02.11.1966
Sameinað þing: 7. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í D-deild Alþingistíðinda. (2299)
16. mál, jarðakaup ríkisins
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Í dag eru að venju nokkrar þáltill. á dagskrá. Ég er hér með í höndunum 6 þáltill., sem hv. framsóknarmenn hafa flutt. Með þessum till. er gert ráð fyrir að skipa nefndir og í þessum n. er ætlazt til að verði alls 38 menn. Ég vil vekja athygli á því, að þetta eru aðeins till., sem eru á dagskrá í dag, en hvað margar n. hv. framsóknarmenn ætlast til að séu skipaðar með þeim till., sem þeir flytja á Alþingi yfirleitt, þessu þingi, er eftir að telja saman. Sennilega mun það skipta hundruðum, þar sem það eru 38 menn á einum degi. En þetta kann að vera einn þátturinn í því að draga úr ríkisútgjöldunum, gera ríkisbáknið léttara, eins og hv. framsóknarmenn tala nú oft um.
Hv. 6. þm. Sunnl. gerði hér grein fyrir till., sem hann flytur ásamt tveimur öðrum hv. framsóknarmönnum um mál, sem hafa verið á dagskrá hjá bændasamtökunum að undanförnu, og flest af því, sem í þessari till. er, er nú komið vel á veg með samvinnu milli ríkisstj. og bændasamtakanna. Hv. framsóknarmenn fluttu sams konar till. á síðasta þingi, eftir að bændasamtökin höfðu rætt sumt af þessu, sem í till. er. Ég veit ekki, hvort þeir hafa verið beðnir um að flytja till., ég held ekki, en þessi mál hafa verið til umr. nú í 2 ár á milli ríkisstjórnarinnar og bændasamtakanna, og ég hefði nú haldið, að eftir að það varð ljóst, að meginkjarni þess, sem er í þessari till., hefur komizt í höfn, hefði ekki þótt ástæða til að flytja þessa till. aftur.
Fyrsti liður þessarar till. fjallar um það að auðvelda þeim, sem hætta búskap vegna aldurs eða annarra orsaka, að koma eignum sínum í verð. Það er kunnugt, að það hefur verið gert ráð fyrir á þessu þingi, að flutt verði frv. um jarðakaupasjóð ríkisins, sem hefur það verkefni að meginhluta til, sem í þessum lið felst. Það eru 3–4 ár síðan bændur fóru að tala um að stofna jarðakaupasjóð í þessu skyni, jafnt framsóknarbændur og sjálfstæðisbændur, þetta er áhugamál þeirra Það má þess vegna segja, að það sé ágætt, að þessi ósk bændanna er nú þegar orðin að samkomulagsmáli, og gera má ráð fyrir, að það verði flutt frv. nú í vetur, sem væntanlega verði að lögum um þetta efni. Ég ætla ekki að fara nánar út í það, ég veit, að hv. þm. mun flestum vera kunnugt um það, hvert meginefni þessa frv. er, það hefur verið skrifað um það, og þarf því ekki að rekja það hér nánar.
Annar liður þessarar till. er um að efla starfsemi Landnáms ríkisins. Starfsemi Landnáms ríkisins hefur verið efld, og þau lög, sem Landnám ríkisins starfar eftir, eru rúm og heimildir ýmiss konar fyrir Landnámið og nýbýlastjórn til að nota, og ég sé ekki, að þessi liður till. sé á nokkurn hátt nauðsynlegur, miðað við þann tilgang, sem lesa má út úr þessu máli. Hitt má svo vel vera, að það sé eðlilegt að endurskoða þessi lög, og hefur það oft komið til tals meðal bænda, að þessi löggjöf gæti kannske gegnt öðru og víðtækara hlutverki.
Þá er þriðji liðurinn að tryggja umráðarétt bænda og greiða fyrir eigendaskiptum á jörðum með stórauknu lánsfé. Hér er vitanlega átt við það að efla veðdeild Búnaðarbankans. En það vona ég, að hv. flm. viti, að það þarf enga lagabreytingu til þess að efla veðdeild Búnaðarbankans. Það, sem veðdeildina vantar, er fé, og fé getur hún fengið, án þess að lögum um veðdeild bankans verði breytt. Lengi var það, að heimilt var fyrir veðdeildina að lána 35 þús. kr. út á jörð vegna eigendaskipta. Þrátt fyrir það, þótt hámarkið væri ekki hærra en þetta, hafði deildin ekki fé fyrir hendi til að fullnægja þessum heimildum. En það var, að mig minnir, 1963, sem heimilað var að hækka þessa upphæð upp í 100 þús. kr., og það er vitanlega mikil hækkun úr 36 þús. í 100 þús. En það reyndist eigi að síður of litið, og í haust var ákveðið að afla fjár til veðdeildarinnar, þannig að hún geti eftirleiðis lánað allt að 200 þús. Ég veit ekki, hvort hv. flm. telja, að það sé verið að stórauka lánsfé veðdeildarinnar með þessu, það er ef til vill vafasamt. Það má vel hugsa sér, að þeir telji, að þetta sé of smátt skammtað. En það verður ekki hjá því komizt að minna á, að á árunum 1957—1958 var annað árið ekki lánað úr veðdeildinni til jarðakaupa nema 600 þús. og hvert lán á hámarki 35 þús. Þá vantaði veðdeildina fé. Einnig hefði verið þörf á að auka lánsféð, en það reyndist ekki mögulegt. Það var ekki af viljaleysi þeirra manna, sem höfðu með þessi mál að gera. Þeir sögðu einfaldlega: Það er ekki fé fyrir hendi. — Að vísu hefur ýmislegt verið gert nú síðari árin, sem var talið ómögulegt þá, en jafnvel þó að við séum stórtækari nú, byggjum meira nú, framkvæmum meira nú og lánum meira nú, útvegum opinberum sjóðum meira fé til ráðstöfunar nú en þá, margfalt meira fé, þótt miðað sé við verðlagsbreytingarnar, skulum við elgi að síður vera sammála um, að það eru takmörk fyrir öllu. Ég skal samþykkja, að það væri æskilegt að gefa veðdeildinni heimild til þess að hafa lánin hærri en í frv., og vitanlega þarf að hugsa sér þann möguleika að færa sig þannig stig af stigi, eftir því sem möguleikar leyfa. En gagnvart þessum lið till., 3. lið, ætla ég, að í bili sé því fullnægt, sem till. fer fram á.
