í þeim framkvæmdum? Hvar á að taka vinnuaflið til þess? Mundi það ekki óhjákvæmilega leiða til uppboðs á vinnuafli, til aukinnar þenslu, til aukinnar verðbólgu? Ef hv. þm. skýrðu samhengi hlutanna fyrir kjósendum og segðu: Þetta er það, sem við erum að berjast fyrir, það er aukin verðbólga, væru þeir virðingarverðir. En þegar þeir þykjast vera að berjast á móti verðbólgunni, en heimta úrræði, sem hljóta að leiða til aukinnar verðbólgu, eru þeir ekki virðingarverðir, þó að við verðum að kalla þá hv. alþm.
Og hv. alþm. spurði og sagði: Getur hæstv. forsrh. bent á nokkurt land, þar sem dregið hefur verið jafnmikið fé út úr atvinnurekstri með frystingu sparifjár og hér hefur verið gert? Spurningunni verður auðsvarað, vegna þess að hún byggist á fölskum forsendum. Það er ekki verið að draga út úr atvinnulífinu á Íslandi féð, sem Seðlabankinn tekur til sín. Með þessu fé er verið, — og hv. þm. játaði það í sinni ræðu, — er verið að gera mögulegt að kaupa framleiðsluvíxlana. Hann sagði og vitnaði einmitt í það sem eitt af því, sem iðnrekendur segja: Það má ekki draga féð frá okkur til þess að lána öðrum. Þar með viðurkennir hann, að það er ekki verið að draga féð út úr atvinnurekstrinum. Það er verið að tryggja það, að útflutningsatvinnuvegirnir og landbúnaðurinn geti staðizt, og til viðbótar þessu er verið að tryggja það, að við getum haft svipaða gjaldeyrissjóði og við höfum nú safnað og fyrir liggja. Er nokkur maður, sem í raun og veru leggur það til, að dregið sé úr framleiðsluvíxlunum? Er nokkur maður, sem í raun og veru vill, að við köstum frá okkur þeirri miklu tryggingu, sem felst í vænum gjaldeyrissjóðum? En þeir menn, sem vilja taka af Seðlabankanum möguleikana til þess að standa undir þessu, stefna að þessu. Ég segi enn: Það væri virðingarvert, ef þeir segðu þetta berum orðum. En þeir láta, eins og það sé hægt að gera allt fyrirhafnarlaust, að það sé hægt að standa undir öllu, án þess að það komi nokkurs staðar við nokkurn mann. En lífið er nú ekki einu sinni þannig. Menn þurfa ætíð að gjalda eitthvað, ef þeir vilja ná einhverju.
Það væri hægt að taka mörg fleiri dæmi úr baráttusögu Framsóknar, sem sýna fram á þennan skollaleik, þar sem verið er að telja fólki trú um, að það geti fyrirhafnarlaust fengið einhver gæði, sem vitanlega fást ekki fyrirhafnarlaust, heldur verða menn að l eggja eitthvað í sölurnar til þess að ná þeim. Til þess eru stjórnendur að meta, hvað mest er um vert, og ég játa það hreinlega, að ég tel svo mikils um vert að reyna að hafa hemil á verðbólgunni, að geta tryggt, að framleiðslan gangi, með framleiðsluvíxlum, að hafa gjaldeyrisvarasjóð, að þó að það kosti einhverja frystingu á sparifé, svipað og aðrar þjóðir verða að gera í mismunandi ríkum mæli, sé sjálfsagt að gera það, á meðan þetta leiðir ekki til atvinnuleysis. Þá er meira unnið en þau óþægindi, sem lögð eru á menn við að geta ekki framkvæmt meira en nú er framkvæmt, á meðan allir viðurkenna í hinu orðinu, að of mikið sé af framkvæmdum í landinu, of mikil eftirspurn eftir vinnuafli, og er þá skemmst að minnast umræðna frá s.l. vori um Búrfellsvirkjun og álbræðsluna í Straumsvík.
Ég hygg, að ég hafi þá svarað að efni til þeim efnisathugasemdum, sem hv. 5. þm. Reykv. gerði við mína ræðu. Aftur á móti má segja, að það sé naumast svara vert, þegar hv. þm. er að halda því fram, að ég sé sérstakur boðberi vantrúar á landið og íslenzka atvinnuvegi. Sannleikurinn er sá, að ég hef reynt að gera mér grein fyrir, í hverju vandi íslenzkra atvinnuvega og íslenzks þjóðlífs væri fólginn með samanburði á íslenzkum atvinnuvegum og íslenzku þjóðlífi við það, sem með öðrum þjóðum gerist. Það er og engin nýjung, sem ég segi. Það gilda að sumu leyti aðrar reglur á Íslandi en í öðrum löndum, eins og jafnvel framsóknarmenn hafa oft viðurkennt og sagt: Vegna þess að það eru aðrar reglur, þýðir ekki að taka hér upp sömu hagfræðikenningar og gilda í stórum iðnaðarlöndum og ætla að beita þeim á Íslandi. Jafnvel í þessum þeirra málflutningi kemur fram játning þeirra á þeim séraðstæðum, sem á Íslandi eru og allir þekkja, sem hafa kynnt sér annars vegar Ísland og hins vegar önnur lönd. Þetta er sem sagt engin nýjung. Það er til vísupartur jafnvel frá því seint á 18. öld, eftir séra Gunnar Pálsson, þar sem hann ber saman annars vegar Ísland og hins vegar Holland og hversu auðveldara væri að lifa, ef Ísland hefði náttúrugæði Hollands, heldur en þau náttúrugæði, sem það hefur. Þetta er engin vantrúaryfirlýsing á Ísland. Þetta er raunsæi. Þetta er skilyrði þess, að við skiljum þau viðfangsefni, sem við erum að fást við.