Skv. 4. lið till. er talað um að tryggja sjálfseignarbændum eðlilegt öryggi um verðgildi eigna sinna og jafna aðstöðu þeirra og leiguliða um þau efni. Ég hef ekki alveg gert mér grein fyrir því, hvernig ætti að framkvæma þetta. En með því að jarðakaupasjóður er stofnun, sem ætlað er það hlutverk fyrst og fremst að kaupa þær jarðeignir, sem sízt eru seljanlegar, held ég, að þeir, sem eiga jarðeignir, sem vel eru í sveit settar, þurfi ekki að kvíða því, að jarðir þeirra lækki í verði, þannig að öryggi þeirra eignalega séð ætti að vera tryggt með þeirri vissu, að íslenzkt land, sérstaklega það, sem er vel í sveit sett, hlýtur að hækka í verði, — það hlýtur að stórhækka í verði, og allt land hlýtur að stórhækka í verði, því að að því kemur, að aukin þörf verður fyrir þetta land, og landið er verðmæti, sem hægt er að auka með því að bæta það með ræktun, og einnig vegna þess, að þörfin fyrir að nota það fer stöðugt vaxandi í fjölgandi þjóðfélagi.
Þá er það 5. liðurinn, að settar verði reglur um mat á jarðeignum til kaups og sölu í því skyni að skapa meiri festu í verðlagningu slíkra verðmæta. Ég veit ekki betur en nú standi yfir fasteignamat. Fasteignanefndir eru starfandi í öllum sýslum landsins, og það er verið að gera nýtt fasteignamat. Ég veit ekki, hversu langt því er komið, en ég hygg, að því mati sé langt komið. Og það er beinlínis talað um það og held ég ákveðið í reglum, sem hreppsnefndirnar fara eftir, að meta landið eftir því, hvernig það er í sveit sett og hvernig það er sett gagnvart samgöngum og möguleikum til afurðasölu o.s.frv. Og fasteignamatið á að miðast, eftir því sem við verður komið, við líklegt söluverð. Ég veit ekki, hvað væri hægt að gera í bili fram yfir þetta til þess að ná því, sem flm. ætlast til skv. 5. lið till.
Nú vil ég ekki, að hv. flm. misskilji mig á þann hátt, að ég telji út af fyrir sig óeðlilegt, að fluttar séu till. um ýmis mál, sem eru á dagskrá, sem menn eru að hugsa um og velta fyrir sér. Það út af fyrir sig er allt saman eðlilegt, og það getur alltaf verið gagn að því að ræða af hófsemi um málin, jafnvel þó að málin séu að því komin að komast í höfn, að svo miklu leyti sem hugsanlegt er að koma þeim um sinn. Og það má segja líka, að það sé saklaust að gera till. um nefndarskipun til þess að athuga mál, ef menn reikna með því, að það komi ekki til, að það þurfi að skipa þessar n. En það væri alveg voðalegt, ef allar þessar till. yrðu samþykktar og öllu því nefndafargani komið á, sem þessi tillöguflutningur hefur í för með sér.
Ég sé ekki þörf á því að ræða meira um þessa till. Hv. þm. hafa hana á borðinu hjá sér og hafa lesið hana, og ég ætla, að þegar menn hafa áttað sig á þessu, komist menn að raun um, að miðað við það, sem þegar hefur verið gert í þessu máli og ákveðið er að gera, er út af fyrir sig þessi tillöguflutningur ekki nauðsynlegur. Og það er eðlilegt, að ef breyta þarf löggjöf landbúnaðarins, komi forustumenn bændastéttarinnar, Stéttarsambands bænda og aðrir forustumenn, því á framfæri við alþm. og ríkisstj. En sem betur fer get ég sagt það, að forustumenn bænda ræða þessi mál oft og iðulega við mig, þau, sem koma þarf í framkvæmd, og það hefur, sem betur fer, oft tekizt að verða við óskum bænda, bæði um breytingar á löggjöfinni og breyt. á framkvæmd löggjafar innan þeirra heimilda, sem fyrir hendi eru.
Ég sé ekki ástæðu til að samþ. þessa till.