Því fer svo fjarri, að ég geri lítið úr arðbæri íslenzkra atvinnuvega, að ég segi þvert á móti: Það er eitt af undrum veraldar, og Íslendingar nútímans skilja ekki, hvað hefur verið gert á þessu landi, ef þeir vita það ekki og átta sig á því, — það er eitt af undrum veraldar, sem hér hefur gerzt á þessari öld, að þessi fátæka þjóð, í þessu allsrúna landi, eins og landið var, þegar Íslendingar fengu sjálfsforrærði, — að þessi fámenna, fátæka, allslausa þjóð skuli hafa byggt allt upp, sem gert hefur verið á þessu landi. Mér kemur ekki til hugar að þakka það einum flokki frekar en öðrum, þegar litið er yfir þetta í heild, — a.m.k. hafa allir reynt að leggja sitt bezta fram, mér kemur ekki annað til hugar. En þetta er eitt af undrum veraldar. Þetta er eitt af því, sem aðrir menn skilja ekki að hafi verið mögulegt að gera á þessu landi, án þess að við fengjum til þess stórkostlega styrki eða hjálp annars staðar að. Við vitum, að það er ekki það, sem hefur ráðið úrslitum eða haft yfirleitt nokkra þýðingu að marki. Það eru náttúrugæðin, það er dugnaður fólksins, það er skilningur þess á viðfangsefnunum, þó að margt hafi farið aflaga, sem hefur gert þetta, ég vil segja: fullkomna kraftaverk. Og aldrei hefur þó munað hraðar áfram en einmitt á allra síðustu árum. Það má skamma okkur fyrir margt, okkur hefur margt mistekizt, en það verður aldrei af ykkur skafið, að þetta er örasti vaxtartími íslenzkrar velmegunar í allri sögu þjóðarinnar, tímabilið frá árslokum 1858.
Eðlilegt er, að á slíkum tíma fari ýmislegt öðruvísi en skyldi. Þá er að átta sig á því, hverjar eru orsakir þess. Þær eru m.a. óvissa íslenzkra atvinnuvega. Það er gamall íslenzkur málsháttur, sem segir: „Svipull er sjávarafli.“ Heldur hv. 6. þm. Reykv., að ég, alinn hér upp í Reykjavík, nákunnugur sjómönnum, þekkjandi þá frá blautu barnsbeini, kominn af sjómönnum langt fram í ættir, heldur hann, að ég vanmeti þýðingu sjávarafla fyrir Reykjavík, fyrir Ísland? Nei, vissulega ekki. Ég veit, að án sjávaraflans, án framlags sjómannanna, án framlags útgerðarmannanna, væri Reykjavík ekki til, þá væri íslenzkt sjálfstæði ekki til. En þetta merkir ekki það, að við þurfum ekki að fá aðrar og öruggari og fleiri stoðir undir okkar sjálfstæði eða að það sé nokkurt vit, eins og hv. framsóknarmenn vilja, að láta auðsuppsprettur eins og stórfljót landsins renna óbeizluð til sjávar enn um áratugi. Slíkt væri fullkomið glapræði. Auðlegð landsins er svo mikil, að þess vegna, hefur verið hægt að gera hér stórvirki. Eitt af því, sem skapar þessa óvissu og þessar sveiflur, er, að þegar síldin gengur vel, — og við vitum, að hún hefur bæði gengið vel og illa, — þegar síldin gengur vel, er þar meiri auðsuppspretta en nokkurs staðar annars staðar er hægt að fá í þessu landi og jafnvel stórfljótin nokkurn tíma geta malað. En þau eru öruggari, þau endast lengur. Og jafnvel nú, þegar síldveiðin er meiri en áður, svo ævintýralega mikil, að við hefðum ekki trúað því fyrir fáum árum, að slíkt gæti skeð, þá eru vegna þess, hvar síldin veiðist, sumar síldarverksmiðjur að verða gjaldþrota eða í stórkostlegum vandræðum. Fram hjá þessum vanda komumst við ekki. Það er ekki verðbólgan, sem skapar þann vanda, það er eðli atvinnuveganna, og allt tal um lausn á verðbólgunni er ómögulegt, nema menn skilji eðli íslenzkra atvinnuvega, þá stórkostlegu möguleika, sem eru í þeim fólgnir og hafa gefið okkur möguleika til að byggja upp þetta land, en líka skapað erfiðleikana, sem við erum að glíma við, sem ég efast ekki um að hv. 5. þm. Reykv. vill leysa eins og við, og hann getur hjálpað til að leysa, ef hann vili leggja síg fram, ef hann hættir að snúa út úr, ef hann hættir að halda, að það sé gaman eða einhver upphefð í því að vera að pexa, rífast, að reyna að ná höggi á andstæðingi, af því að hann hafi talað af sér. Ef hann vili leggja sig fram um heilbrigðan málflutning, nota sína góðu greind til heilla þjóðarinnar, mundi hann verða tekinn í ríkisstj., ekki vegna þess, að hann væri svo mikill óþokki, að hann gæti gert meiri skaða utan hennar, heldur af því, að menn mundu segja: „Batnandi manni er bezt að lifa“